Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007

JÁRNKJÁLKA ENGLARNIR (THE IRON JAWED ANGELS)

279

Bloggvinkona mín hún Katrín Anna minnti mig á yndislega mynd sem ég sá fyrir dálítið löngu síðan.  Myndin um bandarísku Súfragetturnar sem börðust fyrir kosningarétti amerískra kvenna.  Ég fór og keypti mér spóluna og horfði á hana í kvöld ásamt húsbandinu sem ekki hafði séð hana.

Það er skemmst frá því að segja að það helltist yfir mig allur tilfinngaskalinn og ég mundi hvers vegna mér þótti lífsnauðsynlegt að láta ekki einn einasta dag fara til spillis í kvennabaráttunni hérna í denn.  Í raun enn þó á öðrum forsendum sé.  Ég hló þegar ég heyrði vinkonurnar í baráttunni tala saman í myndinni, kaldhæðnina sem þær notuðu til að lifa með þessu réttindaleysi sem konur bjuggu við í byrjun síðustu aldar.  Það var ekki fyrr en 23. ágúst 1920 sem kosningaréttur kvenna í Ameríku varð að raunveruleika.  Ég grét þegar konurnar voru settar í fangelsi fyrir það eitt að hafa á hljóðlegan hátt mótmælt réttleysi sínu fyrir utan Hvíta Húsið og voru settar í 60 daga fangelsi. Ég varð ofsareið þegar Alice Paul ofl. fara í hungurverkfall og þær teknar með valdi, ólaðar niður og þvingaður ofan í þær matur á mjög ofbeldisfullan hátt. Ég gladdist þegar þær síðan ná þessu markmiði sínu að konur í USA fá kosningarrétt.

Ég er reyndar bölvanlega reið nú eins og oftar þegar ég hugsa um hversu langt í land við eigum enn.  Bálreið út í andstöðuna við alla kvennabaráttu.  Reiðust verð ég þegar ég heyri og sé kynsystur mínar agnúast út í feminista.  Þær konur sem virðast halda að öll okkar réttindi hafi bara verið þarna frá upphafi vega.  Öll leið réttindabaráttu kvenna er vörðuð blóði, svita og tárum þeirra kvenna sem á undan okkur komu.  Nú eigum við hörku baráttukonur bæði ungar og eldri sem vinna af elju fyrir sjálfsögðum mannréttindum konum til handa.  Í nútíðinni og ekki síst til framtíðar.  Mikið rosalega eru þetta smart stelpur. Jess

Þessa mynd verða allar konur að sjá.  Saga kvenna er og hefur verið þögguð.  Okkur er í lófa lagið að lifa söguna afturábak og í núinu.  Við þurfum bara að opna augun.

 


HINN VAFASAMA GULLMOLA DAGSINS HLÝTUR..

1s

..Magnús Þór Hafsteinsson í Frjálslyndaflokknum fyrir að tala fyrir vægast sagt skelfilegri pólitík í málefnum innflytjenda í Kastljósinu í kvöld.  Ég held að það séu öfgaelement þarna á ferð í flokknum og ég efast stórlega um að meðlimir Frjálslynda flokksins  séu allir með það á hreinu hvar varaformaðurinn og hans nótar standa í þessum málum.  Hvort þessi stefna er af hreinni og klárri umhyggjusemi við útlendinga eða til að vernda okkur gegn fjöldainnrás tugþúsunda manna og kvenna.  Málflutningurinn er enda loðinn og Magnús Þór slær úr og í.  Innflytjendamál verður að ræða að sjálfsögðu en ekki á þessum forsendum eins og ég hef margskrifað um hér á blogginu mínu.  Þjóðernisflokkar hafa verið hafnir til vegs og virðingar tam í Danmörku og Austurríki og það fer um mig hrollur við tilhugsunina um að svona málflutningur nái flugi hér.  Ég held samt að Íslendingar, flest allir amk., hafi óbeit á kynþáttamisrétti. 

Magnús Þór þarna ertu málsvari hættulegrar mannvonskustefnu. Sem ég held að mistúlkist meira að segja í þínum eigin flokki.  Þú mátt klæða það í hvaða búning sem er.  Við þurfum ekkert að hafa áhyggjur af því að hingað þyrpist fólk í tugþúsunda tali. "Getóverjorself". Get ekki ímyndað mér að við séum svona eftirsóknarverð. Við tökum ekki einu sinni við flóttamönnum eins og löndin í kringum okkur.  Fólk má hins vegar koma hingað meðan við getum notað það í þennsluástandinu og það fólk fer beinustu leið heim aftur að verkefnum loknum.   Íslenskt þjóðfélag hefur bara orðið ríkara og skemmtilegra vegna þeirra útlendinga sem hér hafa sest að.  Ef gera á bragarbót á undirboðum og þrælahaldi á fólki þá skulum við snúa okkur að því að hreinsa upp hjá glæpafyrirtækjunum sem hafa flutt inn verkamenn til landsins, hýrudregið þá og farið með þá eins og hunda og gjörbrotið á þessu fólki mannréttindi.  Þar er raunverulegt vandamál á ferðinni.

563


OG ÉG VISSI ÞAÐ..

17

..að megrúnarkúrar duga skammt og illa fyrir þorra manna.  Nú hefur verið sýnt fram á þetta með nýrri rannsókn.  Það mun sem sé ólíklegt að megrun leiði til langtíma þyngdartaps hjá fólki og að megrunarkúrar geti beinlínis verið heilsuspillandi.

Ég sem er með meirapróf á megrunarkúra sem ég ástundaði grimmt í fjölda ára samfara átröskun, veit að flestir þessara kúra eru allir undir sömu sökina seldir.  Um leið og þeim er hætt þá kemur fyrrverandi kílóafjöldi nú ákveðnari en nokkru sinni um að vera komnir til langdvalar.  Ekki það að ég hafi verið svona feit (er einhver að segja að ég hafi verið feit?Angry) heldur "fannst" mér ég vera það.

Núna er ég grönn og fín og ég þakka það edrúmennskunni og breyttu mataræði vegna sykursýkinnar sem ég skarta nú með (nenni ekki að fara út í fílafitusöguna enn einu sinni) og það er komið til að vera.  Nú er stærsti parturinn á disknum grænmeti, svo kjöt eða fiskur.  Einfalt og gott. Gerir kraftaverk fyrir heilsunaCool

Ég á DÁSAMLEGA vinkonu sem bloggar á moggabloggi og heitir DÚA og hún skrifar þessa dagana um sig eins og það þurfi talíu (heitir það ekki talía þetta þarna sem lyftir vörum, gámum og sollis?Blush) til að koma henni á milli staða. Kræst.  Hvað um það hún gerir megrunina sína ævintýri líkasta en hún þarf að ná af sér nokkrum kílóum.  Hún er að breyta mataræðinu og úðar í sig fæðubótarefnum (ætla sko ekki að auglýsa Herbalive) og hagar sér eins og sannur atvinnumaður í greininni þrátt fyrir að hún hafi alltaf verið í laginu eins og eldspýta. 

Så var det med den saken mina vänner.

Einhver æstur í hamborgara?

27


mbl.is Megrunarkúrar þjóna litlum tilgangi fyrir meirihluta fólks að sögn vísindamanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AÐ KJÓSA RÉTT

22

Það hríslaðist um mig spennu- og ánægjutilfinning núna áðan þegar ég var á hinu hefðbundna vafri mínu um bloggheima.  Margir eru að skrifa um kosningarnar.  Það rann upp fyrir mér hversu stutt er í þær og hvað það er skemmtilegur tími sem er að ganga í garð.  Ég er svo sjálfmiðuð, ef ég má kalla það svo, að finna til mín á fjögura ára fresti og finnast að með atkvæði mínu geti ég lagt mitt á vogarskálarnar.

Hm.. ég velkist ekki í vafa um hvað ég ætla að kjósa.  Hef reyndar sjaldan staðið frammi fyrir því ástandi að vera óákveðin utan einu sinni þegar ég sveik lit.  Fór úr rauðu yfir í gult í borgarstjórnarkosningum hér um árið.  Man ekki lengur hvað hreyfingin hét en hún var ljósrauð og stóð engan veginn undir væntingum.  Niðurstaða:  Ég er óforbetranlegur vinstri maður og það er ekki vottur af sjálfstæðismanni né krataelementi í mér.  Ég er komin af sannfærðum íhaldsmönnum og krötum í báðar og úr þeirri blöndu varð til þessi einlæga staðfesta mín til vinstri.

