Færsluflokkur: Lífstíll
Sunnudagur, 29. apríl 2007
SVO LEIÐINLEGT..
..að þetta skuli hafa komið fyrir sagði Valgerður Sverrisdóttir í Silfri Egils í dag þegar verið var að ræða Impregilo málið og aðstæðurnar á Kárahnjúkum. Mér finnst Valgerður reyndar töff kona og ég held ekki að hún hafi ekki ætlað sér að láta þetta álit sitt hljóma eins og um einangrað "slysatilfelli" hafi verið að ræða. En þetta sagði hún samt.
Það hafa allir sem hafa kært sig um, vitað lengi að þarna fer fram ill meðferð á verkafólki og þar hafa verið margbrotin lög á því, bæði í launamálum, almennnum aðbúnaði og fleiru. Þetta er eins og Ögmundur sagði réttilega í þættinum "svartur blettur á ríkisstjórninni". Impregilo eru sökudólgarnir, þeir eru bófarnir í atvinnulífinu og fara ekki eftir þeim lögum og reglum sem hér gilda varðandi verkafólk. Meira að segja stjórnendur fyrirtækissins hafa dregið í land með "rétt" sinn að fá prívat sjúkraskýrslur í hendurnar og gerðu hinum íslenska talsmanni Impregilo skömm til. Líklegast hafa þeir áttað sig á að frekari hroki væri fyrirtækinu ekki til framdráttar.
Allir fulltrúar stjórnmálaflokkanna sem þarna sátu hörmuðu að sjálfsögðu þennan hroða sem þarna gerðist. Slysatíðnin hefur verið óeðlilega há þarna, matareitranir, eiturgufurnar í göngunum og Guð má vita hvað fleira þetta alræmda fyrirtæki er ábyrgt fyrir.
Annars var það staðfest enn og aftur þarna í Silfrinu í dag að það kemst ekki hnífurinn á milli stjórnarflokkanna. Það litla sem ég sá af Guðlaugi Þór var þegar hann var að mæla upp vitleysuna í Framsókn.
Vinstri græn hafa farið fram á opinbera rannsókn á öllum málefnum Impregilo hér á landi. Í ljósi þess sem gerst hefur er það sjálfsögð og eðlileg krafa. Ég er viss um að íslendingar vilja ekki láta koma svona fram við fólk.
P.s. Myndin sem fylgir pistlinum er af eitruðu kvikindi. Mér fannst það svo passandi eitthvað.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 16:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 29. apríl 2007
LISTI I - EITUR Í MÍNUM BEINUM
Ég er alltaf að sjá lista út um allt yfir alls konar hluti sem fólk elskar og hatar og hatar að elska. Þetta er kannski ekki svo vitlaust að búa til lista yfir gott og vont. Ég ætla að reyna og byrja á því sem er eitur í mínum beinum.
1. Köngulær í öllum stærðum, gerðum og útliti megi þær vera eitraðar eður ei. Ég missi mig einfaldlega þegar ég sé þær, verð eins og fíbbl og haga mér eins og örviti.
2. Borðtuskur sem hafa verið notaðar lengi, lengi án þvottar. Ég hef hvergi rekist á þessar illjaþefjandi bakteríunýlendur í tugi ára en ég átti tvær vinkonur þegar ég var stelpa og heima hjá þeim voru tuskurnar notaðar í tilfallandi verkefni frá gólfi til lofts í öllum vistarverum. Ég berst við að muna ekki eftir lyktinni en hún er í sýsteminu og komin til að vera. Vitið þið hvernig mjólk í bómull lyktar eftir að hafa legið í sólbaði á eldhúsborðinu skamma hríð?
3. Fólk sem situr og talar við tvær manneskjur samtímis, horfir bara á aðra þeirra en hin situr vandræðaleg, reynir að vera áhugasöm og hluti af samræðufyrirkomulaginu en sá sem talar sér bara þann sem hann byrjaði að negla augun í. Dæmi um þetta: Ómar Ragnarsson í viðtali við formenn flokkana og hann startaði á föstudagskvöldið. Sigmar og Brynja töluðu við hann en Ómar hafði neglt sig á Simma og þar tókst honum að ríghalda augnkontakt nánast frá byrjun til enda.
4. Karlkyns fæðingarlæknar sem beygja sig niður að konu í barnsnauð þegar hún veinar af sársauka og segir óþolinmóður: "Svona kona, þetta er ekki svona sárt". Hann nottla búinn að fæða sjálfur heila örbirgð svona prívat og persónulega og talar af reynslu. Fæðingar hans hafa farið fram í gegnum lestur bóka í læknanáminu.
5. Fólk sem grípur inn í ef maður er að bisa við eitthvað og segir "ég skal gera þetta" og týnir eða skemmir það sem maður var að reyna að laga/breyta/skrúfa/negla/bora/hræra/skrifa osfrv.
6. Vörur í Stórmarkaðnum sem eru í efstu og næstefstu hillu og enginn stigi á staðnum. Er ætlast til að maður kaupi þær eða eru þær til skrauts?
7. Jólalög sem voru einu sinni sumarlög í útlöndum (Bjöggi með ítölsku lögin t.d.). Andstyggilegasta dæmið er "litla jólabarn" eða "lille sommerfugl".
8. Fólk sem er rosa pirrað en heldur því í sér og spyr mann bjánaspurningar. Maður finnur geðveikina sem ólgar í viðkomandi fer í dálitla vörn, röddin hækkar smá og maður flýtir sér rosalega að svara og þá segir sá pirraði með ýkt trylltri röddu "af hverju ertu svona ROSALEGA pirruð?". ARG
9. Þegar maður missir eitthvað úti í roki, það fýkur og maður hleypur og er að ná því og alltaf á því stigi, alltaf sko, þá fýkur dótið lengra. Getur tekið tímana tíu.
10. Þegar fólk horfir á mann skera af sér puttann við salatgerðina, blóðið fossar og skvettist upp um alla veggi og beinir orðum sínum til manns þar sem maður liggur nær dauða en lífi úr sársauka "meiddirðu þig?".
Klóraði smá í yfirborðið. Soldið gaman svona sérstaklega að kvöldi til þegar maður á að fara að sofa að rifja upp svona skemmtilegheit. Blóðþrýstingur og sykur upp úr öllu valdi. Hjartað í yfirvinnu og slagæðin á hálsinum hamast eins og stórfljót og hún sést utanfrá sem btw er eitt af því sem er eitur í mínum beinum.
Gúddnæt!
Sunnudagur, 29. apríl 2007
SNEMMA BEYGÐIST KRÓKURINN
Var í einsemd minni að glugga í bók í kvöld sem inniheldur sögur af gyðjum og konum. Þar var ég að lesa um tunglgyðjurnar þar sem bent er á að tunglið hafi alveg sérstaka þýðingu í gyðjusögunum. Kvartilaskipti tunglsins líkjast bæði tíðahring konunnar og hinum þremur aldursskeiðum hennar (nýtt tungl táknar meyjuna, fullt tungl hina þroskuðu konu og minnkandi tungl er tákn hinnar vitru konu sem er þá ég ofkorse).
Ég rakst á þessa gömlu þjóðsögu á sanskrít um sköpunina á konu og manni í áðurnefndri bók og þar fékkst tvennt á hreint. Við vitum núna hvaðan "you can´t live with them, you can´t live without them" er sennilega komið og að það hefur loðað svolítið við karlmenn gengum tíðina að reyna að skila sinni heittelskuðu heim til föðurhúsanna eins og gallaðri vöru séu þær ekki almennilega til lags.
"Þegar skaparinn skapaði manninn skapaði hann um leið konuna úr bogalínum tunglsins, lipurð eðlunnar, léttleika laufanna, gráti skýjanna, grimmd tígursins, mjúkum yl eldsins, kulda snævarins og blaðri skrækskaðans. Síðan gaf hann karlmanninum hana. Á þriðja degi kom maðurinn til Drottins allsherjar og sagði: "Þessi kona sem þú gafst mér blaðrar í sífellu, hún lætur mig aldrei í friði, krefst mikillar athygli, tekur allan tíma minn, grætur út af engu og gerir aldrei neitt. Taktu hana aftur". Drottinn gerði það. En skömmu síðar kom maðurinn aftur og sagði: "Hún var vön að dansa og syngja fyrir mig, hún sendi mér svo fallegt augaráð og hún naut þess að leika sér, hún þrýsti sér að mér þegar hún var hrædd, hlátur hennar var eins og tónlist og hún var svo falleg. Láttu mig fá hana aftur". Drottinn gerði það. Á þriðja degi kom maðurinn aftur með konuna og bað Drottinn að eiga hana. "Nei" sagði hann "þú getur ekki lifað með henni og ekki án hennar þú verður að ráða fram úr þessu sjálfur"."
Hm... gæti hafa gerst í gær "eller hur"?
Lofjúgæs
P.s. Smá hugleiðing eftir að ég las þjóðsöguna. Sko þetta er upphaf mannsins. Guð skapar manninn og svo konuna og gefur karlinum konuna síðan að gjöf. Fékk konan ekkert?
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 01:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Laugardagur, 28. apríl 2007
SVO KRÚTTLEGT EITTHVAÐ!
Svo dúllulegur gjörningur niðri við Tjörn í dag. List án landamæra. Það þarf bara 1000 sálir til að dekka hringinn í kringum Tjörnina.
![]() |
Tekið höndum saman umhverfis Tjörnina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Laugardagur, 28. apríl 2007
SVONA FÓR UM SJÓFERÐ ÞÁ
Í dag ætlaði ég í heimsókn í konsningamiðstöð VG og ég ætlaði að kjósa. Hvorugt gerði ég en það er út af því að ég þekki of mikið af skemmtilegu fólki sem er alltaf heimsækjandi mig í tíma og ótíma (). Ég var að passa Jenny í nótt og við fórum út á róló í morgun og lékum okkur í vorinu og Jenny sagði mér að hún væri alltaf glöð og að maður ætti alltaf að skiptast á. Ég þekki marga sem mættu taka sér félagsþroska þessa tveggja ára barns sér til fyrirmyndar. Hún knúsaði mig líka í morgun þegar hún vaknaði af því henni finnst svo gaman að það skuli alltaf renna upp nýr dagur og þegar ég þakkaði henni fyrir sagði hún mér að hún væri "umsyggjusöm". Barnið stefnir fullum fetum í að verða gangandi stefnuskrá vinstri-grænna.
Nú að gestunum. Hér var fólk í stríðum straumum í dag. Sænski tengdasonur minn hann Erik pabbi Jenny að ná í hana. Helga dóttir mín og Jökull barnabarn, þrjár vinkonur sem komu allar í einu og fylltu út í eldhúsið með fyrirferðarmikilli nærveru sinni (ég meina andlegri fyrirferð, er ekki að segja að þær séu feitar) og gerðu það að verkum að ég fór ekki lönd né strönd. Rosalega pírí að vera svona vinsæll. Þær eru hins vegar líka örlítið skemmtilegar. En bara örlítið.
Það sem gerði þennan dag þolanlegan var að gestirnir voru Vinstri-grænir og Samfylkingarfólk. Þannig að það myndaðist smá kosningastemming í eldhúsinu en við greiddum ekki atkvæði.
Enginn úr Framsókn kom í heimsókn frekar en alla aðra daga og ekki neinir Sjálfstæðismenn heldur. Mamma og pabbi voru í Kolaportinu.
Hef ekki kynnst neinum í Ómarsflokki og ekki heldur neinum nema elskunni henni Ásthildi úr Frjálslynda og hún komst því miður ekki.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Laugardagur, 28. apríl 2007
VG PLÚS NÍU
Það er svo sannarlega byr í seglum vinstri manna þessa dagana. Samkvæmt nýrri könnun sem Capacaent gerði fyrir Mbl. og Ríkisútvarpið er VG og SF með jafnmikið fylgi eða 21,2%. Þetta segir þó ekki alla söguna. Ef þetta væri staðan þegar talið væri upp úr kjörkössum bættu VG við sig níu mönnum en SF tapaði sex. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 31,9% og Framsókn 10%.
Ég er að láta mig dreyma um að bæði VG og SF bæti nú vel við sig. Væri ekki draumur ef þessir tveir flokkar næðu að mynda ríkisstjórn bara sísvona án annara bragðefna.
Nú er að moða úr frjóum jarðvegi við VG þessa daga sem eftir eru fram að kosningum. Ég minni á Sprotatorgið sem veriður í kosningamiðstöðinni við Grensásveg í dag milli 13-17.
Framsókn er að tapa stórt en þeir fengu sex þingmenn en skv. þessu þá myndu þeir tapa jafnmörgum.
Úje hvað þetta er að verða spennandi.
![]() |
Fylgi Samfylkingar og VG jafnmikið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 28. apríl 2007
HVERT ER LJÓÐSKÁLDIÐ?
Vegna fjölda áskorana (hm) hef ég verið beðin um að koma með aðra "hver er mannveran?" getraun. Í þetta skiptið er ekki verið að fíflast. Þessi kona hefur gefið út ljóð á bók. Hún elskar kántrítónlist, bloggar hér á moggabloggi af og til og er brjáluð í ís. Hún er sem sagt skáld, tónlistarunnandi, móðir og fædd í meyjarmerkinu. Þeir sem blogga hér hljóta að kannast við gripinn. Verðlaunin eru ferð í Sundhöll Reykjavíkur.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 01:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Föstudagur, 27. apríl 2007
AF REYK, SVEFNI OG ATKVÆÐAGREIÐSLU
Þessi er ein af mínum uppáhalds kerlingum. Kannski af því ég er enn reykjandi. Jabb ætlaði að hætta 26. apríl á afmælisdegi húsbandsins en við gleymdum því bæði. Nú verðum við að hætta sama dag að ári. Hehe. Það er samt merkilegur fjári að kona skuli geta gleymt því að hún ætli að hætta að reykja. Eins gott að ég gleymdi ekki að fara í meðferðina í fyrra. Þá hefði ég nefnilega ekki fengið tækifæri til að drepa í ég væri dauð.
Ég bloggaði í dag um að ég hafi sofið yfir mig. Til klukkan 13,00 hvoki meira né minna. Dagurinn hefur verið dálítið í merki kerlingarinnar á myndinni. Smá öfugsnúinn og pirringslegur. Þegar ég vaknaði þarna seint og síðarmeir rifaði rétt svo í augun á mér og það var hægt að lesa aldurinn upp á dag í árhringjunum sem höfðu myndast undir augunum. Ég átti erfitt með að hreyfa mig og gera það sem ég þurfti að gera. Ég er með Jenny Unu Errrriksdótturrr og hana Ástrósu skádóttur mína til gistingar en það er hún Ástrós sem hendist með mér um allt blogg á myndinni minni. Núna í kvöldkyrrðinni þegar miðnættið nálgast er ég að vakna. ´
Ég fer og kýs utankjörstaðar á morgun. Svo ætla ég á kosningaskrifstofu VG við Grensásveg líka en þar er skemmtileg uppákoma sem kallast Sprotatorg á milli 1-5. Fullt af skemmtilegu fólki, vöfflur, músik, ljóð og fleira dúndur. Nú á að gíra sig upp fyrir kosningar. Ég tek Jenny með mér en hún fær ekki barmmerki og verður ekki heilaþvegin.
Síjúgæs
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 23:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Föstudagur, 27. apríl 2007
HELGI SELJAN!! SKAMMASTÍN!
Alveg finnst mér forkastanlegt þegar fréttamenn eru að ganga svona á fólk. Eins og Helgi Seljan í Kastljósinu bæði í dag og svo aftur í dag þegar hann var að reka fréttanefið á sér í einkamál hennar Jónínu Bjartmarz. Það er nottla einkamál konunnar að tengdadóttir hennar fékk íslenskan ríkisborgararétt vegna sérstakra aðstæðna eftir 15 mánaða dvöl í landinu á takmörkuðu námsdvarlarleyfi. Meiri heimtufrekjan í fréttamanninum. Enda var Jónínu misboðið og það all herfilega. Konan er bara venjulegur ráðherra. Heldur fólk að hún ráði einhverju? Nebb og hvernig eiga vinnufélagar hennar að vita að hún eigi eiginmann, hvað þá heldur börn og tengdadóttur. Heldur einhver að það takist með fólki einhver kynni þarna niðri í Alþingi? Ó nei ekki frekar en á Kárahnjúkum en þar þekkist nottla enginn. Iss. Þetta er nú meiri fréttamennskan.
Takk fyrir Kastljós og sérstaklega þakka ég þér Helgi Seljan fyrir að láta ekki þagga niður í þér.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 20:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Föstudagur, 27. apríl 2007
FIMM VILLURÁFANDI SÁLIR EI MEIR
Eins og ég blogaði um fyrr í dag þá biðu mín fimm símtöl þegar ég staulaðist á fætur. Ég hringdi samviskusamlega í hringjendur og allir þessir vinir mínir ætluðu að segja sig úr þjóðkirkjunni með sama. Mér fannst það ekki leiðinlegt. Síminn hefur ekki stoppað og öllum er heitt í hamsi og ég tek það fram að mín fjölskylda ásamt vinum eru ekki upp til hópa trúlausir efahyggjumenn. Venjulegt fólk með snefil af víðsýni er bara nóg boðið. Að segja sig úr þjóðkirkjunni er einfaldlega gjörningur sem við getum framið til að sýna að okkur hugnast ekki viðhorf kirkjunnar manna þessa dagana.
Nóg sagt.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.8.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 43
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
draumur
-
jonaa
-
hronnsig
-
larahanna
-
skessa
-
eddaagn
-
amman
-
annabjo
-
annambragadottir
-
annaragna
-
asthildurcesil
-
kolgrima
-
birnan
-
bjarnihardar
-
brjann
-
brylli
-
christinemarie
-
danjensen
-
lillagud
-
disadora
-
einari
-
einarorneinars
-
emm
-
estro
-
evabenz
-
fifudalur
-
garun
-
gelgjan
-
gunnarggg
-
halkatla
-
halo
-
hildurhelgas
-
heidah
-
helgamagg
-
hildigunnurr
-
iaprag
-
hlynurh
-
hugarfluga
-
hugsadu
-
ibbasig
-
katrinsnaeholm
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jara
-
jensgud
-
katlaa
-
krummasnill
-
krissa1
-
lehamzdr
-
ktomm
-
laufeywaage
-
lauola
-
lindalinnet
-
madamhex
-
maggij
-
majaogco
-
mariakr
-
markusth
-
meistarinn
-
motta
-
nimbus
-
olinathorv
-
pollyanna
-
ragnarfreyr
-
ragnhildur
-
ringarinn
-
rosa
-
roslin
-
saedis
-
sailor
-
salkaforlag
-
skordalsbrynja
-
skrifa
-
snar
-
soley
-
steingerdur
-
steinnhaf
-
steinunnolina
-
stinajohanns
-
sunnadora
-
svetlana
-
thuridurbjorg
-
tibet
-
tigercopper
-
toshiki
-
unns
-
valgerdurhalldorsdottir
-
wonderwoman
-
vefritid
-
vest1
-
bidda
-
zeriaph
-
killjoker
-
sisvet
-
gudrununa
-
dora61
-
possi
-
gelin
-
silfri
-
jyderupdrottningin
-
gretaulfs
-
sibba
-
baldvinj
-
stjaniloga
-
bokakaffid
-
kreppukallinn
-
jonerr
-
gerdurpalma112
-
adhdblogg
-
astafeb
-
snjolfur
-
haddih
-
brell
-
reisubokkristinar
-
little-miss-silly
-
baldis
-
olofdebont
-
kikka
-
jarnar
-
thorolfursfinnsson
-
birnast
-
vrkristinn
-
leifur
-
astroblog
-
bjarkey
-
manisvans
-
siggisig
-
nordurljos1
-
gunnaraxel
-
ragnar73
-
sij
-
kreppu
-
runirokk
-
gotusmidjan
-
dorje
-
slembra
-
skari60
-
must
-
fhg
-
aevark
-
fridaeyland
-
hedinnb
-
cakedecoideas
-
taraji
-
audurproppe
-
kollakvaran
-
finni
-
arnaringvarsson
-
samstada
-
drum
-
gretarogoskar
-
tbs
-
vistarband
-
valdivest
-
fingurbjorg
-
gustichef
-
skulablogg
-
andreskrist
-
fasteignir
-
rognvaldurthor
-
helgatho
-
gullfoss
-
bailey
-
jennystefania
-
gattin
-
annaandulka
-
ansy
-
gumson
-
berg65
-
bjarnimax
-
brahim
-
elin
-
gudlaugbjork
-
dramb
-
gudrunkatrin
-
hvilberg
-
himmalingur
-
ingaragna
-
naflaskodun
-
kiddirokk
-
sigurborgkrhannesdottir
-
joklamus
-
stjornlagathing
-
saemi7
-
unnurgkr