Leita í fréttum mbl.is

Sjö sinnum samfarir

 buffalowings

Ómæ, Jessica Simpson er ein á ný.

Ég veit nákvæmlega ekkert um þessa konu annað en að hún hrópaði upp yfir sig þegar henni voru boðnir "Buffalo wings" að hún hefði ekki vitað að Buffalóar hefðu vængi.

En hvað um það.

forsetafjall

Cher, sú frábæra söng og leikkona sem er marg-endurnýjuð af lýtalæknum, trúði því að vindurinn hefði mótað höggmyndirnar af Bandaríkjaforsetunum í fjallið þið vitið.

Ég átti líka vinkonu fyrir margt löngu sem hélt að "hafa nóg á sinni könnu" þýddi að eiga nóg af kaffi á heimili.

Jájá.

nef

Og ég trúði því líka til skamms tíma að guð kæmi börnunum fyrir innan í konum.

Kommon, allir eiga sín ljóskumóment.

Ég verð þó að játa að mér fannst eitthvað undarlegt við þessa aðferðarfræði Guðs almáttugs við að koma börnum í heiminn.

Af hverju var hann að flækja málinn og hafa fyrir að setja smábörnin inn í konur og láta þær svo hafa fyrir því biggtæm að koma þeim þaðan út?

Svo komst ég að þessu úti á róló þar sem kynfræðsla fyrir börn á öllum aldri hefur alltaf farið fram.

Einhverjir strákandskotar læddu út úr sér sannleikanum og líf mitt varð aldrei samt upp frá því.

Vitið þið hvernig barni líður sem á foreldra sem eru óseðjandi í rúminu?

Eignuðust sjö börn áður en þau náðu að stilla sig?

Sjö sinnum í samförum?

Meiri djöfulsins ólifnaðurinn.

Annað en ég.

Hmrpfmf...


mbl.is Jessica Simpson ein á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Th Skúlason

 góð

Ólafur Th Skúlason, 14.7.2009 kl. 13:02

2 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Mikið obboðslega vildi ég hafa vera viðstaddur á þínum mýkri ljóskumómenntum!!!!

Shit ! það hefði í það minnsta verið uppfræðandi svo ekki sé meira sagt.

Mín ljóskumómennt eru enn að koma yfir karlinn.

Svo koma Gráu mómentin, hmmmm tölum ekkert mikið um það.

Njóttu góða veðursins.

ÞAð kemur frá Guði líkt og Davíð sagði í leikriti sínu   ,,Allt Gott kemur fra´Guði"

Mibbó

Ljóska af Guðsnáð

Bjarni Kjartansson, 14.7.2009 kl. 13:27

3 Smámynd: Emil Örn Kristjánsson

Sjö sinnum samfarir, segir þú. Það verður ekki alltaf barn í fyrsta sinn og ég get nú sagt þér það að þriðja barn okkar hjóna varð ekki getið fyrr en í þriðju tilraun. Svo það er allt eins víst að foreldrar þínir hafi nú átt oftar en sjö sinnum [roðnar] holdlegt samræði.... rétt eins og fimm börn okkar hjóna þýðir ekki endilega fimm sinnum [roðnar enn meira] holdlegt samræð okkar.

Emil Örn Kristjánsson, 14.7.2009 kl. 13:46

4 Smámynd: Heiða  Þórðar

Heyr heyr...þú ert að ræna af mér titlinum! Ala p-bloggari...

Góð einsog alltaf

Heiða Þórðar, 14.7.2009 kl. 13:48

5 identicon

Jenny!

Mér finnst að kynlíf sé farið að leika full stórann part í þínu lífi/bloggi.  Miðað við þín fyrri blogg.

Er ekki allt í lagi hjá þér???

itg (IP-tala skráð) 14.7.2009 kl. 14:38

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

itg: Ekkert mannlegt er þessum fámiðli óviðkomandi.

Rólegur.  Allt í lagi.  Bara að haffakaman.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.7.2009 kl. 14:44

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Emil: Þvílíkur hórlifnaður.

Mibbó: Þú ert krútt.

Heiða: Nei, nei, bara smá afleysing á meðan þú skrappst í bloggfrí.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.7.2009 kl. 14:45

8 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Takk fyrir mig

Jóna Á. Gísladóttir, 15.7.2009 kl. 00:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.