Leita í fréttum mbl.is

Slúður er listgrein

 kjút

Ég er einbeitt og glerhörð í viðleitni minni við að fylgjast ekki með slúðri um fræga fólkið úti í heimi og ekki hérna megin hafs heldur.

Þess vegna er ég reglulega eins og stórt spurningarmerki í framan þegar ég les netmiðlana.

Þar rekst ég á nöfn fólks sem ég kannast ekki við og ég fæ þá á tilfinninguna að ég hangi ekki með í svinginu.

kreisí

Megan Fox er á netmiðlunum á hverjum degi.

Á visi.is eru tvær til þrjár nýjar "fréttir" af þessari konu á dag.

Og stundum hér á Mogga í gúrkunni.

Meira að segja eyjan rapportar um líf Megan.

Karlinn hennar Megan grætur. (Ó nei, það er karlinn hennar Katie Price þorrí).

Búhú.

Fyrirgefið en mér gæti ekki staðið meira á sama.

Að fylgjast með slúðri er full atvinna hvorki meira né minna.

Ellý Ármanns á visi hefur gert slúður að listgrein.

Sjáið svo pressuna um MJ, megi hann hvíla í friði.

Ég persónulega líki því við vanhelgun látinnar persónu að tíunda ástand hennar, eins og t.d. að MJ verið hárlaus, hvað hann var þungur, hvað maginn hafi innihaldið við dauða hans og fleiri fréttir um fyrirkomulag hans á dauðstundinni.

Eitthvað sjúklegt við þennan rosalega áhuga okkar á "frægu" fólki.

Einkum og sér í lagi látnu, frægu fólki.

Ekki að ég sé að fordæma þetta en í æsku minni var svona fólk kallað eldhúsglugganjósnarar.

Þá var nefnilega engin eftirspurn eftir fréttum af frægu fólki en kerlingarnar sumar njósnuðu um náungann út um gluggann.

Settu glas á vegg og upp að eyra og rapportuðu svo um samfaratíðni, rifrildi og fleira af grunsamlegum lifnaði nágrannans í morgunkaffinu hjá vinkonunum.

Þetta eru konurnar (og karlarnir) sem fóru í gegnum ruslið hjá nágrannanum.

Svo var gefin skýrsla á Hagkaupssloppahittingnum í blokkum út um allan bæ.

Hvað er ég að velta mér upp úr þessu?

Jú, nú veit ég hver Megan Fox a.k.a. athyglissýki.com.

Alltaf að læra.

En líf mitt er ekki auðugra á nokkurn hátt.

Sjitt.

komment.


mbl.is Megan Fox biður skólastrák afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Ha ha ha, hagkaupssloppahittingurinn í blokkunum! 

Þessi hittingur hét "sopi" í minni blokk.  Þegar mamma helti upp á var ég send í stigaganginn og banka upp hjá hinum; "það er sopi"

Síðan sat maður eyrnalangur og hljóður og hlustaði á þessar vitru og spöku konur. 

Sannkallaður "háskóli" sem maður fór í gegnum í "sopa" kúrsinum.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 29.6.2009 kl. 14:52

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Satt segirðu, sopinn.  Við þurftum að leita að mömmu stundum til að finna hana inn í einhverri íbúð.

Í kaffi.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.6.2009 kl. 15:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 2985743

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.