Leita í fréttum mbl.is

Ég fer ekki rassgat

Við Íslendingar höfum öðlast tilgang í kreppunni.

Við erum vítið til varnaðar.

Skemmtilegt.

Maður í Eistlandi var handtekinn fyrir að lýsa því yfir að landið væri á sömu leið og Ísland í kreppunni.

Löggan kom daginn eftir og setti manninn í járn.

Það eru liðnir þeir dagar þegar maður límdi vegabréfið á ennið á sér og hrópaði á götuhornum útlandsins að maður væri frá landi elda og ísa.

Þessu fallega landi, með merkilegu söguna.  Landinu þar sem fólk skrifaði heimsbókmenntir á meðan Svíarnir t.d. voru að tjá sig á grjót.

Kannski var þetta misskilningur með þjóðarstoltið, ég hallast að því.

Við erum eins og aðrar þjóðir, góðar í sumu en lakari í öðru.

Þangað til núna.´

Núna erum við defenetlí verst í sumu og enginn, enginn, vill komast á þann stað sem við nú dveljum.

Þ.e. með allt niðrum okkur.

En sumt er krúttlegt og fær fólk í öðrum löndum til að brosa vinsamlega út í annað (jeræt) alveg:

"Dúllulegir þessir Íslendingar, með fimm manna teymi til að rannsaka stærsta bankarán sögunnar sem b.t.w. enginn ber ábyrgð á".

Ég held að ég grafi vegabréfið niður á töskubotn næst þegar ég fer út landi.

Nú eða sitji bara heima þangað til að það fennir yfir ósköpin.

Sem þýðir að ég fer ekki rassgat í þessu lífi að minnsta kosti.

Og Obama, Smobama, borðaðu slátur.


mbl.is Obama: Ekki sömu leið og Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Almenningur í útlöndum hefur ekki hugmynd um það sem Íslendingar eru að ganga í gegn um. Hann heldur að þjóðin sé fátæk og gjaldþrota. Góðviljaðir pennar hafa ekki við að leiðreitta vitleysuna sem "reyndir" blaðamenn skrifa og segja um Ísland. "Ísland er gjaldþrota" er sú vinsælasta. Fátt er fjarri lagi.

Íslendingar lentu í því þurfa ganga í ábirgð á peningum sem glæpmenn stálu úr bönkum landsins. Það er allt og sumt. Vandi USA og Bretlands er öllu viðameiri og stórbrotnari og að flestu leiti eru aðrar þjóðir á miklu verri stað en Ísland.

Að auki hafa áhrif kreppunnar ekki enn náð að síga almennilega inn í almenning hér í Bretlandi. En nú fjölgar heldur betur í hópi atvinnulausra og vörur hækka dag frá degi. Brown mistókst að kikkstarta lánamarkaðinum og kann engin ráð önnur enn að kasta meiri peningum í hítina. En allt kemur fyrir ekki, ástandið er enn á niðurleið.

Svanur Gísli Þorkelsson, 20.3.2009 kl. 10:10

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já.... þetta kom okkur allavega á kortið. Hugsaðu þér - meira að segja Kaninn hefur núna heyrt um Ísland og heldur ekki að það sé fylki í USA

Hrönn Sigurðardóttir, 20.3.2009 kl. 10:14

3 identicon

Samkvæmt nýjustu skoðanakönnun, þá eru 26 % íslendinga kolruglaðir, þ.e. ætla að kjósa kvalara sína í Sjálfstæðisflokknum.

Stefán (IP-tala skráð) 20.3.2009 kl. 10:15

4 Smámynd: Jón Halldór Eiríksson

Vel orðað Jenný.   Stefán... ef Sjálfstæðisflokkur fær 26% í næstu kosningum dansa ég stríðsdans.     Það væri stórkostleg rassskelling.   Það heldur Sjöllum pottþétt frá völdum.    Ef hinsvegar þessi flokkur sem er búinn að koma þjóðinni á vonarvöl fær 33%+  geta íslendingar verið í áframhaldandi djúpum skít.

Jón Halldór Eiríksson, 20.3.2009 kl. 10:27

5 Smámynd: María Guðmundsdóttir

góda helgi jenný,knús hédan

María Guðmundsdóttir, 20.3.2009 kl. 10:31

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Já, ef maður verður svo heppinn að komast út fyrir landssteinana aftur í þessu lífi, verður þjóðernið ekki auglýst, svo mikið er víst.

Sigrún Jónsdóttir, 20.3.2009 kl. 12:20

7 identicon

Stefán,svo geta þeir í sjálfstæðisflokknum ekki sett gott fólk á listann sinn eins og Inga Björn eða Kolbrúnu B., heldur setja þeir  stuttbuxnastráka og fólk úr Útbreiðslu og markaðssviði Landsbankans. á listann hér í RVK.

poppi (IP-tala skráð) 20.3.2009 kl. 13:07

8 identicon

Skemmtilegur pistill.

Ég hef talið Íslendinga ofmeta ágæti þessa lands í mjög langan tíma. Ísland er bara enn eitt krummaskuðið í heiminum sem komst í tísku. Það er ekkert merkilegra við þetta land eða þessa þjóð en hverja aðra. Þær hafa allar sínar ofboðslega merkilegu hefðir, sitt ofboðslega merkilega fólk og sitt ofboðslega merkilega tungumál.

Finnland, til dæmis, er mun merkilegra land en Ísland að mínu mati, hvort sem um ræðir söguna, bókmenntir, tungumálið eða menninguna. Ég bjó þar í ár og þeir eru alveg eins og Íslendingar fyrir utan að þeir hafa þurft að læra að hugsa út í hvað þeir gera af og til.

Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 20.3.2009 kl. 16:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 2985744

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband