Leita í fréttum mbl.is

Þau snertu í mér hjartað

Ég verð að viðurkenna væmni mína og hrifnæmi við ákveðnar aðstæður.

Sko, neðri vörin var farin að titra, hjartað í mér hoppaði innra með mér og ég táraðist af gleði yfir öllum frábæru nýju þingmönnum þjóðarinnar.

Og þá er ég ekki að tala um Sigmund Davíð sem er illa haldinn af FEGAB (farðu ekki að grenja af biturð).

Ég meina sko að maðurinn er svo sár yfir að þurfa að skipta um þingflokksherbergi, yfir að vera ekki í ríkisstjórn, yfir að hafa ekki getað komið 20% leiðinni á og bjargað heiminum.

Er Framsóknarflokkurinn allur í leikmununum?  "The frontside only" eins og skáldið sagði?

En ég ætla ekki að eyða orðum frekar í þetta háhaldraða ungmenni Framsóknarflokksins.

Nánast allir nýliðarnir hreyfðu sem sagt við hjartanu í mér, gáfu mér von.

Ég vil biðja þá, hvar í flokki sem þeir standa, að opna glugga Alþingis upp á gátt og hleypa inn tæru lofti.

Ég held að ég taki Birgittu Jónsdóttur og Guðfríði Lilju Grétarsdóttur í guðatölu í smá tíma.

Amk fram að miðnætti.

En annars er persónudýrkun harðbönnuð hér á kærleiks nema að hún beinist að mér.

Sjúhúbbílúbb.


mbl.is Átta jómfrúrræður í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

Birgitta, Guðfríður og Þór báru af í kvöld, fannst mér. tími til kominn að heyra raddir fólksins þarna í annars geldum sölum hátt- og hæstvirtra.

þarft sko ekki að afsaka neðrivarartitring.

x-O

Brjánn Guðjónsson, 18.5.2009 kl. 23:11

2 Smámynd: Karl Tómasson

Guðfríður Lilja mín kæra Jenný Anna er sannkölluð vonarstjarna, falleg og einstök kona.

Það ert þú líka mín kæra. Það er orðið nokkuð langt síðan ég sá það.

Bestu óskir til þín og þinna um gleðilegt sumar frá Kall Tomm úr Mosó

Karl Tómasson, 19.5.2009 kl. 00:24

3 Smámynd: Jens Guð

  Ég fylgdist ekki með umræðum frá alþingi.  Þannig að ég veit ekkert um þær.  Ég veit að Guðfríður Lilja er flott og áreiðanlega Birgitta og Þór líka.

  Jafnframt votta ég formanni Framsóknarflokksins samúð.  Formaðurinn er að eigin sögn ótrúlega ferskur og nýr og með öllu ótengdur gamla tákni Framsóknarflokksins sem einkenndist af spillingu,  helmingaskiptareglu og nostalklígju/fortíðarhyggju.

  Það er pínulítið á skjön að drengurinn skuli setja á odd væl yfir að flokkurinn þurfi að yfirgefa skrifstofuaðstöðu sína til handa miklu stærri flokki.  Og vísar þá til hefðar frá forneskju. 

Jens Guð, 19.5.2009 kl. 01:09

4 Smámynd: Anna

je minn, voða eruð þig tilfinninganæm fyrir pólitík. Persónudýrkun.. þú skalt aðeins dýrka einn guð, segjir biblian.

Er nýja ríkisstjórnin farin að vinna fyrir kaupinu sínu.???

Anna , 19.5.2009 kl. 09:08

5 identicon

Fyndið að þú skulir kalla Sigmund Davíð ,, háaldrað ungmenni ", því að ég hef gert það líka og það sama á við um Birgi Ármannsson. Þeir eru raunar mjög líkir í framkomu - gamlir í hugsun og sívælandi.

Stefán (IP-tala skráð) 19.5.2009 kl. 09:28

6 identicon

Birgitta sagði: "En þegar ég las verkefnalista sumarþingsins varð ég satt best að segja reið. Öskureið vegna þess að þessi listi endurspeglar ekki þá brýnu þörf á neyðaraðgerðum til að hjálpa fjölskyldunum í landinu. Reið því ég upplifi eins og svo margir aðrir að ráðamenn hafi ekki fullan skilning á því hörmulega óréttlæti sem við höfum orðið fyrir og virðast ekki skilja umfang neyðarinnar. Það þýðir ekkert að vera með bómullaraðgerðir eða málamiðlanir til að þóknast öllum hags á meðan þjóðinni er að blæða út."- Er þetta tilfinning þín líka góða Jenný, eftir 100 daga baráttu stjórnarflokkana í skerjagarðinum. Ræða BJ var ágætis 17. júní ræða en geturðu bent mér á eina tillögu að efnahagshugmynd sem hún kom með?

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 19.5.2009 kl. 09:30

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gísli: Ég er ekki endilega sammála Birgittu en hún talar með hjartanu þessi kona og það er ekki algengt meðal stjórnmálamanna.

En ég er á því að stjórn Jóhannu hafi gert kraftaverk miðað við ólýsanlega erfiðar aðtstæður.

Stefán: Great minds think alike.

 Anna Björg: Villtu ekki leyfa þeim að byrja áður en biturleikinn umvefur þig?

Jens: Algjörlega sammála.

Kalli: Sömuleiðis.

Brjánn: Það er töff að vera töffari á töff stundum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.5.2009 kl. 09:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 2985795

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband