Leita í fréttum mbl.is

Litli bróðir "klaufi" og "ofviti"

 sky´s the limit.

Við náðum í Jenný Unu á leikskólann í dag.

Sú stutta hefur ákveðnar skoðanir á hverju hún vill klæðast og núna var kjólinn hennar "ógisslegur", en hvaðan hún hefur þetta lýsingarorð er mér hulin ráðgáta.

Amman sagði barni að kjólinn væri ofsalega fallegur enda alveg nýr.

Jenný Una: Nei amma hann er ógisslegur og mömmu finnst það líka.

Amman: Nei, Jenný, mamma þín var að kaupa hann.

J.U.: Mér er alle sama, hann er ekkert fallegur, ég vil bara fara í langermabol og langerma gallabuxur. 

Amman (í kasti): Langerma gallabuxur?

J.U. Já é vil ekkert vera í stuttbuxum!

Og í bílnum á leið í matvörubúðina var dúndrað yfir ömmuna og afann spurningum um eitt og annað.

Dæmi:

Er obbeldi að sparka?

En hrinda?

En ýta?

En lemja?

(Hér sá ég að hún glotti enda löngu búin að fá ofbeldisskilgreiningu frá mömmu sinni).

Ég svaraði játandi.

J.U. En amma hann Lilleman sló mig mjög fast.  En hann er ofviti, hann má það.

Og aðeins seinna.

Hann Lilleman er með klaufaveiki (gin- og klaufa í gangi á leikskóla) og hann vill ekkert borða, hann fær bara stíl í rassinn.

Ég var eiginlega komin með krampa vegna innri hláturs þegar þessari samverustund lauk.

Hér er svo mynd af "klaufanum" og "ofvitanum Lilleman litlabróður.

Lilleman

Börn eru mitt uppáhaldsfólk.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Laufey B Waage

Börn eru yndisleg. Sérstaklega manns eigin börn og barnabörn.

Gaman að hitta þig "í alvörunni" í búðinni í dag. Takk fyrir að heilsa mér.

Laufey B Waage, 2.7.2009 kl. 00:01

2 identicon

Já hún er æðisleg, hún er svo skilningsrík með litla bróðir sinn..

Sara móðir barnana (IP-tala skráð) 2.7.2009 kl. 00:06

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Yndisleg færsla

Sigrún Jónsdóttir, 2.7.2009 kl. 00:08

4 Smámynd: Eygló

Ógisslega skemmtileg færsla og mynd af barnsengli.

Eygló, 2.7.2009 kl. 00:31

5 Smámynd: Dúa

Þau eru krúttkögglar

Dúa, 2.7.2009 kl. 00:42

6 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

   Yndisleg frásögn, mikið er hún dásamleg hún litla nafna þín!   Líka stórfengleg þessi mynd af henni,  er litla daman að heilsa sólinni, eða er hún í jóga?  

   Það er nú stundum dálítið erfitt að eiga ofvita og klaufa fyrir bróður! En litli snáðinn að fá þennan óþverra, vonandi batnar honum fljótt.  Þeir segja að þetta komi frá köttum í sandkassanna.  Mikið áttu falleg og skemmtileg ömmubörn Jenný Anna.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 2.7.2009 kl. 00:46

7 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 2.7.2009 kl. 00:46

8 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Ég endurtek það er svo gott að vakna með þér á morgnanna, fá sér kaffi (enga sígó) og brosa hringinn.  Takk kæra Jenný.

Ía Jóhannsdóttir, 2.7.2009 kl. 07:30

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Laufey: Það var svo gaman að hitta þig.

Jenný Una þráspurði mig um hvernig bloggvinkona væri, hvort það væri alvöru vinkona.  Ég hélt nú það.

Sara: Rétt.

Ía: Takk og gott ef ég fæ þig til að brosa.

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.7.2009 kl. 07:48

10 Smámynd: www.zordis.com

Bara sæt og fyndin færsla!

www.zordis.com, 2.7.2009 kl. 14:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 2985794

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband