Leita í fréttum mbl.is

Bækur, bækur og aftur bækur

Frétt um bækur.  Gaman, gaman.

Enda föstudagur og ekkert helvítis kreppukjaftæði.

65% aðspurðra í þessari bresku könnun játa að hafa logið til um að hafa lesið bækur sem þeir höfðu svo ekkert lesið, varla séð hvað þá annað.

Ég játa mig seka.  Ég hef logið þessu sama eins og enginn væri morgundagurinn.

En ekki um heimsbókmenntir elskurnar mínar, ónei, ég las "Stríð og Frið", "Lygn streymir Don" og "Fýkur yfir hæðir", strax á unglingsárum.

Varð að vera viðræðuhæf í eðlum gengjum - ójá.

En ég laug til um að hafa lesið margar bækur samt.  Alveg heilu ritraðirnar.

Það voru námsbækurnar sem ég í hyskni minni nennti ekki að lesa.

Enda sumar námsbækur svo leiðinlega skrifaðar að ætla mætti að það væri verið að gera mann fráhverfan lestri fyrir lífstíð.

En ábyrgðin er mín og einhvern veginn þrælaði ég mér í gegnum próf á þess að kunna nokkur eða lítil skil á námsefninu.

Annars er ég að lesa þrjár bækur núna.  Já, ég er fíkill, hvað get ég sagt.

Mæli sérstaklega með "Pappírsfiðrildum" sem var að koma út í kilju ásamt krimmanum "Skot í markið".  

Engin svikinn af þessum tveimur.

pappírsfiðrildi

Pappírsfiðrildi er mögnuð bók.  Fjallar um afdrif kínversks pilts sem lendir í fangabúðum eftir mótmælin á Torgi hins himneska friðar.

Sterk, hrærandi og áhrifarík.

Það er ein besta leið sem ég veit um að loka sig af frá erli og áhyggjum að sökkva sér ofan í góða bók.

"Skotið" er spennandi krimmi sem ég segi ykkur betur frá þegar ég er búin með hana.

Later.


mbl.is 65% ljúga um lestur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er að lesa Himnamaðurinn,sem er saga um hinn kínverska Yun.Frábær bók

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 6.3.2009 kl. 09:51

2 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Humm athyglisvert að skrökva til um hvað maður hefur lesið.  Bara aldrei hvarflað að mér.  Ja jú nema heimalærdóminn, það var oft sagt -já búin að læra hehehe....

Ía Jóhannsdóttir, 6.3.2009 kl. 09:59

3 Smámynd: Tína

mmmmmmmm veit sjálf fátt skemmtilegra en að lesa. Les allt milli himins og jarðar en ástarsögur vil ég ekki sjá!!! Er núna að lesa bókina "Dagbók að handan" og á að vera rituð með ósjálfráðri skrift. Mögnuð bók að mínu mati.

Varðandi skólabækurnar, þá er ég hrædd um að ég verði að játa mig seka líka og það allhrottalega. 

Njóttu helgarinnar fallega kona

Tína, 6.3.2009 kl. 10:17

4 identicon

Ég hef aldrei þóst hafa lesið bók nema hafa lesið hana ... tjah nema auðvitað námsbækur. 

En játa að ég hef nokkrum sinnum neitað að kannast við að hafa lesið ógrynni af ómerkilegum rómönum, lágkúrulegu léttmeti og hraðsuðubókmenntum.  

Voða vandræðalegt eitthvað að veifa nýjasta læknarómaninum, þegar gáfumennin eru að tala um Nóbelsskáldin.  

Elfa Jóns (IP-tala skráð) 6.3.2009 kl. 10:24

5 Smámynd: M

Aldrei logið um það heldur og las allar skólabækur sem ég þurfti, en með 1/4 hug

Smá forvitnisspurning, en kaupir þú allar þessar bækur sem þú lest ? Er svo þreytt á því að fá aldrei þær bækur sem ég vil í bókasafninu.  Finnst bara mikill kostnaður  í bókakaupum.

Góða helgi

M, 6.3.2009 kl. 10:37

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

haha Elfa góð! Takk fyrir þessar upplýsingar Nenna litla. Ég setti bækurnar á "to read" listann minn!

Hrönn Sigurðardóttir, 6.3.2009 kl. 10:43

7 Smámynd: María Guðmundsdóttir

uss...logid alltof mikid um lestur skólabóka.. stundadi ad lesa aftaná thær og skrifa svo "stíl" um bókina..komst of oft upp med thad enda ritræpumanneskja....

Knús og góda helgi

María Guðmundsdóttir, 6.3.2009 kl. 11:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 2985807

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband