Leita í fréttum mbl.is

Æ, æ, æ

Áts, hvað þetta er pínlegt!

Fyrst var það Hard talk to Haarde!

Það er ennþá í manni hrollurinn.

Svo kemur Geir dúllan í ræðustól þingsins, það er þungt í honum og það eru hafðar uppi ásakanir á Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, um að hún sé að ljúga að þingi og þjóð.

Maður er með bréf upp á það frá innanbúðarmanni og nánum vini í AGS.

Púff, allt upp í loft - ekki steinn yfir steini.  Ésús minn sæll og saddur hvað þetta var misheppnað stönt.

Jóhanna var auðvitað að segja satt.

En Geir þú hinn seinheppni..

er ekki lag að biðjast afsökunar á þessu frumhlaupi?

Hvernig er hægt að vera svona "óheppinn"?

Kona spyr sig.


mbl.is Davíð og dularfulla bréfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Æi greinin þau vita ekki sitt rjúkandi ráð

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 17.2.2009 kl. 01:31

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Í gamla daga sagði maður alltaf "allt í plati rassagati"  mér datt það í hug í kvöld.  Vegna misvísandi frétta um skuldastöðu okkar, og misvísandi frétta um skuldahalann okkar. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 17.2.2009 kl. 01:44

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Þetta var ferlega misheppnað...

Jónína Dúadóttir, 17.2.2009 kl. 06:16

4 identicon

Ótrúlegt hvað maðurinn er svo misskilinn,eða óheppinn,eða bara svona asnalegur.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 07:38

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já - það er ekki alveg hans tími þessa dagana.....

Hrönn Sigurðardóttir, 17.2.2009 kl. 08:27

6 identicon

Geir Haarde er gjörsamlega misheppnaður stjórnmálamaður, en hann kom vel út í þættinum hjá Audda og Sveppa. Þar þurfti hann ekkert að leika, var bara þessi trúður sem hann bókstaflega er. Að öðru leiti er hans tími löngu liðinn.

Stefán (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 08:36

7 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

Geir mun ekki biðjast afsökunar á einu né neinu, til þess er hrokinn og heimskan of mikil.

Björgvin R. Leifsson, 17.2.2009 kl. 08:39

8 identicon

Geir hékk á trúnaðinum eins og mý á mykjuskán þegar hann var við völd.  En samt finnst mér óþarfi að verja núverandi ríkisstjórn ef hún ætlar að fara ástunda trúnað við IMF. 

Er ekki kominn tími á trúnað við fólkið, að hafa þetta bara allt uppi á borðinu?

Gullvagninn (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 09:42

9 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Ég veit ekki hvort að ég höndli það mikið lengur að þurfa að hlusta á Geir og Davíð - sjaldan hefur stjórnarandstaðan verið eins þrungin tittlingaskít - er maðurinn ekki að fatta að hans tími er búinn?

Birgitta Jónsdóttir, 17.2.2009 kl. 12:48

10 identicon

Það sem mér finnst bara svo sorglegt við þetta er að fólkið sem þóttist vera að bjarga þjóðinni, þóttist vera að finna lausnir, eru núna komin í eitthvern stjórnarandstöðu fíling, eyða tíma sínum í órökstuddar lygar.  Halda svo áfram að stöðva allt, vegna þess að allt sem nú er verið að gera var auðvitað þeirra hugmyndir.  En bíddu við afhverju, þegar þetta fólk var búið að vera í 4 mánuði að vinna að þessum hugmyndum, afhverju voru þau ekki fyrir löngu búin að tilkynna okkur þjóðinni um það hvað þau væru að vinna að?

Hverssvegna var það leyndarmál?  Afhverju var ekki búið að drullast til að a.m.k senda drög að því sem var verið að vinna að.  Nei bara láta fólk bíða, bíða og bíða í von og óvon.  

Hætti að eyða þessum örfáu dögum í að reyna að koma óorði á hvort annað og drullist til að vinna vinnu ykkar þarna á Alþinig!  Mér blöskrar, tilhverss í andskotanum borga ég ykkur laun?  

xD komist yfir það að enginn vildi vinna með ykkur og reynið að koma með eitthvað málefnalegt svona einu sinni!

Takk....

Unnsteinn J (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 13:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband