Leita í fréttum mbl.is

Hinir harmarnir

Það má vera að það sem ég ætla að blogga um geti talist ósmekklegt.

Það verður þá að hafa það.

En ef eitthvað er ósmekklegt varðandi dauða þessarar vesalings konu, Natöshu Richardson, þá er það tilfinningaklámið bæði í fjölmiðlum og á blogginu, uppúrveltingurinn snýr við í manni maganum. 

Það er fjallað um dauða þessarar konu eins og ekkert geti mögulega verið merkilegra í heiminum.

Kynhneigðarsaga fjölskyldu hennar er tíunduð.  Afinn var bíari, pabbi hennar líka.

Só?

Ég get endalaust pirrað mig á vægi mannslífa í heiminum.

Tugir þúsunda barna látast úr sjúkdómum í Afríku á hverjum degi.

Annar eins fjöldi deyr úr hungri.

Tugþúsund litlar sálir sem ekkert hafa til saka unnið og það fer fram hjá flestum.

Það er að minnsta kosti ekki forsíðufregn neins staðar.

En deyji einhver sem telst til merkilegri persóna þá er eins og fólk gráti sig í svefn.

Ég tek fram að mér finnst verulega sorglegt þegar fólk deyr ótímabærum dauða.

En börn sem líða skort, þjást af sjúkdómum, eru notuð sem þrælar, seld eins og búfénaður, standa mér nærri hjarta og koma í veg fyrir að ég geti fallið í sorgarsjokk yfir svona fréttum.

En auðvitað er þetta harmafregn.

Það eru hins vegar allir harmarnir sem við heyrum ekki um sem ég hef áhyggjur af.


mbl.is Natasha Richardson látin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Mér er skítsama hverjum feður eða mæður listamanna ríða, eins lengi og viðkomandi er yfir lögaldri.

EIns er svo með mig, að ég nenni sjaldan að lesa vol og víl um stjörnur er svona meira fyrir frétum af hversdagshetjum eins og stundum er bloggað um.

Slauguspjall er nokkuð sem ég kíki á nokkuð oft, svona milli vonar og ótta ne ætíð með von og bjartsýni í brjósti.

Hvort ég ´se kaldlyndur, veit ég ekki enda getur maður seint verið dómar í eigin sök en einhvernveginn er mér hugleiknari barátta sem háð er í nærumhverfi mínu, hvar ég gæti látið eitthvað af me´r leiða.

Mibbó

skil ekkert í ,,kynjaðri hagstjórn"

Bjarni Kjartansson, 19.3.2009 kl. 11:58

2 Smámynd: Morten Lange

Heyr, heyr.

Morten Lange, 19.3.2009 kl. 11:59

3 Smámynd: Morten Lange

Í ofanílag er grein Moggans og bloggarar og viðmælendur fjölmiðla að notfæra sér dauða hennar til að halda því fram að það að hún hafi ekki verið búin hjálm eins og kappakstursmenn,  sanni að allir í skíðabrekkum þurfa að vera með hjálm.  Hvað með alla sem deyja í bilslysum vegna höfuðáverka ?  Þeir eru miklu mun fleiri. Og kappaksturshjálmarnir eru jú til. Varðandi hjólahjálma ( því einhver kemur örugglega dragandi með þá umræðu) þá er margt sem bendi til þess að þeir virki ekki sem skyldi,  allavega ekki þegar litið er á tölfræði fyrir stærri hópa. Sjá til dæmis grein úr The Independent eða leitið fanga á Wikipediu.

Morten Lange, 19.3.2009 kl. 12:06

4 identicon

Gæti ekki verið meira sammála þér.

Eftir að ég átti börnin mín er ég orðin svo viðkvæm og samofin þjáningu barna og minnimáttar að það er næstum hamlandi.  Ég á sífellt erfiðara með að skilja forgangsröðunina hjá fjölmiðlum og flestu fólki (var reyndar míníútgáfa af þessu fyrir nokkrum árum en ég er samt ekki að skilja þetta). 

Ætli þetta sé ekki veruleikaflótti á háu stigi?

Erna Kristín (IP-tala skráð) 19.3.2009 kl. 12:14

5 Smámynd: Ólafur Th Skúlason

JENNÝ þú hefur skoðun á öllu sjálfur dó ég fyrir nýju dögum og var settur í gang ekki finnst mer það neytt merkilegt

Ólafur Th Skúlason, 19.3.2009 kl. 12:28

6 identicon

Þetta er svo skrítið allt saman

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 19.3.2009 kl. 12:39

7 Smámynd:

Svo satt hjá þér Jenný. 

, 19.3.2009 kl. 13:11

8 Smámynd: Anna Guðný

Hm... ég var nú bara fyrst að lesa um það hér. Virðist þurfa að fara að herða mig í Moggafréttunum.

Anna Guðný , 19.3.2009 kl. 14:08

9 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Nákvæmlega.

Sigrún Jónsdóttir, 19.3.2009 kl. 14:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband