Leita í fréttum mbl.is

Væmin og vongóð

Flottur hann Steingrímur og Katrín líka.

Flott fólk sem ég treysti hundrað prósent.

Enda ber VG ekki ábyrgð á neinu bankahruni, engri óráðsíu og ekki spillingu.

Þegar Ögmundur talaði um stærð bankana fyrir einhverjum árum og varaði við þeir gætu hrunið með látum, var hann nánast dreginn fyrir rétt, algjör landráð að gagnrýna útrásina og gulldrengina.

Ókei, landsfundur VG er á blússi, ég bíð spennt eftir ályktunum fundarins.

Einhver var að væla um endurnýjun, að hún væri lítil hjá VG.

Halló, á að endurnýja til að endurnýja?

VG hefur ekki komið að stjórn fyrr en núna og mér finnst þeir persónulega stands sig mjög vel.

Ég bíð spennt eftir listum Borgarahreyfingarinnar.

Ég vill að þeir nái slatta af fólki inn á þing.

Ég sé fyrir mér nýja tíma í stjórnmálum.

Já, ég er hætt að grenja en má maður vera væminn og vongóður á laugardegï!

En ykkur að segja krúttin mín, þá var ég að baka gulrótarbrauð og köku.

Ég er algjörlega frábær ég sverða.

Og ekki orð um það meir.


mbl.is Steingrímur J.: „Hér stend ég enn"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég veit að þú ert frábær  Facebook greinir mig sem VG

Sigrún Jónsdóttir, 21.3.2009 kl. 16:05

2 Smámynd: Steingrímur Helgason

Liggur við að ég falli fyrir þezzari gulród.  VG má skipta út í pistlinum fyrir X-D & innihaldið myndi standa óbreytt.

Steingrímur Helgason, 21.3.2009 kl. 16:10

3 Smámynd: Ólafur Th Skúlason

enginn endur nýjung þetta er eins og framsókn staðnað en er steingrímur laumu framsóknarmaður

Ólafur Th Skúlason, 21.3.2009 kl. 16:37

4 Smámynd: Finnur Bárðarson

Hver vegna setur maður gulrætur í brauð. Ég hef aldrei skilið það ?

Finnur Bárðarson, 21.3.2009 kl. 16:53

5 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Ég myndi kjósa VG ef ég væri ekki flokksbundinn annars staðar. Ég skil ekki af hverju Álversflokkurinn mælist ekki í könnunum. Þetta er örugglega samsæri peningaaflanna.

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 21.3.2009 kl. 17:29

6 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og kveðjur .0)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 21.3.2009 kl. 17:40

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ben.Ax: Minnsta mál að segja sig úr flokki til að kjósa annan.

Finnur: Sko, bæði er það bragðgott með eindæmum, svo eru gulrætur svo hollar og einstaklega góðar fyrir meltinguna.

Ólafur Th.: Það er eins og ég hafi heyrt þessa skoðun þína áður. 

Linda: Sömuleiðis.

Zteini: Þú ert alltaf svo leiðinlegur við mig núorðið.  Svona lætur maður ekki við vini sína.  Múhaha.

Sigrún:

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.3.2009 kl. 17:57

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

´Sigrún: Þú ert líka frábær og ég greindist sem VG á feisinu líka.

Merkilegur andskoti.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.3.2009 kl. 17:57

9 Smámynd: Rauða Ljónið

Siðleysi , lygar og óheiðaleiki,undirferli, eru þeir ókostir sem engin vill vera sakaður um.

í mars 2007 fyrir kosninga þá stóð yfir í Hafnarfirði kosning um atvinnu til handa 2500 manns sem VG var á móti þeir sögðu þá að á næstu 10 til 20 áru yrði næg atvinna handa öllum íslendingum útrásin sæi fyrir því og lofuðu þá útrásina og ekki þyrfti að kjósa í Hafnarfirði fyrir aukni atvinnu fyrir Hanfirðinga en komu með það loforð að þeir skyldu sjá Hafnfirðingum fyrir atvinnu sem skapaði jafn mörg störf þegar á árunum 2008 til 2009 þau störf eru en ekki kominn og koma ekki hefði þeir fylgt því eftir væru þau kominn svo hér var um svik og lygar en ég sé að sumir vilja helst gleyma því en eru samt ekki búni að gleyma.

Í framhaldi fóru VG fram á það að að umrædd atvinnustarfsemi gæfi þeim 300 þúsund í kosningarsjóð því var synjað þar sem fyritækkið hafði þær siðarreglur og fyrirmæli að gefa ekki í kosningarsjóð hjá neinum flokki eða stjórnmálaafli.

Í framhaldi af þessari synjun hryngdi Steingrímur J í blaðafulltrúa fyrirtækisins og jós yfir hann svívirðingum og fúkyrðum og hótunum út af þessari synjun.

Jenný nú ert þú ekki að þá þessar upplýsingar frá annari eða þriðju hendi heldu frá fyrstu hendi.

Kv. Sigurjón Vigfússon spurðu svo Steingrím og vitnaðu í mig hvort ekki sé rétt farið með.

Rauða Ljónið, 21.3.2009 kl. 20:56

10 Smámynd: Árni Gunnarsson

Eflum Neyðarlínuna! Getur ekki þjóðin séð af einum hundraðkalli á nef svo þetta mikilvæga öryggistæki hafi burði til að standa við bakið á Valhallarliðinu í sárustu neyð síðustu áratuga?

Árni Gunnarsson, 21.3.2009 kl. 21:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2985797

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband