Leita í fréttum mbl.is

Þreytt á AGS

Ég veit ekki með ykkur en ég er orðin ansi þreytt á valdhafanum bak við tjöldin, þ.e. Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

Hann virðist hafa síðasta orðið um peningamálastefnuna í landinu.

Þingmenn VG gagnrýndu það harkalega þegar ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks sóttu um aðstoð frá þessum illa þokkaða sjóð.

Það lá við að þeir væru hengdir í hæsta tré fyrir að sjá ekki ljósið.

Nánast hver einasti erlendur sérfræðingur sem hefur tjáð sig um AGS eftir hrunið hefur á honum illan bifur.

Þetta er nú meiri verkunin.

Ég hef á tilfinningunni að sjálfstæði Íslands sé aðeins í orði núorðið.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn ræður.

Honum er að minnsta kosti alltaf hlýtt.


mbl.is Seðlabankinn í klemmu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

ég sagði þetta : við ráðum ekki neinu hér lengur.

Við erum ekki sjálfstæð fyrr en við erum laus við þennan sjóð og hvað er með evrópudæmið ? Taki þeir við okkur þvert á alla skilmála þeirra sem áður hafa gilt þá hangir eitthvað verulega feitt á spýtunni.

Ragnheiður , 14.5.2009 kl. 14:03

2 Smámynd: Historiker

Meinarðu ekki frekar að sjálfstæðið sé aðeins "í orði"?

Historiker, 14.5.2009 kl. 14:32

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Historiker: Takk.  Það sem maður getur verið utan við sig.

Ragga: Jabb.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.5.2009 kl. 15:55

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er líka hundleið á þessum gaurum, held bara að við ættum að skila láninu og ráða okkur sjálf.

Ásdís Sigurðardóttir, 14.5.2009 kl. 16:12

5 Smámynd: Finnur Bárðarson

Sko þjóðin er í gjörgæslu og í öndunarvél og þar að auki með óráði. Á sjúklingurinn sjálfur að annast gjörgæsluna ?

Finnur Bárðarson, 14.5.2009 kl. 16:39

6 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Er ekki Seðlabankinn búin að vera í klemmu lengi, allavega í alvarlegri klemmu frá janúar 2008, þegar skýrslan barst, sem Seðlabankinn hundsaði.  Það má því spyrja: UM hvað samdi þáverandi ríkisstjórn við ASG? 

Þegar svar berst, fáum við líka að vita hve hratt er hægt að losa um tök klemmunar á Seðlabankanum.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 14.5.2009 kl. 16:46

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég held það væri réttast að negla frímerki á rassinn á þeim og senda þá til Órafjarristan..........

Hrönn Sigurðardóttir, 14.5.2009 kl. 19:29

8 Smámynd: Sigurður Viktor Úlfarsson

Við rústuðum pleisinu í partýinu í gær.  Við erum í efnahagslegu straffi.  Það er bara þannig. 

Við getum auðvitað flutt út frá pabba og mömmu en allir vinir okkar segjast ekki munu hleypa okkur inn án leyfis frá mömmu og pabba.  Það er því ljóst að vistin verður líklega enn kaldari úti en hér inni.  Við verðum því líklega að bíða af okkur storminn og reyna að haga okkur eins og fólk næst þegar gleðin nær tökum á okkur aftur.

Sigurður Viktor Úlfarsson, 14.5.2009 kl. 19:56

9 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

já þeim í AGS er ansi hlýtt

Brjánn Guðjónsson, 14.5.2009 kl. 20:02

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Getum við ekki skilað peningunum og rekið þá burtu?  Þetta er óþolandi ástand.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.5.2009 kl. 08:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2985764

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband