Leita í fréttum mbl.is

Heimskir og æstir í meira

Saksóknari á efnahagsbrotadeildinni segir að peningaþvættisstarfsemi gæti vel hafa farið fram án þess að löggan frétti af því.

Sölvi Tryggvason sagði í Kastljósinu í gær að hann hafi nánast haldið fyrir andlitið af aulahrolli þegar hann fór með erlenda blaðamenn í viðtal á efnahagsbrotadeildina sem fengu þau svör frá yfirmanni deildarinnar að það væri lítið að gera.  Eitt mál í rannsókn!

Sko hér eiginlega gefst ég upp.

Stærsta hrun Íslandssögunnar og í heiminum öllum reyndar og efnahagsbrotadeildin er að drepast úr verkefnaskorti.

Hvað er að okkur Íslendingum?  Jónas Kristjánsson, heldur því fram að við séum heimsk og ég fer að spyrja mig í alvöru hvort hann hafi til síns máls.

Skoðanakönnunin sem kom út í gær ýtir undir þessa tilfinningu mína.

Tæp þrjátíu prósent vilja Sjálfstæðisflokkinn, þann sem hefur mótað jarðveginn fyrir þá skelfingu sem við nú sitjum uppi með - venjulegt fólk og hann kann ekki einu sinni að skammast sín.

Enda hví skyldi hann gera það?

Það er stór hópur af fólki þarna úti sem er æstur í meira.

Jú, þrjátíu prósent þjóðarinnar eru greinilega naumir til höfuðsins.


mbl.is Peningaþvætti gæti hafa farið fram hjá lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Einu mál efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustlóra sem vert er að ransaka er  no1 Bónus, 2 Bónus , 3 Bónus. ER etthvað annað að ransaka ?????

Gævar (IP-tala skráð) 14.2.2009 kl. 11:18

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég legg til að við afnemum kosningar. Skipum Davíð sem einræðisherra - hann er mjög promising í það starf - finnst mér.....

Hrönn Sigurðardóttir, 14.2.2009 kl. 11:20

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég er farin að halda að fólk þurfi að verða fyrir "persónulegu áfalli" vegna kreppunnar, áður en það fer að hugsa

Sigrún Jónsdóttir, 14.2.2009 kl. 11:26

4 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Ég hef vitað það í mörg ár að íslendingar eru ekki skörpustu hnífarnir í skúffunni ef þú skilur mína dönsku...

Ég flutti héðan 1996/7 þegar ég hafði gefist upp ða bullinu hér á landi í íbúðamálum, lánamálum, verðbólgu og bara þessum íslenska veruleika.

Ég kem heim aftur 2005, í mitt "góðaærið" og uppgötvaði það fljótt að hér hafi ekkert skánað síðan 1997 nema síður sé.. hraðinn og vitleysan í þjóðfélaginu var bara geðbilun fyrir venjulegt fólk sem hefur lifað í venjulegum og góðum þjóðfélögum .

Ég sá viðtalið í gær og ég sá viðtalið við GHH.. aulahrollurinn og skömmustutilfinningin var yfirþyrmandi..

að enginn, ég meina enginn skuli vera undir smásjá í dag 5 mánuðum eftur hrun segir allt sem segja þarf um þessa aula þjóð sem lifir hér norður í ballarhafi.. 

Ut vil ek!!  og ég mun fara

Óskar Þorkelsson, 14.2.2009 kl. 11:27

5 Smámynd: Einar Örn Einarsson

AULAHROLLUR um mig fer, þá ég lít mannvitssléttuna íslensku. Öðruvísi mér áður brá. Hvar eru allar mannvitsbrekkurnar?Fjandakornið ekki voru þær seldar líka, eða fuku þær burt?

Maður toppar sig dag frá degi í skömminni.

En þar fyrir utan góða helgi þið öll

Einar Örn Einarsson, 14.2.2009 kl. 11:31

6 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Við erum eins og rollur í rétt sem vita ekkert í sinn haus, svei mér þá.

Greta Björg Úlfsdóttir, 14.2.2009 kl. 11:41

7 identicon

það verður hver og einn að finna brunann af eigin skinni.....  

hljómar eins og við séum heims......

já sennilega

svo brestur á atgervisflótti stökusinnum, og nokkur ár þar á eftir lækkar sennilega greindarvísitalan í landinu, en kannski eru það einmitt  árin sem hún hækkar hjá leikurunum 63....

framkv (IP-tala skráð) 14.2.2009 kl. 11:51

8 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ég get ekki skrifað neitt núna..sé ekki á lyklaborðið fyrir tárum...svo sorglegt hvernig komið er fyrir þjóð Dramatík?

Ó já. Maður má nú vera með dramatík eftir allt sem á undan er gengið og þegar framtíðarhorfur eru á að nú verði íslendingar heimskasta þjóð í heimi ofan á alla fegurðina, og efnhagsheimsmetahrun.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 14.2.2009 kl. 12:07

9 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

....Þá má maður tárast og syrgja það sem hefði getað orðið. Eretta eitthvað í íslenska vatninu ?

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 14.2.2009 kl. 12:08

10 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Heimsk eða ekki heimsk um það má deila, ja það er alla vega hlegið að okkur út í hinum stóra heimi í dag og ekki hvað síst eftir þetta fræga viðtal fyrrv. forsætisráðherra. 

Góðan Valentínusardag Jenný mín.

Ía Jóhannsdóttir, 14.2.2009 kl. 12:42

11 Smámynd: Anna

Ég las viðtal fyrrv. forsætisráðherra. Hann vildi ekki bera neina ábyrð á því sem skeð hefur fyrir þjóðina.

Sem á eftir að auka trúveruleika annarra þjóða til Ísland ha ha he he

Hafðu það sem best. Kveðja

Anna , 14.2.2009 kl. 14:23

12 Smámynd: Konráð Ragnarsson

Maður er farinn að krossa sig bak og fyrir og fara með bænirnar á hverju kvöldi,,,,,

"Guð forði okkur frá þeim sem hvorki sjá nér heyra og gefa loforð um meira,,,,,,,,,,,,"

Konráð Ragnarsson, 14.2.2009 kl. 15:26

13 identicon

Heyrði í einhverjum gegjuðum alkapata í útvarpinu áðan, varst það þú?

Vignir (IP-tala skráð) 14.2.2009 kl. 15:28

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Vignir: Já og horfði á þig meðan ég pataðist.  Ég veit allt.  Allt.

Lalalalalala.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.2.2009 kl. 15:30

15 identicon

Nah, það held ég nefnilega ekki. En hægt að láta rugla sér við verra lið. Erfitt ...

...en samt hægt!

Vignir (IP-tala skráð) 14.2.2009 kl. 17:27

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Vignir: Ég skammast mín.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.2.2009 kl. 18:07

17 identicon

Ha? Þú?

Tjah, það er massíft áframhopp í bata er það ekki?

VIgnir (IP-tala skráð) 14.2.2009 kl. 18:52

18 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Vignir: Fer eftir því hvernig á það er litið.  Sko...

Segi svona.  Skammast mín alveg niður í tær.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.2.2009 kl. 18:57

19 identicon

Er það? fyrir hvað? Skil ekki

Vignir (IP-tala skráð) 14.2.2009 kl. 19:33

20 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Vignir: Hvernig átt þú að skilja það, siðlaus maðurinn?

Ég skammast mín á hverjum degi, fyrir allt það sem ég á eftir að gera.  Þannig er ég alltaf on the save side.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.2.2009 kl. 20:33

21 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

ég er að vonast til að þessi útkoma í skoðanakönnunum sé vegna þess að það er í gangi meme um að ljúga í slíkum...

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 16.2.2009 kl. 11:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985766

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband