Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Lífstíll

PIRRINGSBLOGG

28

Loksins þegar fjárans sumarstarfsmaðurinn spáir almennilega fyrir mér þá vantar mikilvægan hluta minna dásamlegu eiginleika í fj.. spána.

"Steingeit: Þú ert sérlega næmur, skilningsríkur og samúðarfullur við fólkið sem þú elskar - og líka við það sem þú þekkir varla. Það er þitt framlag til friðar á jörðu"

Ég viðurkenni að ég hef verið að bíða eftir viðurkenningu veraldarinnar á framlagi mínu til heimsfriðar, ásamt öðrum viðurkenningum sem ég á skilið.  Loksins kom örlítil viðurkenning á því að ég er dásamleg manneskja.  Betri en flestar aðrar.  Fullkomin eiginlega.  En af hverju í andskotanum stendur ekkert um hversu hógvær og lítillát ég er?  Ha??

Æmabát2börst!


LATERNA MAGICA

1

Ein af flottustu og eftirminnilegustu kvikmyndaleikstjórum í heimi, Ingmar Bergman er allur.  Það er svo sem ekki neitt sjokkerandi við það, maðurinn orðinn 89 ára gamall.  Bergman hefur alltaf heillað mig, myndirnar hans og hann sjálfur sem karakter.

Þegar sjálfsævisaga hans kom út í Svíþjóð (Laterna Magica), var ég snögg að fjárfesta í henni.  Maðurinn var hreint ótrúlega litríkur karakter.  Hann var opinn og víðsýnn listamaður en alveg ótrúlega erfiður sjálfum sér í hinum smærri hlutum.  Ekki að maður kannist ekki við það.

Í bókinni Hrafninn flýgur, segir Hrafn Gunnlaugsson, skemmtilega frá kynnum sínum af Bergman. 

Eitt sinn skal hver deyja, þannig er nú það. 

Nú fer ég og les bókina hans einn ganginn enn. 

 Langt síðan að ég hef horft á Fanny og Alexander, best að leigja hana fljótlega.

Ójá.


mbl.is Ingmar Bergman látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í DAG ÆTLA ÉG AÐ..

 

..að fréttablogga með mínu nefi ef eitthvað kemur í fréttunum sem mér finnst athygli vert.

..búhúblogga ef ég verð rosalega viðkvæm eða leið.

..fíflablogga ef fíflaandinn tekur sér bólstað í mér eins og hann gerir stundum.

..reiðiblogga ef það fýkur snögglega í mig.

..tuð- og hneykslisblogga ef fólk leyfir sér að blogga öðruvísi en mér er þóknanlegt (þennan má taka með fyrirvara, þar sem fíflaandinn réðst á mig rétt í þessu og tók stjórnina).

..gleðiblogga við öll tækifæri, sjálfri mér til sælu og ánægju.

..snúrublogga ef ég þarf að sinna bataferlinu.

..yfirhöfuðblogga ef mér dettur það í hug.. OG..

Ég ætla að láta mér í léttu rúmi liggja ef einhver ætlar að kafna úr ergelsi yfir bloggaðferðum mínum.

Samningur gerður við almættið í morgunsárið, af gefnu tilefni. 

Ég,

öll að koma til

Súmí.


AÐ BREGÐAST VIÐ VONDUM FRÉTTUM

 

Það er misjafnt hvernig við bregðumst við válegum tíðindum.  Þegar barnabarnið mitt lést fyrir 10 árum síðan sló ég frá mér í blindri reiði og hjálparleysi.  Það var mín aðferð, þá.

Sumir skjóta sendiboðann.

Aðrir reyna að draga úr áhrifunum með því að tóna sig niður.

Sumir þegja og hugsa sitt.

Allt af þessu er leyfilegt.  Illgirni er það hins vegar ekki.

 

Stundum er ég alveg fáránlega viðkvæm.

ÉG SNÆÐI LOPAPEYSUNA MÍNA..

..ef það er rétt að verið sé að borga meðlimum "Saving Iceland" fyrir að mótmæla.  Það er einfaldlega of ótrúlegt til að vera satt.  Ætli maður færi þá ekki í vinnu við að mótmæla nokkra tíma á dag til að ná sér í aukapening?  Mér finnst þetta full lygilegt fyrir minn smekk.

Nú krefjast samtökin að fréttastofa RÚV birti sannanir fyrir aðdróttunum sínum um að mótmælendur þiggi fé fyrir mótmæli og handtökur, að því er segir í tilkynningu frá samtökunum í gær.

Ég hef ekki verið neitt sérstaklega hrifin af framgangsmáta þessara samtaka undanfarið, þ.e. þegar þeir hafa verið að framkvæma eignaspjöll og þar fram eftir götunum, en ég hef ekki nokkurn hlut á móti því að þeir mótmæli.  Umhverfismál eru engin einkamál hvers lands fyrir sig.  Þau koma öllum heiminum við.

Ég á reyndar ekki lopapeysu, en mun fjárfesta í einni slíkri og snæða hana ef þetta fólk er á launum við mótmælaaðgerðir.

