Færsluflokkur: Vefurinn
Miðvikudagur, 27. febrúar 2008
Nú fæ ég mér lögfræðing, það er á hreinu.
Nú er hægt að hagnast á öllum ærumeiðingunum sem maður hefur fengið í athugasemdakerfið sitt. Ég hef falið þær ljótustu með persónulega skítkastinu og lokað á IP-tölurnar. Gott mál.
Nú er búðið að dæma talsmanninum skaðabætur vegna meiðyrða sem um hann voru höfð á blogginu.
Vó hvað þetta gæti orðið til þess að kona kæmist í almennilegt sumarfrí!
Á lúxussiglingu í Karabískahafinu með húsbandi. Eða til Kúbu OG Kína.
Þetta eru pjúra tekjumöguleikar.
Svo mikið af löffum í kringum mig. Bara að velja.
Úje og það er sko liff í þessu.
Fimmtudagur, 14. febrúar 2008
"Stormasamt" samband fullorðins manns og 10 ára drengs! Hvað þýðir það?
Þvagleggsdómurinn hefur dæmt fertugan karlmann í mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að slá 10 ára gamlan stjúpson sinn í andlitið, í tjaldútilegu í fyrrasumar. Drengurinn marðist á andliti og fékk blóðnasir.
Þetta er flott, þó dómurinn sé ekki merkilegur en þá finnst mér það vera töluverð tímamót að högg í andlit á barni, framkvæmdu af forráðamanni skuli dæmt refsivert.
Það hefur nefnilega lengi verið til siðs á Íslandi að líta á það sem einkamál foreldranna hvort þau slái (dangli í er það oft kallað) börn sín.
"Fram kemur í dómnum, að maðurinn var mjög ölvaður þegar þetta gerðist og sagðist ekki muna eftir að hafa slegið drenginn. Einnig kom fram að samband mannsins og drengsins hafði oft verið stormasamt en drengurin er greindur ofvirkur."
Af fenginni reynslu, bæði gegnum atvinnu mína og í kynnum við fólk, þá veit ég að það liggur sorgarsaga að baki þessari litlu frétt. Stormasamt samband milli fullorðinnar manneskju og 10 ára drengs? Hvað þýðir það nákvæmlega? Það er talað um þá tvo eins og jafningja sem standa í erjum. Hver er saga barnsins og hvað á að gera til að að kanna aðstæður hans og bæta úr þeim?
Hann á kröfu á því barnið, frá fullorðna fólkinu sem ber ábyrgðina.
Mikið djöfull verð ég reið.
ARG.
![]() |
Sló stjúpson sinn í andlitið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 14. febrúar 2008
Millan að bresta á
Kæru lesendur, aukið sjálfsánægju mína og takið þátt í þessari dásamlegu upplifun minni af sjálfri mér. Millan er að slá inn í dag. Viljið þið ekki verðlaun ódámarnir ykkar? Kvitta og setja teljaratölu með. Það eru alvöru verðlaun í boði fyrir þann sem næst kemst.
Og þau eru enginn sviðakjammi eða annar viðbjóður.
Milla í flettingar á innan við ári er stórvirki.
Guð ég myndi kyssa mig ef ég væri ekki ég sjálf.
Lalalalala
Komasho
Miðvikudagur, 13. febrúar 2008
Vondi og asnalegi dagur
Hefði með réttu átt að vera flottur dagur í mínu lífi, ný sjálfrennireið keypt til heimilisins, eitt og annað borgað, ég byrjuð að undirbúa allskyns framkvæmdir í mínu eigins eldhúsi og þá hviss bang.
Ömurlegur dagur tróð sér inn í líf mitt gjörsamlega óforvarandis. Róleg enginn veikur.
Ónýtur var hann, fyrir mér að minnsta kosti. Nei, þið fáið ekki að vita af hverju fyrr en allt er yfirstaðið, seinna sem sé, en takið orð mín fyrir því að hann var í verri kantinum.
Og hvað gerir maður eftir að hafa grenjað úr sér augun, rifist við alla sem maður nær til, gengið um með skeifu (þetta hljómar eins og sjálfsháð en mér er dauðans alvara). Jú maður sast einhversstaðar með sjálfum sér og starir út í loftið.
Svo var loftið orðið þreytandi og þá fór ég að fletta Fréttablaðinu frá því í gær og í því stóð eiginlega bara :"Axla ábyrgð" og svo var eitthvað að smáorðum með til uppfyllingar. Nú í leiðindum mínum og sálarkvölum fór ég að telja öxluðu ábyrgðirnar og lausleg talning sýndi 45 stykki.
Ég komst að því að ég er með illvígt ofnæmi fyrir þessum frasa.
Tillögur að nýjum ábyrgðum án axla óskast.
Dæmi:
Ég ösla ábyrgð upp að brjóstvörtum.
Ég veð ábyrgð upp að eyrum.
Ég hoppa hæð mína í ábyrgð.
Ég legg æru mína að veði fyrir ábyrgð nei gleymum þessum.
Ég aulýsi sem sagt eftir tillögum.
Svo megið þið senda mér fallegar kveðjur, ef þið nennið.
Getur aldrei skaðað.
Lovejúgæs
Þriðjudagur, 12. febrúar 2008
Næ ég milljón fyrir 26. febrúar?
Mér varð svona rétt litið á teljarann minn í bríaríi, (sem ég geri næstum því aldrei, hehemm) og þá blasir við að flettingar á þessu tæpa ári sem ég er búin að blogga eru orðnar 993 þúsund og eitthvað. Sem sagt millan næsta. Nú er spurning????? Næ ég milliunni fyrir 26. febrúar, á árs bloggafmælinu mínu? Það væri flott. Annars er mér svo sem sama, jeræt. Sko þið lufsurnar ykkar sem eruð hér inni eins og gráir kettir að fylgjast með gleði minni og sorgum, ábyrgðaröxlun, niðurdragningu, upphafningu, sjálfsdýrkun, hörmum, sækóköstum og öðrum karakterútspilum mínum, hvort þið hjálpið mér ekki við þetta lítilræði.
ÞAÐ ERU VERÐLAUN Í BOÐI FYRIR ÞANN SEM NÆST KEMST MILLUNNI og það verður engin Sómasamloka, eða pulsa með öllu nema lauk, remúlaði, hráum og rauðkáli.
Það verða verðug verðlaun. Millunni á að ná sem lengst fyrir afmælisdag.
Komsoho. Flettí, flettí, flett.
Lífið er frábært.
Úje
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 21:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (42)
Þriðjudagur, 12. febrúar 2008
Vei, vei, hér sé stuð út í eitt!
Útlegð minni úr eldhúsinu, með lappan er hér með lokið. Óþægilegi eldhústólinn verður ekki notaður nema á matmálstímum og ég hef nóg pláss fyrir sígó, vatn og kaffi. Svo má ekki gleyma kókinu. Ég er mjög þyrst týpa. Líka eftir að það rann af mér.
En hvað maður er fljótur að venjast nýjum hlutum. Borðtölvan virkar svo hryllilega klossuð og stór, eins og hún er nú fagurlega hönnuð og af fínustu og bestu gerð, og ég á í mesta basli með lyklaborðið, en ég verð nú ekki lengi að kippa því í liðinn.
Nú er ég laus við að vera með hausinn upp í skjánum, af því stafirnir í þessari eru af eðlilegri stærð fyrir konu á mínum aldri og ég mun sennilega hætta að lenda í illdeildum við bloggvini mína af því ég misles þá stöðugt (smá ýkjur svona).
Ekki má gleyma öllu myndasafninu mínu, sem ég hef komið mér upp, mér þykir nefnilega smá gaman stundum að myndskreyta færslurnar mínar.
Ég lokaði á IP-tölu eins Moggabloggara í dag og það var góð tilfinning. Sumir eiga ekki erindi inn á bloggsíður manns enda allt löðrandi í bloggum hér á Mogganum, að velja um. Er nokkuð brostinn á rosa fjöldaflótti?