Ég er á móti persónudýrkun og þá einkum og sérílagi þegar hún myndbirtist í pólitík.  Ég er ein af þeim sem legg áherslu á að flokkurinn sem ég kýs hafi einarða stefnu sem ég get mátað mig við.  Það er toppurinn á tilverunni þegar forystumenn flokksins míns lifa eftir sannfæringu sinni og sýna það í orði sem á borði.  Þar koma vinstri grænir sterkir inn. 

Hvað um það, ég trúi því að þeir sem eru í pólitík (vel flestir amk.) vilji bæta samfélagið.  Að það sé upprunalegt markmið allra.  Leiðirnar að því marki eru bara ólíkar.  Sumir gleyma sannfæringunni á leiðinni og setan við kjötkatla stjórnmálanna verður löng og sumir vilja alls ekki halda áfram á leið sinni og þeir gleyma því sem þeir lögðu upp með. Mitt fólk er með vegferðina á hreinu og margir hjóla meira segja að markinu meðan sumir geysast áfram á eðalvögnum.  Ég er meira höll undir hjólinCool.

Ef ég væri óákveðin myndi ég gera eftirfarandi lista til glöggvunar fyrir sjálfa mig:

Sjálfstæðisflokkur og Framsókn koma ekki til greina.  Fyrirgreiðslupólitík, valdþreyta og atvinnupólitíkusar hugnast mér ekki.  Skil ekki af hverju vinnandi fólk sem þarf að hafa fyrir lífinu, finnur sig í þessum flokkum.  Þessir flokkar eru stofnanir, þeir rumska fyrir kosningar og sofa þess á milli værum Þyrnirósarsvefni þess sem heldur sig kominn til að vera.

Þar sem ég er ekki frjálslyndur krati (eins og það heitir víst núna, ) kæmi Samfylkining ekki til greina, þrátt fyrir staðfasta og áralanga aðdáun mína á Ingibjörgu Sólrúnu.

Frjálslyndir og Íslandhreyfing eru bara óánægðir hægri menn og nánast allir með tengingu inn í Sjálfstæðisflokk.  Sama þar.  Sé ekki hvers vegna vinnandi fólk ætti að kjósa yfir sig enn eina hægri stjórnina.  Held að báðir þessir flokkar væru ekki lengi að hoppa upp í með íhaldinu.

Vinstri græn eru að mínu mati þau einu sem hafa eitthvað múr- og naglfast upp á að bjóða.  Ég vil ekki stóriðjur og tel að það sé að æra óstöðugan að dúndra fleiri kvikindum í formi risavaxinna virkjana niður í landinu.  VG er kvenfrelsisflokkur og hafa sýnt það í verki.  Það passar við mig. Síðast enn ekki síst þá veit ég að það er eitt af forgangsmálum þeirra að auka lífsgæði venjulegs fólks.  Það vegur þyngst.  Ég arka ótrauð í kjörklefann og kýs þá.

Ég dreg ekki dul á að ég læt mig dreyma um stóran og afgerandi sigur vinstri flokkanna í vor, þe. VG og Samfylkingar.  Ég vona bara að sú verði raunin.  Það þarf að fella stjórnina sem er búin að sitja allt of lengi, mikið lengur en nokkrum er hollt.  Skutlum inn nýjum vöndum, þeir sópa best.

Ajö og takk fyrir mig, bibbidíbabbedíbú.


HVUNNDAGUR GJÖRSVOVEL

765

Nú tekur hversdagsleikinn við á morgun.  Mikið skelfing er ég fegin.  Þetta gerist á hverju ári fyrir jól og páska.  Konu hlakkar alveg svakalega til.  Tvisvar verður sá feginn er á steininn sest.  Ég er nefnilega alltaf jafn glöð þegar hátíðunum lýkur og allt verður eins og það á að vera.  Enda eins gott því sem betur fer tekur eitt við af öðru.

Á morgun ætla ég að skoða í uppskriftabókina og leita að hollu fæði fyrir mig og mína.  Er með vægt ógeð á steikum og fíneríi.  Aðalsmerki þessarar viku verður pottur ekki panna.  Soðið í öll mál.  Hm.  Ég ætla líka að fara til læknis á morgun, vinna verkefni sem mér var falið fyrir páska, þýðingarvinnu, sem ég geymi fram yfir hádegi.  Aöl. er morgundagurinn ókannað ævintýri.

Ég er búin að liggja í bókum yfir páskana.  Þegar nýju lesefni sleppti réðst ég á áðurlesnar bækur og er komin með hámarks höfuðverk.  Hvað er í gangi hjá ríkissjónvarpinu?  Þarf að finna til hundleiðinlegt efni í hvert sinn sem helgidagar ganga í garð?  Fyrir utan stjórnmálaumræðuna í kvöld og myndina um Che Guevara, þá hef ég ekki fundið neitt nema Gasolinþáttinn í gærkvöldi.  Kannski er það nóg.  Þrjú prógrömm frá miðvikudagskvöldi fram á mánudag.  Hm.  sennilega.  Ég bakka með þetta.

Ég þarf að fara að læra dans, klífa fjöll, veiða lax og sauma út ef ég á að eiga eitthvað líf!! Þ.e. eins og sumir hér í bloggheimum sem eru alltaf að gera eitthvað ýkt spennandi og blogga um það.  En svo má taka sér skáldaleyfi og ljúga eins og sprúttsali upp á sig svaðilförum og lífreynslusögum. Ég geri það á morgun.  Það verður ekki við hæfi fólks undir 25 ára aldri.

SíjúgæsHeart


VIÐ OG ÞAU..

1

Var að hlusta á umræðuna í sjónkanum þar sem foringjar stjórnmálaflokkanna spjölluðu.  Ansi lítið nýtt kom í ljós og staða flokkanna varðandi innflytjendamál er nokkurn veginn á hreinu.  Enginn flokkana, lítur á innflytjendur sem vandamál, utan frjálslyndir, og sjá það sem jákvæðan hlut að hér séu innflytjendur og allir virðast þeir leggja sama skilning í "vandamálaauglýsingu" Frjálslynda flokksins.  Ég ætla ekki að fullyrða að frjálslyndir séu útlendingahatarar, langt frá því, en skilningur fólks á auglýsingunni títtnefndu hinni svokölluðu vandamálaviðvörun virðist vera sá hinn sami hjá þeim sem ég tala við þe. að þarna sé nálgunin á málefninu röng, ali á fordómum og ótta.  Mér finnst þessi neikvæða aðferðarfræði þeirra höfða til fremur lágra hvata fólks.  Ef ekki liggur neitt óeðlilegt að baki þessa málflutnings Frjálslynda flokksins er þeim í lófa lagið að breyta nálgun sinni á málefnið.  Getur verið að þetta sé populismi?  Léleg leið til að ná sér í atkvæði?  Mér er spurn.

Mér finnast það forréttindi að búa í fjölþjóðasamfélagi.  Það getur bara verið gott að fá hingað nýja strauma frá öðrum menningarsvæðum og það gerir þjóðfélagið mun litríkara og skemmtilegra.  Við sem búum hér og störfum höfum getað breikkað sjóndeildarhringinn með því að fara til annara landa til náms og starfa.  Því skyldum við ekki gjalda líku líkt?


OG AF ALLT OF STÓRUM HÖRMUM..

35

Þegar ég var að skrifa fyrra innleggið um þá undarlegu staðreynd að ég skyldi ekki spyrja um ákveðna hluti þegar ég var lítil, þrátt fyrir að vera yfirmáta forvitin, mundi ég eftir enn einu furðuverkinu úr útvarpinu.  En það voru "dánarfregnir og jarðarfarir".  Kannist þið við eftirfarandi:

Sonur okkar, bróðir, faðir og afi lést á heimili sínu.. osfrv.?  Í nokkuð mörg ár hélt ég að út um víðan völl hríðféllu heilu fjölskyldurnar í einu í valinn.  Auðvitað las ég um Móðuharðindin og Svarta dauða í skólanum þar sem fólk féll í umvörpum.  Ég heimfærði þessi fjöldaandlát upp á svoleiðis óáran. Ég spurði aldrei, skildi þetta svona en fannst þetta ískyggilega algengt og sjálf þekkti ég sem betur fer ekki til neinnar fjöslkyldu sem hafði þessa stóru harma að bera.  Bjóst við, held ég, að þetta væri að gerast úti á landi, en það var óskilgreindur staður í huga borgarbarnsins jafn lang í burtu og Kína sjálft.


AUSTURLAND AÐ GLETTINGI

385

Hvar er Glettingur?  Hann er fyrir austan.  Ég veit ekki meir.  Landafræðikunnátta mín er lítil og ekki til að flagga á mannamótum.  Frá unga aldri hlustaði ég á veðurfregnir yfir kvöldmatnum og "Austurland að Glettingi" var eitt af því sem mér fannst hljóma svo undarlega, framandi og forvitnilega.  Merkilegt þó að ég skyldi aldrei spyrja.  Fyrir einhverjum árum síðan barst þetta í tal milli vinkvenna og við vorum allar jafn blánkar yfir "Austurlandi að Glettingi" nema ein að austan sem vissi að Glettingur var fjall þaðan sem hún kom.  Ég sá strax fyrir mér að þetta hlyti að vera merkilegt fjall þar sem þarna var veðurmæling (hm).  Viss um að við Gletting er ekki nokkur kjaftur, brimið skellur þarna á fjallinu og þegar dimmir á vetrum er umhverfið verulega draugalegt. Muhahahaha.  Kann einhver nánari deili á þessari títtnefndu mælingastöð?


SVONA RÉTT FYRIR SVEFN

 

Úff hvað kona er orðin húrrandi þreytt.  Svona er þetta á hátíðum, það er hangið fram eftir öllu.  Þetta hefur verið um margt góður dagur.  Byrjaði ekki beinlínis á hamingjusveiflu en ég skrifaði um það hvernig mér leið og ég fór strax að hressast.  Ég þakka öllum sem sendu mér hvatningu og falleg orð.  Það hafði hreint ótrúleg áhrif.  Allir dagar geta ekki verið dúndur góðir dagar.  Lífið er alltaf aðeins upp og niður.  Þegar ég hugsa til daganna meðan ég ráfaði um sem fárveikur alki, hversu svart lífið var og allt virtist vonlaust og svo þessir smá afturkippir sem ég er að fá af og til í dag, þá eru þeir hjóm eitt í samanburði.  Lífið er æði og hver dagur er nýtt ævintýri.

832

Ég fer sátt að sofa í kvöld.  Vorið er að koma þó óneitanlega hafi ég orðið smá langleit þegar ég talaði við dóttur mína í London í kvöld.  Hjá þeim var sól og 22. stiga hiti í dag og þau eyddu deginum úti að grilla og tjilla.  Skelli hér inn mynd af Oliver sem var á stuttermabol eins og um hásumar væri. En er ég hissa á að við skulum ekki vera komin með sumarveður? Nebb þá væri ég nefnilega ekki í lagi því við búum á Íslandi.  En það er í lagi að láta sig dreyma.

Góða nóttHeart


HUGLEIÐING Á SUNNUDAGSMORGNI

53

Í morgun hefur mér ekki liðið vel og ekki í gær reyndar heldur.  Það þýðir ekki að ég sé á barmi sálarlegs gjaldþrots en ég verð að gæta mín ansi vel mtt til að halda balans og hugarró.  Það má ekki mikið út af bera hjá óvirkum alka ef hann gleymir að sinna sálartetrinu.  Litlir hlutir og stórir koma manni úr jafnvægi, ekki síður þeir góðu.  Fyrr en varir getur kona fundið sig í vanlíðan og óbalans sem er eitur fyrir alka.  Sykursýkin er líka að láta kveða að sér, þetta helst allt í hendur.  Ég fór í sykurlost í morgun og hné (skáldlegt?) niður á eldhúsgólfinu. Húsbandið varð fyrir árás í vinnunni í fyrradag.  Brjálaður dópisti réðst aftan að honum og... til að gera langa sögu stutta þá slapp hann svona nokkurn veginn með skrekkinn.  En nú er ég komin til baka og í banastuði eða þannig. 

Ég byrja á þessari sem allir geta notað, hreint sálarbætandi orðasalat.

Guð gefi mér æðruleysi. 

Til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,

kjark til að breyta því sem ég get breytt

og vit til að greina þar á milli.

Merkilegt hvað orð geta verið öflug, bæði til góðs og ills.  Ég ætla að vera í jafnvægi, láta ekki fólk særa tilfinningar mínar (ÉG ER SVO MIKIL H-E-T-J-A) og muna að mín vellíðan kemur frá sjálfri mér en ekki umhverfinu.

Þetta datt mér nú svona í hug á degi súkkulaðsins.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 2987975

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.