Leita í fréttum mbl.is

Míglekur að neðan

head_tent_1a 

Eftir veðursýnishorn síðast liðins sólarhrings varð ekki hjá því komist að taka ákvörðun.

Og hún var tekin með báðum samhljóða atkvæðum.

Vorið er komið og ekki orð um það meir.

Og þá fór ég að pæla, hvað með grill? 

Ég losaði mig við útigrillið, gasfyrirbærið þegar ég flutti s.l. haust og sé ekki eftir því fyrir fimm aura.

Ég sé ekkert spennandi við að vera með útieldavél.  Það vantar alla stemmingu í lyktina af gasgrilli.

En, mig langar í kolagrill.

Ég nefndi þetta við minn löglega í förbífarten hér við hirðina í morgun og hann olli mér ekki furðu með viðbrögðum sínum, ég þekki manninn of vel.

Hann sagði einfaldlega: Nei í guðanna bænum ekkert svona vesen!

Ég spennti í hann augun, setti upp ískaldan reiðisvip með kvalræðisívafi og fórnarlambskippum og skyrpti út úr mér: Vá, stemmingin lekur af þér, villtu ekki fara að bjóða þig fram sem gleðipinna í blómabúðir, ég meina þar verður bráðum brjálað að gera í fræjunum og svona hjá EÐLILEGUM fjölskyldum.

Grafarþögn.

Ég: Ég ætla að kaupa kolagrill, það er ekkert vesen, ég sé um það sjálf og síðan hvenær ertu orðinn svona mikill gleðimorðingi?

Hann brosti (sá að sér) við knúsuðumst og grillið verður keypt næstu daga.

Sko, eins og ég elska af guði mér skenktan manninn svona oftast nær þá eru hlutir í fari hans sem geta gert mig dýróða og stórhættulega.

Eins og t.d. varðandi tjaldferðir.  Ég elska að fara í tjald. 

Vill hann koma með?

Nei, ekki að ræða það.  Tjöld eru glötuð, manni verður kalt í þeim og svo mígleka þau neðan frá.

Ég á byrjunarstigi sambúðar: Leka neðan frá, hvað ertu að meina?

Hann: Jú ég var að spila í Húsafelli 1967 og svaf í tjaldi, og þegar ég vaknaði var allt á floti og samlokurnar hennar mömmu sigldu fram hjá andlitinu á mér á leiðinni út úr tjaldinu.

Ég: Halló það var um miðja síðustu öld, tjöld eru fullkomin í dag.  Hoppaðu inn í nútímann drengur.

Hann: Nei, íslenskt veðurfar býður ekki upp á tjaldveru.  Ég fer ekki í tjald, ekki að ræða það, búinn með þann pakka.  Ekki, ekki, ekki.

En ég skal koma með þér og vera á gistiheimili með rúmi og sturtu.

Mál útrætt, búin að marg reyna á það og ég gef mig ekki svo auðveldlega.

Tjaldið er úti hvað hann varðar en ekki mig.

Ég fer með dætrum mínum bara.

Og þá getur hann verið heima að grilla.

Úje


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Það sem ég skil hann með tjaldið...sko Jenný Anna never never never !!

Aldrei..ég fæ ógeð við tilhugsunina um tjald.

Ég er nú oftast sáttust við að elda inni..er með gaseldavél inni hjá mér.

Átti einusinni kolagrill og var niðursokkin (niðurlút) að kveikja upp í því einn sólríkan dag þegar slökkviliðið var allt í einu komið! Ég tók þetta auðvitað allt til mín og var komin með afsakanir á færiböndum í heilann þegar ég fattaði að það var kviknað í húsinu sem var áfast mínu.

Kolagrill hvað, á ekki svoleis..

Ragnheiður , 22.3.2009 kl. 16:43

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Næstu daga verður frost. Vorið er ekki komið! Þú mátt grilla mig upp á það!

Sigurður Þór Guðjónsson, 22.3.2009 kl. 17:18

3 identicon

Veistu það Jenný Anna að þú ert bara algert æði. Les þig alltaf til að minna mig á að hafa húmorinn í fyrirrúmi og brosa framan í tilveruna..

Takk fyrir mig!

Guðrún Edda Káradóttir (IP-tala skráð) 22.3.2009 kl. 17:35

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég spennti í hann augun, setti upp ískaldan reiðisvip með kvalræðisívafi og fórnarlambskippum og skyrpti út úr mér: Vá, stemmingin lekur af þér, villtu ekki fara að bjóða þig fram sem gleðipinna í blómabúðir, ég meina þar verður bráðum brjálað að gera í fræjunum og svona hjá EÐLILEGUM fjölskyldum

Jenný Anna Baldursdóttir stundum geturðu næstum drepið mig  En hvað með það kolagrill og ekkert kjaftæði. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.3.2009 kl. 17:37

5 Smámynd: Laufey B Waage

Kolagrill utandyra, - eldavél innandyra. Ekkert hallæris (lesist; góðæris) millistig.

Laufey B Waage, 22.3.2009 kl. 17:39

6 Smámynd: Huld S. Ringsted

Mikið skil ég hann með tjaldið!!! mætti ég þá frekar byðja um gistiheimili með rúmi og sturtu En ég styð þig í kolagrillsmálinu, gasgrill kemst ekki með tærnar þar sem kolagrill hefur hælana.................................eða þannig

Huld S. Ringsted, 22.3.2009 kl. 20:22

7 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Það er þetta með tjaldið, það eru til svo góð tjöld, og svoooo góðar tjalddýnur, en ég get samt ekki hugsað mér tjaldútilegu.

En ég styð þetta með kolagrill, það er svo einfalt og gott. - Svo er hægt að fá einnota kolagrill. 

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 22.3.2009 kl. 21:24

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þið eruð frábær.

Takk fyrir falleg orð í minn garð, mér þykir vænt um þau.

Ragga: Þú gengur af mér dauðri.

Sigurður: Hehe.

Takk aftur öll.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.3.2009 kl. 22:31

9 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sammála Einari með tjaldútilegurnar, þoli þær ekki...sennilega vegna upplifunar í Húsafelli forðum daga

En ég var einmitt að hugsa um að fjárfesta í kolagrilli fyrir sumarið....

Sigrún Jónsdóttir, 22.3.2009 kl. 23:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 2985883

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband