Leita í fréttum mbl.is

Kjaft- og skrifstopp

Pistlahöfundur Telegraph, Jonathan Russel, undrast hvers vegna Jón Ásgeir Jóhannesson, láti ekki fara minna fyrir sér en það hefði verið eðlilegt í ljósi hruns viðskiptaveldis hans nýverið.

Jonathan Russel vinur minn þekkir greinilega ekki þetta stökkbreytta víkingagen sem er í "útrásarvíkingum" okkar Íslendinga.

Svona veltir hann vöngum yfir Jóni Ásgeiri.

Þú ert ekki einn um það karlinn minn.  Taktu númer.

Alveg er ég viss um að þessi pistlahöfundur verður kjaft- og skrifstopp þegar hann svo sér þetta, enda ekki skrýtið.

Mér er hins vegar óglatt.

Gry me a river.


mbl.is Veltir vöngum yfir Jóni Ásgeiri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það fór eins fyrir mér og þér. Mér hreinlega ofbýður ósóminn í þessu liði. Varð hreinlega óglatt að hlusta á í fréttum í gærkvöldi, hversu frægt fólkið var í veislunni sem "þau hjón" tóku þátt í   x skuldirnar vegna Icesave

Ásdís Sigurðardóttir, 24.5.2009 kl. 17:08

2 Smámynd: Garún

arrg nú er eitthvað í sjónvarpinu sem þú ert að horfa á!!

Garún, 24.5.2009 kl. 22:22

3 identicon

Veitstu....

Þeim er svo nákvæmlega sama ! Allar gjörðir þeirra eftir hrun, sýna það.

 Þeir eiga nægt fjármagn falið, og af hverju ættu þeir að pæla í almúganum á klettinum.

Þeir eru búnir að rúa hann inn að skinni...

Sannir víkingar ! gera strandhögg, og snúa sér svo annað !

Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 24.5.2009 kl. 23:38

4 identicon

Sjáið líka kaupfélagsstjórasynina Magnús Þorsteinsson, sem flúinn er til Rússlands án þess að skammast sín nokkuð fyrir gjörðir sínar hér og Ólaf Ólafsson, sem er einhversstaðar á flótta undan fjölmiðlafólki, gjörsamlega með allt niður um sig. Þvílíkir aumingjar, ég endurtek AUMINGJAR. Björgólfur Thor og sérstaklega þó konan hans hafa dvalið mikið á bresku lúxushóteli á Tenerife í vetur og reynt að fela sig þar fyrir íslendingum. Þar lepja þau allra dýrustu kampavínin og lifa hátt og halda að gáttaðir bretanir kjafti ekki frá.  

Stefán (IP-tala skráð) 25.5.2009 kl. 08:33

5 identicon

Sammála ... þetta fólk ætti að skammast sín .. hér heima eru margir með lítinn varasjóð til efri áranna eftir ránsfarir (nýyrði) þessa fólks.

Ólafur M. (IP-tala skráð) 25.5.2009 kl. 09:52

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hvað þýðir Hjólakorn? bjorgolfur-thor-kristin.jpgBjörgólfur Thor Björgólfsson og Kristín Ólafsdóttir voru meðal gesta í snekkjupartýi Pauls Allens í Cannes í gær, en VIP-veislur hans eru með þeim eftirsóttustu á kvikmyndahátíðinni sem nú er að ljúka. Myndir af hjólakornunum má sjá víða á netinu.

Er það eitthvað stökkbreytt kvæmi af útrásarvíkingum, eða bara bruðlurum yfirleitt, svona áður en þeir deyja út???

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.5.2009 kl. 11:34

7 Smámynd: Svala Jónsdóttir

Mogginn þýðir reyndar Telegraph pistilinn rangt. Kannski ætti einhver að splæsa í enskunámskeið fyrir blaðamennina.

Orðrétt segir hr. Russell: "Perhaps we should have expected a little more discretion this time round given the waves of publicity that battered his last venture, but it seems the new company IS BEING SO DISCREET it risks disappearing all together."

Sem sagt, honum finnst Jón Ásgeir láta OF LÍTIРfara fyrir sér, þ.e. að fyrirtækið sé í hálfgerðum felum. Öfugt við Björgólf.  

Svala Jónsdóttir, 25.5.2009 kl. 14:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 2985874

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.