Ég fékk viðurstyggilega góðar fréttir í dag, en þær eru leyndó, enn sem komið er, svo þið fáið bara forvitnina til að orna ykkur við. Nananabúbú.
Lífið er gott í borginni ef þú ert ekki sjálfstæðismaður í sorginni.
Úje - újeje
Later
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 17:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
Mánudagur, 11. febrúar 2008
Moggastræk - á kona að hlaupa eða ekki?
Það sést undir iljarnar á hverjum bloggaranum á fætur öðrum út af bévítans auglýsingunni margnefndu. Margir bara farnir. Púmm. Hurðum skell, þung orð látin gossa. Sumir á ný bloggsvæði, aðrir heima í verkfalli, hvað veit ég?
En hvað með mig, ég blogga eins og mófó, ég sem alltaf er svo hrifin af stærkum, mótmælagöngum, réttindabaráttum og afdráttarlausri fyrirlitningu á auglýsingum, eins og sannri vinstri konu sæmir?
Þegar ég sá auglýsingarfjandann fyrst, inni á síðunni minni, fauk nú heldur betur í mig, skrifaði Árna Matt, heimtaði skýringar, prósentur og ég veit ekki hvað og hvað.
Nú ég fékk svar um hæl, með skýringum sem ég er ekkert endilega sátt við, en ég ákvað í beinu framhaldi eftirfarandi.
1. Að ég er vanafastur tækifærissinni, þegar kemur að blogginu (og í öðru samhengi líka, að sjálfsögðu). Mér finnst þetta vera mitt blogg, þó að Mogginn hafi tekið sér leyfi til að auglýsa á því, án þess að bera það undir mig eigandann.
2. Mér þykir undurvænt um síðuna mína (sem er strangt til tekið ekki mín en so fucking what?) og hef ekki nokkra löngun til að blogga á einhverju öðru bloggsvæði, sem er ekki eins heimilislegt og þetta.
3. Moggabloggið er notendavænt, og aðgangur að öðrum bloggurum greiður.
4. Mér þykir vænt um flesta meðbloggara mína, fyrir utan þessa örfáu sem ég hef skömm á og mættu blogga á grænlensku bloggsvæði mín vegna.
5. Svo vona ég að þeir sem stukku, sakni okkar svo skelfilega að þeir komi til baka einn af öðrum.
6. Ég er til í alls konar stræk, önnur en þetta. T.d. er ég til í að standa úti manndrápsgaddi til hagsbóta fyrir öryrkja og aldraða eða til að sýna fyrirlitningu mína á ákvörðun Villa villta og jafnvel gegn hækkuðu matarverði og reykherberginu í Alþingishúsinu, svo dæmi séu tekin.
Annars verð ég hér í hlýjunni á mínu eðalbloggi, með Nova auglýsingu blikkandi við hliðina á mér,en minn heittelskaði segir mér reglulega að ég sjái það sem ég vilji sjá og heyri það sem ég vilji heyra, þannig að þetta verður no prob.
Áddni, ekki reyna að bæta við auglýsingaörðu inn á síðuna mína, því þá súa ég þig honní.
Tækifærisnefndin í góðum fíling.
Súmíædíæsörvitt!
Úje
P.s. Bara svona ábending. Ég ber fulla og óskorðaða virðingu fyrir þeim sem stræka, endilega sýnið okkur sem gerum það ekki hið sama. Manni fer að líða eins og liðhlaupa sem hefur ekki hlaupið af stað með herdeildinni. Ef það er hernaðarlega mögulegt.
Lovfjúgæs
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 21:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (37)
Fimmtudagur, 7. febrúar 2008
Ljótasti staðurinn á jarðríki
Hún var tæpra tíu ára, stelpan sem valhoppaði heim úr skólanum, um hádegisbilið. Þetta var upp úr miðri síðustu öld. Heima beið amma með matinn en afi var á sjónum.
Það var vor í lofti, svona parísvor, snú-snú og sippvor, rétt handan við hornið.
Sú stutta fauk inn um dyrnar, snarstoppaði, því þar stóð ókunnugur maður, sem var að setja nýjan vask í eldhúsið. Amma sat á sínum venjulega stað við borðið og sagði henni að koma að borða.
Maðurinn gekk brosandi að telpunni, spurði hana nafns, rétti út faðminn og þrýsti henni að sér. Hún vissi ekki hvað það var sem gerði það að verkum að hana langaði að hlaupa langt út í buska, en hann gerði eitthvað ljótt, nuddaði henni upp að sér og brosti allan tímann. Svo sleppti hann telpunni, blikkaði hana, eins og þau ættu saman oggulitið leyndarmál. Svo hleypti hann henni fram hjá sér inn í eldhús.
Öruggu veröld stúlkunnar hafði verið svipt á brott í einu vetfangi og hún hafði ekki einu sinni vit né orð til að skilgreina þetta ljóta sem hafði sest í sálina hennar og breytt vorinu í ískalt skammdegi. Hún vissi bara að aldrei yrði neitt skemmtilegt framar.
Hún sat álút yfir matnum sínum og amma spurði hvort hún væri lasin hvort eitthvað hefði komið fyrir.? Hvernig gat hún svarað ömmu, sannleikanum samkvæmt um eitthvað sem hún vissi ekki einu sinni hvað var. Sem hún átti ekki orð yfir Að hún væri grútskígug og ógeðsleg að utan sem innan.
Hún tók töskuna sína og fór inn í herbergi. Áður en hún komst þangað endurtók maðurinn leikinn og hún ákvað að í herberginu skyldi hún vera þangað til hann færi burt. Hún dró rúmið sitt fyrir hurðina á hvergerginu. Og dagurinn leið. Hún þurfti að pissa, hún pissaði á sig. Amma kallaði á hana og stelpan muldraði eitthvað um að hún væri lasin.
Það kvöldaði og maðurinn lauk verkinu og fór. Afi kom heim.
Við kvöldverðarborðið spurði hún afa hvort maðurinn kæmi aftur. Ekki hélt afi það nema ef vera skyldi einhvertímann seinna þegar hann þyrfti pípulagningarmann. Hún þráspurði, getum við ekki fengið annan svoleiðis mann? Jú hélt afi það ætti að vera hægt, en svo merkilegt sem það var spurðu þau hvorki amma né afi, af hverju telpan lét svona. Að lokum spurði stúlkan ákveðinni röddu hvar maðurinn ætti heima. Í Hlíðunum svaraði afi.
Sú stutta hugsaði með sér. Ef ég fer aldrei inn í Hlíðar þá kannski gerir hann mér ekkert aftur.
Og í mörg ár voru Hlíðarnar í Reykjavík, ljótasti staðurinn á jarðríki.
Miðvikudagur, 6. febrúar 2008
Um bloggvini og blogvinahegðun
Þegar ég byrjaði að blogga, hélt ég að ég ætti að lesa allan minn bloggvinahring, og gerði það lengi vel. En þeim fjölgaði og fjölgaði, þannig að ég komst ekki yfir allan listann en las reglulega hjá þeim. Svo kvitta ég þegar ég hef eitthvað að segja, stundum hefur maður engu við að bæta. Og þá fer maður sporlaust út.
Ég var svei mér þá með samviskubit stundum, ég var eins og kona í fullri vinnu að "fara hringinn", þangað til að ég horfðist í augu við að þetta þyrfti endilega ekki að vera svona.
Ég neita fólki aldrei um bloggvináttu, en sundum hef ég hreinsað út, fólk sem ég hef aldrei lesið.
Nú er mér farið að líða þannig, að í hvert skipti sem ég samþykki bloggvin þá sé ég að skrifa undir einhverja skuldbindingu. Mér er illa við skuldbindingar sem svífa yfir vötnunum.
Ég er með 146 bloggvini. Halló, gaman að því.
Undanfarið hef ég rekist á færslur (eða verið bent á) einhverjar færslur um persónu mína þar sem ég er tekin í gegn fyrir að kvitta aldrei, að ég sé merkileg með mig og Guð má vita hvað.
Svona á bloggið ekki að virka fyrir mér. Ég les alltaf sama fólkið, þ.e. mína fyrstu bloggvini, fólk sem ég þekkti áður en ég kom hér inn og svo fólk sem ég hef kynnst náið hér inni. Svo les ég það sem ég kemst yfir. En ég kvitta svo sannarlega ekki eftir pöntum. Bara svo það sé á hreinu.
Það sem ég er að segja með þessari færslu er einfaldlega að útskýra afstöðu mína. Bara svo enginn taki því illa þó ég sé ekki að kvitta. Ég geri það sjaldnast nema þar sem ég hef eitthvað til málana að leggja. Það fer fátt meira í pirrurnar á mér en skyldukvittin. Þessi héra. Kvitta fyrir mig búin að lesa. Minnir mig á Mamma: búin að kúka.
Þeir sem eru eitthvað ósáttir við mig í bloggvinabransanum henda mér þá bara út. Ekki málið, hinir verða inni og vita þá hér með hvernig ég nota mitt sýstem.
Úff, hvað það var gott að koma þessu frá sér.
Svo vona ég að þið eigið góðan dag og ég verð að upplýsa að ég les fullt af bloggurum sem ekki eru sk. bloggvinir mínir og geri það af mikilli ánægju.
Hverjar eru ykkar hugmyndir um þetta sýstem? Segið endilega frá.
Kikkmítúðevollækenteikit
Úje
Laugardagur, 2. febrúar 2008
From mí tú jú, dír Þráinn Bertelsson
Það er ekki á hverjum degi sem kona eins og ég (svona kommon júnó), fær skrifað um sig dagbókarbrot frá einum af hennar uppáhalds pistlahöfundum. Þegar ég opnaði Fréttablaðið og henti mér yfir dagbókarfærlurnar hans Þráins, sem er í Prag, þá var fyrirsögnin hreinlega á jensku. "DÓNTSÚMÍPLÍSJERÆT" og Þráinn ekki hrifinn. Finnst eins og svona prentsmiðjuenskubloggarar séu að breiða yfir kunnáttuleysi sitt á enskri tungu. Það sé tilgerðarlegt í þokkabót. Ómægodd, þar kom hann upp um mig.
Annars er ég upp með mér, og ég er ekki að grínast hérna. Á s.l. sunnudag, þegar ég lá á bæn, að vanda og las viðstöðulaust upp úr minni Biblíu, þá var maður út í Prag, að pirrast út í mig (hann kallar mig suma bloggara reyndar, en ég held að ekki fari a milli mála hverjir sumir eru) og hamast á lyklaborðinu af hneykslan yfir að sumir skuli vera að blogga eins og kjánar, jafnvel sér til uppyngingar. Trúðu mér kæri dagbókarskrifari, ekki máttur í þessum heimi sem yngir mig upp. Búin að reyna til þrautar.
Sko Þráinn, júsí, æmnottdúingþattattall. Ég er að blogga. Blogg er talmál. Ég sletti, ég veit það, í almennu tali og amma mín sem kenndi mér góða íslensku hefur örugglega marg snúið sér við í gröfinni vegna jenskunnar sem ég hef komið mér upp í mínum fíflafærslum sem ég á það til að blogga. Kræst, sú væri ekki hamingjusöm, en hvað um það, öllum verður á. Jón Baldvin er vonandi ekki að lesa bloggið mitt úti á Spáni, því hann kenndi mér íslensku og lét mig í skammarkrókinn af því ég ullaði á hann af því ég hélt að hann sæi ekki til. Mörðurinn sáarna. Æmgonnasúðebastard.
Fyrst eftir að ég byrjaði að blogga hefði ég dáið inni í mér ef svona frægur og merkur maður eins og þú Þráinn, hefðir skrifað svona um jenskuna mína. Hefði sennilega farið til fjalla og hoppað á tölvunni þar til hún væri minnið eitt. En það var þá. Nú er ég orðin forstokkaður Moggabloggari sem tek fátt nærri mér. Ég er eiginlega að drepast úr monti yfir því að merkilegur rithöfundur, blaðamaður og kvikmyndagerðarmaður, sem ég dáist að, skuli telja það tímans virði að skrifa um hvað ég get verið asnalegur bloggari. Ég er komin með clout. Nódátabátitt.
En án gríns, þá hafði ég skemmtun af þessu og þakka þér fyrir athyglina sem þú sýnir mér og á örugglega eftir að snarfjölga heimsóknum á síðuna mína, sem eru þó æði margar nú þegar. Dóntaskmívæ.
Og af því að þú ert skemmtilegur penni og ég dáist að þér fyrir svo margt þá býð ég þér upp á eitt af mínum uppáhaldslögum. Gjörðu svo vel, úje og hlýjarkveðjur til þín til Prag.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 2987934
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 34
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
draumur
-
jonaa
-
hronnsig
-
larahanna
-
skessa
-
eddaagn
-
amman
-
annabjo
-
annambragadottir
-
annaragna
-
asthildurcesil
-
kolgrima
-
birnan
-
bjarnihardar
-
brjann
-
brylli
-
christinemarie
-
danjensen
-
lillagud
-
disadora
-
einari
-
einarorneinars
-
emm
-
estro
-
evabenz
-
fifudalur
-
garun
-
gelgjan
-
gunnarggg
-
halkatla
-
halo
-
hildurhelgas
-
heidah
-
helgamagg
-
hildigunnurr
-
iaprag
-
hlynurh
-
hugarfluga
-
hugsadu
-
ibbasig
-
katrinsnaeholm
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jara
-
jensgud
-
katlaa
-
krummasnill
-
krissa1
-
lehamzdr
-
ktomm
-
laufeywaage
-
lauola
-
lindalinnet
-
madamhex
-
maggij
-
majaogco
-
mariakr
-
markusth
-
meistarinn
-
motta
-
nimbus
-
olinathorv
-
pollyanna
-
ragnarfreyr
-
ragnhildur
-
ringarinn
-
rosa
-
roslin
-
saedis
-
sailor
-
salkaforlag
-
skordalsbrynja
-
skrifa
-
snar
-
soley
-
steingerdur
-
steinnhaf
-
steinunnolina
-
stinajohanns
-
sunnadora
-
svetlana
-
thuridurbjorg
-
tibet
-
tigercopper
-
toshiki
-
unns
-
valgerdurhalldorsdottir
-
wonderwoman
-
vefritid
-
vest1
-
bidda
-
zeriaph
-
killjoker
-
sisvet
-
gudrununa
-
dora61
-
possi
-
gelin
-
silfri
-
jyderupdrottningin
-
gretaulfs
-
sibba
-
baldvinj
-
stjaniloga
-
bokakaffid
-
kreppukallinn
-
jonerr
-
gerdurpalma112
-
adhdblogg
-
astafeb
-
snjolfur
-
haddih
-
brell
-
reisubokkristinar
-
little-miss-silly
-
baldis
-
olofdebont
-
kikka
-
jarnar
-
thorolfursfinnsson
-
birnast
-
vrkristinn
-
leifur
-
astroblog
-
bjarkey
-
manisvans
-
siggisig
-
nordurljos1
-
gunnaraxel
-
ragnar73
-
sij
-
kreppu
-
runirokk
-
gotusmidjan
-
dorje
-
slembra
-
skari60
-
must
-
fhg
-
aevark
-
fridaeyland
-
hedinnb
-
cakedecoideas
-
taraji
-
audurproppe
-
kollakvaran
-
finni
-
arnaringvarsson
-
samstada
-
drum
-
gretarogoskar
-
tbs
-
vistarband
-
valdivest
-
fingurbjorg
-
gustichef
-
skulablogg
-
andreskrist
-
fasteignir
-
rognvaldurthor
-
helgatho
-
gullfoss
-
bailey
-
jennystefania
-
gattin
-
annaandulka
-
ansy
-
gumson
-
berg65
-
bjarnimax
-
brahim
-
elin
-
gudlaugbjork
-
dramb
-
gudrunkatrin
-
hvilberg
-
himmalingur
-
ingaragna
-
naflaskodun
-
kiddirokk
-
sigurborgkrhannesdottir
-
joklamus
-
stjornlagathing
-
saemi7
-
unnurgkr