Bætmí.


mbl.is "Saving Iceland" krefur RÚV um sannanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SVÖRT HELGI

 

Tveir menn hafa fallið í valinn um þessa helgi.  Annar í umferðarslysi og hin var myrtur á kaldrifjaðan hátt, hreinlega tekinn af lífi um hábjartan daginn í borginni.  Ég er bara svo óendanlega hrygg.

Ég sendi aðstandendum beggja mannanna samúðarkveðjur.

En hvað er svosem hægt að segja?  Mig setur hljóða.


mbl.is Maðurinn sem varð fyrir skotárás í Reykjavík er látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SLÆM BYRJUN Á SUNNUDEGI

 

Enn eitt dauðaslysið í umferðini  varð í gærkvöldi við í Minni-Borg í Grímsnesi.  Ökumaður bifhjóls féll af hjóli sínu í árekstri við jeppa.  Maðurinn var látinn við komuna á háskólasjúkrahúsið í Fossvogi.

Umferðin hefur enn einu sinni tekið sinn toll.

 


mbl.is Banaslys á Biskupstungnabraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÉG HEYRI PENINGAHRINGLIÐ..

1

..á íslenskum ferðamannastöðum á Íslandi ef gjaldtaka að vinsælustu stöðunum verður einhvertímann að raunveruleika. 

Er ekki staðreynd af hvergi á byggðu bóli sé dýrara að ferðast en hér?  Mér finnst að á meðan það kostar hvítuna úr augunum á fólki að komast hingað og fara um, þá sé nú ekki alveg tímabært að láta á þetta reyna. 

Peningar eru ekki allt, ekki alveg a.m.k.

Venæmrætæmræt!


mbl.is Gjald inn á ferðamannastaði raunhæft
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SUMIR VILJA EKKI EINKALÍF

 

1

Ný upplýsingatækni auðveldar einka- og opinberum aðilum að fylgjast með einstaklingum og skapar hættu á að persónulegar upplýsingar séu misnotaðar, segir Haukur Arnþórsson, stjórnmálafræðingur.

Ég er sammála því og finnst ógnvekjandi hvernig upplýsingasamfélagið kreppir stöðugt að einkalífinu og gengur nærri persónu fólks.

Ég hef hins vegar reynslu af fólki sem var beinlínis á móti einkalífi og þröngvaði sér inn í líf mitt.  Já inn í mitt líf, alveg sárasaklausri.  Þegar ég bjó á Laugaveginum, bjó ég á annarri hæð.  Laugavegurinn er ekki breiðgata, eins og allir vita og í sömu hæð í húsinu á móti, bjó lengi vel, kunningjakona mín og hún hafði dregið fyrir á kvöldin.  Ég var með tölvuna mína við gluggann og sat gjarnan á kvöldin og vann.  Nýju nágrannarnir voru gluggatjaldalausir og ég sá bæði inn í stofu og svefnherbergi.  Ef ég leit upp þá blasti við klámmyndasýning á veggjskjánum og þau alsber og stundum með jafn alsbera gesti í heimsókn.  Þetta var í fullum litum, ekkert dregið undan og við látum þá lýsingu nægja.  Ég var nokkuð snögg að fá mér rúllugardínur, en ég get svarið það, þetta gekk svona á nánast hverju kvöldi og það voru þarna dagar sem ég kom ekki nálægt tölvunni og hélt mér hinum megin í íbúð vegna sjónmengunar.

Konan á hæðinni fyrir ofan var neydd á sömu kvöldsýningar og það voru rúllugardínukaup á forgangslista á því kærleiksheimili líka.

Sumir vilja ekki einkalíf, það þarf a.m.k. ekki að hafa áhyggjur af þeim.  Það er fólk eins og ég og fleiri sem brjálumst við tilhugsunina um myndavélar út um allt.  Svo maður tali ekki um míkrófóna og hvað þessi apparöt öll nú heita.

Kræst! 


mbl.is Upplýsingatækni ógn við einkalífið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

LAUGARDASANNÁLL..

 1

..eða framhald frá því rétt fyrir kvöldmat.  Hér er búið að vera mikið stúss og mikil gleði.  Jenny Una Errriksdóttirrr er búin að borða franskar kartöflur (bara svona smá trít), ís og pínulítið nammi (samt aðeins meira en móðirin sagði til um, ussss), hún er búin að fara í bað og leika sér helling og að lokum lásum við eina Emmubók og eina Alfons Åberrrrgbók (Einar Áskel).  Það var mikið rætt um hvort hamarrrinn sem Alfons dúndraði á puttana á sér hefðu framkallaðar miklar blæðingar úr fingri pilts.  Eins og allir vita þá er Jenny Una sérstök áhugamanneskja um blóð, sko það blóð sem sleppur óforvarandis leiðar sinnar þegar göt koma á líkamann, eins og þegar Emma dettur og Alfons Åberrrg ber á fingur sér.  Eftir lesturinn var rabbað heilmikið um plástra.  Kisuplástra, bangsaplástra og andrésarplástra.  Litir og lögun sömu plástra bar líka á góma.

Nú sefur Jennslubarnið með hönd undir kinn, með slatta af tuskudýrum í kringum sig og hún er bara fallegust.

Ójá.

 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.9.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2988574

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband