Leita í fréttum mbl.is

"Less is more"

Ég horfði auðvitað á borgarafundinn í sjónvarpinu í kvöld.

Tvennt stendur upp úr.

Katrín Jakobsdóttir sló strákunum við og hún hreinlega massaði panelinn.

Þetta segi ég ekki af því nú vill svo til að ég muni líklegast kjósa VG, þetta er einfaldlega ískalt mat.

Hitt sem stendur upp úr er að strákarnir í pólitíkinni tala of mikið.

Það verður að rífa af þeim orðið með ofbeldi, svei mér þá.

Þeir tapa big time á þessu drengirnir, því maður hættir að hlusta og hugsar í sífellu; ætla þeir aldrei að hætta?

Þráinn var fínn, kurteis og gagnorður.

Annars var þetta þvílíkur kjaftaklúbbur og strákapartí að það hálfa væri ráðstefna.

Æi, en Helgi Hjörvar er krútt.

En kæri Helgi; less is more, less is more.

Látum ljótu strákana um bullið.

Annars góð bara og í startholunum fyrir kosningarnar.

Þ.e. þegar ég fer að geta talað.

Er enn hljóðlaus.

Húsbandi finnst það leiðinlegt.


mbl.is Tvöföld atkvæðagreiðsla „slæmur kostur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Katrín var aðalkrúttið, vissulega. En mér fannst dálítið til í því að það er eiginlega bara verið að tala um að búa til ríkistengd störf. Jú, svo eitthvað með ferðaþjónustu sem að er svo langt því frá að vera fast í hendi.

Þó Ástþór sé klárlega trúðurinn í sjóinu, þá skoraði hann nokkur stig hjá mér með umræðu um atvvinnumálin. Það má ekki hafa þúsundir manna iðjulausa deginum lengur.

Það þarf skapandi hugsun og framleiðslu til að skapa fólkinu tilgang, sjálfsvirðingu, von og vinnu. Mbk, G

Gunnlaugur B Ólafsson, 14.4.2009 kl. 23:07

2 identicon

Get svo sem tekið undir allt sem þú segir hér að ofan, og já, mér fannst Katrín líka bera gjörsamlega af, en hef aldrei kosið VG (hingað til ;-)  Hins vegar finnst mér þetta fyrirkomulag á fundinum algjörlega ömurlegt, bara gjabb og glamur, jafnt í spyrjendum og svarendum.  Þetta fundarfyrirkomulag er vita gagnslaust, a.m.k. eins og við Íslendingar ræðum málin!!!!  Til hvers að að spyrja spurninga sem enginn tími til að svara.  Til hvers að leyfa spurningar úr sal um hvað sem er, alveg óháð hvort mikilvægar (relevant) spurningar eður ei.  Og oft sömu / svipaðar spurningar.  Og að heimta loforð og patentlausnir í núverandi ástandi, hvaða rugl er þetta.  Ákkúrat það sem þurfum ekki, þurfum stjórnvöld sem ætla að tækla málin heilstætt, stjórnvöld með stefnu og framtíðarsýn, ekki kosningarloforð og einsorðasvör eins og verið að leita að í kvöld.   

Ég myndi frekar vilja sjá þætti um annað hvort taka fyrir ákveðin málefni, t.d. tæki fyrir peningastefnuna í einum þætti, atvinnumálin, menntamálin, Evrópumálin, o.s.frv. í öðrum þáttum.  Og markvissar spurningar svo menn gætu undirbúið sig fyrirfram, t.d. gæti hver flokkur fengið ákveðinn tíma í framsögu og svo til að svara sömu spurningum.  Nú eða þætti þar sem bara hver flokkur tekinn fyrir, t.d. 3-4 fulltrúar flokksins (sambland höfuðborg og landsbyggð) og þeir spurðir í friði og ró um stefnu viðkomandi flokks í öllum þessum málum.

Við sem kjósendur eigum skilið að fá almennilega að læra um stefnur þeirra flokka sem í framboði og þessir fundir eins og var í kvöld er algjörlega vita gagnslaus í því sambandi. 

ASE (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 23:33

3 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Katrín rúlar og Ástþór var nokkuð gagnorður í kvöld - stundum ratast greinilega manninum satt orð á munn!

Edda Agnarsdóttir, 14.4.2009 kl. 23:47

4 identicon

Mannstu eftir þessu á sínum tíma?  Óneitnalega áhugavert svona í ljósi reynslunnar :-o

 http://www.althingi.is/altext/131/s/1014.html

ASE (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 00:00

5 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ef Ástþór Magnússon hefði mætt sem Hákon Sveinbjarnarson hefði hann óumdeilt verið ræðumaður kvöldsins.

Gaman af því hvað Katrín er orðin meira krútt en málskörúngur.

Er eitthvað verið að kyngreina hlutina ?

Steingrímur Helgason, 15.4.2009 kl. 00:39

6 Smámynd: Magnús Jónsson

Jenný: Það var frekar skrítið að hlusta á þessar umræður, ég sem hálf heyrnarlaus maðurinn hlít að teljast léttvægur, enn fulltrúi Framsóknar kom sterkur inn, en sá sem sagði mest af viti var trúðurinn Ástþór sem allir hæða, hann sagði það sem satt er, 1. hvers vegna er ekki búið að handtaka þessa bófa, 2.gerum eitthvað sendum 2000 mans í landkynningu hverju höfum við að tapa????? Ástþór fannst mér segja meira af vit en flestir hinna sem voru að reina að sýnsat vitibornir en jammogjajja. 

Magnús Jónsson, 15.4.2009 kl. 01:03

7 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

Mér fannst fulltrúar framboðanna án ríkisstyrks skárstir. þegar Sjóður 9 talaði minntist ég þess þegar þjóðin sagðist, í vetur, vilja nýtt Ísland. nú virðast allir hafa gleymt því og fylkja sér um gömlu flokkabáknin á ný. hafa greinilega sætt sig við að eina breytingin til batnaðar verði að tekin verði upp vaselínnotkun.

Brjánn Guðjónsson, 15.4.2009 kl. 01:09

8 identicon

Katrín komst ekki nægilega vel frá ESB umræðunni. Svaraði úr og í og í raun og veru engu þar að lútandi. Ástþór virkaði aldrei þessu vant traustvekjandi. Hann er jú bisnessmaður í húð og hár, það verður ekki af honum skafið.

Þórkatla Snæbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 02:22

9 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Hehehe var Þráinn kurteis sko minn.  Ertu enn raddlaus, það er ekki gott. 

Ía Jóhannsdóttir, 15.4.2009 kl. 06:32

10 identicon

Katrín var flottust og auðvitað er hún líka langsætasti frambjóðandinn. Ástþór átti bestu innkomu sína í svona þætti hingað til. Þráinn er alltaf fyndinn, en alveg reynslulaus á þessu sviði. Framsóknargaurinn virkaði þó enn reynslulausari, rjóður í kinnum og stamandi. Það mátti þó hlæja að bullinu í honum stundum. Helgi Hjörvar sygldi lygnan sjó - of lygnan. Aumastur allra var Illugi sem gengur helst undir nafninu Sjóður 9. Sá sjóður er auðvitað innistæðulaus í dag, rétt eins og gasprarinn innistæðulausi Illugi.     

Stefán (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 08:48

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég hef hvergi talað um krúttstuðul Katrínar í þessari færslu minn kæri Zteini, enda óþarfi, konan er öll í efri gildum þessa merka stuðuls.

Málið er að VG eru búnir að álykta um ESB, þeir eru á móti inngöngu.

En þeir segja jafnframt að fólkið eigi að að taka ákvörðunina þegar þar að kemur.

Hvað af þessu er svona erfitt að skilja?

Ástþór, hvað skal segja?  Ég ætlaði ekki að fjalla neitt sérstaklega um hann hér en þar sem hér er að myndast stór áhangendahópur þá er best að ég geri það.

Margar af hugmyndum Ástþórs eru alveg prýðilegar og þar er karlinn alveg einlægur og frumlegur í þokkabót.

Málið er að hann er ekki rétti maðurinn til að afla þeim fylgis.

Það þarf meira en fjallræðuna af borgarafundi fluta af manni sem er eins og eldur í sinu, kærandi, rægjandi og áfram haldið, til að ég fái glýju í augun.

En margar hugmyndir Ástþjórs eru frumlega og flottar.  Verst að hann er enginn boðberi friðar, lýðræðis og mannvirðingar, eins og hann hegðar sér við fólk.

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.4.2009 kl. 09:00

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

ASE: Takk fyrir upprifjunina.

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.4.2009 kl. 09:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 2985790

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband