Leita í fréttum mbl.is

Mannréttindabrot hjá ASÍ

Þetta ætlar að verða svona "Jenný böggast út í Gylfa hjá ASÍ"-bloggdagur.

En hver andskotinn er eiginlega í gangi hérna?

Má Vigdís Hauksdóttir ekki fá launalaust leyfi til að fara í kosningabaráttu?

Mér er nokk sama í hvaða sæti hún er hjá Framsókn, fyrsta eða hundraðasta, það hefur bara ekki nokkurn skapaðan hlut með málið að gera. 

Það eru einfaldlega sjálfsögð mannréttindi að fá að taka þátt í stjórnmálum og Gylfi Arnbjörnsson hjá ASÍ  hefur ekkert leyfi til að setja henni afarkosti, fjárinn hafi það.

Svo er tragíkomískt að það skuli vera Alþýðusamband Íslands sem á að gæta hagsmuna launþega í þessu landi sem fer svona fram gegn eigin starfskrafti.

Er þetta einhver andskotans her sem fólk gengur í ef það vinnur hjá Gylfa?

Sem rænir fólk eðlilegum borgaralegum réttindum eins og að bjóða sig fram í pólitík?

Ég hvet fólk til að mótmæla þessari gerræðislegu gjörð sem er auðvitað ekkert annað en pjúra mannréttindabrot og hana helvítis nú.

Ég sver það, ég er komin með upp í kok af jakkalökkum í stjórnunarstöðum.

Svo mun Gylfi vera yfirlýstur Samfylkingarmaður.

Bara sú staðreynd gerir það að verkum að það er holur hljómur í réttlætingum hans fyrir þessari framkomu við Vigdísi.

Að tala um að króa fólk af úti í horni.

Hvað næst?


mbl.is Engin flokkspólitík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Það er ekki oft sem ég er sammála áherslunum í blogginu þínu, en er það sannarlega núna. ASÍ eru samtök launafólks og það er grundvallaratriði að formaður slíkra samtaka haldi flokkspólitík fyrir utan samtökin. Formenn ASÍ undanfarin ár hafa persónulegri staðsetningu í flokkakerfinu fyrir sig. Gylfi hefur brotið þessa hefð, sem mér finnst mjög miður. Þetta útspil Gylfa gagnvart Vigdísi Hauksdóttur er sérlega alvarlegt. Viðtalið við Gylfa þar sem hann reynir að svara fyrir sig, gerir málið bara verra.

Sigurður Þorsteinsson, 25.3.2009 kl. 16:55

2 identicon

Aldrei að treysta mönnum með skegg.

Hvað hefur verkalýðurinn með svona menn að gera.

Svona manni á að sparka fyrirvaralaust úr vinnu.

Eins og maðurinn sáir, mun hann og uppskera.  (Krissi bróðir)

j.a. (IP-tala skráð) 25.3.2009 kl. 20:03

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þótt ég sé ekki hrifin af Gylfa, verð ég að segja að mér fannst þetta lykta sem PR stunt hjá framsókn.  Af hverju að bíða með að ræða þetta í rúmar 2 vikur?

Sigrún Jónsdóttir, 25.3.2009 kl. 23:13

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mér finnst þessi Gylfi ekki trúverðugur maður, sorrý

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.3.2009 kl. 10:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985766

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband