Leita í fréttum mbl.is

BLOGGAÐ UM HELGI

kkk

Ég hef farið inn á hvert bloggið á fætur öðru og allir eru að skrifa um hvað þeir ætli að gera um helgina!  Ég hlýt að vera svona augnabliksmanneskja því ég hef varla leitt að því hugann um hvað bíði mín á morgun.

Í dag hef ég dregið lappirnar og tekið upp rými, fært mig á milli stóla, hangið, geispað, hugsað og látið kaupa handa mér tilbúinn mat.  Nennti ekki að elda einu sinni. Nú en laugardagurinn er framundan og þá ætla ég að stússast í ýmsu.  Jennslubarnið kemur til að gista hjá ömmu sinni. Gaman, gaman.  Við ætlum að baka pönnukökur, leika okkur, Jennslan fer í bað eins og venjulega og svo horfum við á Pippi (Astridsdóttur)Långstrump. Ég ætla í Smáralind (Joyful) og rölta í búðir, kannski kíkja til mömmu og pabba eða einhverra hinna sjösystra sem eru ekki í útlöndum núna. Ok þrjár af títtnefndum systrum eru í útlöndum.  Rosaleg ferðafjölskylda.

Fyrst og fremst hlakka ég til að vera með nöfnu minni, bara að njóta gleðinnar af návist hennar og uppátækjum og fá að sofna með hana við hliðina á mér í "stóra rúminu" en húsbandið er að vinna nottla.

Ekki mjög hektiskt líf hjá minni en nákvæmlega eins og ég vil hafa það.  Gleðin liggur í litlu stundunum og þeim forréttindum að vera í félagsskap lítils tveggja ára stelpuskotts, sem sífellt tekur framförum og er alltaf í góðu skapi.  Það er bara hamingja.

q2


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Æi það er líka oft voða notalegt að vera í slökun og með sem minnst skipulagt

Sædís Ósk Harðardóttir, 17.3.2007 kl. 09:47

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Æ þetta hljómar nú bara vel..ömmuskott og Lína Langsokkur. Þú ert heppin með þetta allt...nema kannski veðrið?

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 17.3.2007 kl. 10:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 2985889

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.