Leita í fréttum mbl.is

Heimurinn er fullur af símum!

 sími

Það var góð umræða og oftast málefnaleg við utandagskrárumræðu á Alþingi í dag um efnahagsmál.

Meira um það seinna.

En ástæða þess að ég er að blogga um þessar utandagskrárumræður eru upplýsingar sem komu frá Jóni Magnússyni, hörðum stjórnarandstæðingi svo ég leyfi því að fljóta með, um það sem kom fram í viðtali við Geir á BBC í morgun.

Ég er ekki búin að sjá viðtalið en Jón segir að þar komi fram að Geir hafi ekki talað við Gordon Brown vegna setningu hryðjuverkalagana á Ísland.

Að hann hafi reyndar ekki talað við hann svona yfir höfuð eftir hrun, að mér skilst!

Ég er svo gáttuð.  Ég vissi að þeir voru slakir og framkvæmdafælnir í ríkisstjórninni sem frá fór en kommon - þeir hefðu allt eins getað farið í stríð við okkur!

Og enginn lyftir tóli!

Það brennur á þjóðinni að vita hvað varð til þess að Bretar fóru fram gagnvart okkur með þessum hætti.

Hann lyfti ekki símanum maðurinn, endurtek ég eins og biluð plata.  Mér finnst þetta svo stórklikkuð staðreynd.

Þetta er grafalvarlegt mál - vítavert dómgreindarleysi af fyrrverandi forsætisráðherra.

Nei, ég skil þetta ekki.

Gæti einhver til þess bær krafið manninn svara, hvers vegna hann lét þetta yfir okkur ganga án þess að lyfta símanum og ganga eftir svörum frá karlfíflinu Brown?

Við eigum rétt á því Íslendingar að fá um þetta upplýsingar.

Geir, phones, phones, the world is full of phones!


mbl.is Jóhanna hringi í Gordon Brown
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Annað hvort lýgur Geir að fréttamanninum eða þjóðinni.

hilmar jónsson, 12.2.2009 kl. 17:48

2 Smámynd: Óskar Þorkelsson

hver helduru að vilji tala við Geir í síma ?

Óskar Þorkelsson, 12.2.2009 kl. 17:53

3 identicon

Hvet alla til að hlusta sjálfir á viðtalið við Geir. Það er reyndar engin skemmtihlustun, mig persónulega langaði að skríða undir borð ég skammaðist mín svo fyrir kappann. Á einum stað getur fréttamaðurinn ekki leynt undrun (hneykslun?) sinni á þeim svörum sem maðurinn gefur.

Eins og alltaf grunað, "okkar fólk" á ekki sjéns þegar hittar fyrir alvöru fréttamenn eins og BBC er með. Með fullri virðingu fyrir íslenskum fréttamönnum sem eru flestir að gera sitt besta, þá bara komast þeir ekki með tærnar þar sem þessar "stórskotabyssur" eru með hælana. Ekkert gjabb frammí og æsingur, bara mjög hnitmiðaðar spurningar og þeim fylgt skilmerkilega eftir ef ekki svarað.

Mikið vildi ég sjá "auðmennina" og fyrrum bankastjórana mæta í viðtal hjá þessum mönnum. En það ekki líklegt til að gerast!

ASE (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 17:55

4 Smámynd: Óskar Þorkelsson

hvar mundi maður geta fundið þetta "viðtal" ?

Óskar Þorkelsson, 12.2.2009 kl. 18:05

5 identicon

Slóðin er:

http://news.bbc.co.uk/1/hi/programmes/hardtalk/7885583.stm

ASE (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 18:43

6 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Takk ASE :)

Óskar Þorkelsson, 12.2.2009 kl. 18:56

7 Smámynd: Steingrímur Helgason

Danir huga öðruvízi.  Mig minnir það hafa verið Mogens Gilstrup sem að lagði eitt sitt til að framlög til varnarmála ætti að skera niður í einn danskann tíkall.

Það ætti að nægja fyrir kostnaði við að hringja í hvaða þjóð sem að dytti í hug að ráðast inn í Danmörk & tilkynna uppgjöf.

Steingrímur Helgason, 12.2.2009 kl. 18:57

8 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Símann, sumir telja,
talsvert flókinn hér,
ef viltu, númer velja,
ég vil, kenna þér.

Fyrst þú heyrnartólið tekur
og berð það upp að eyra...
Ef að enginn heyrist sónn,
bilaður er telefónn.

Ingibjörg Hinriksdóttir, 12.2.2009 kl. 19:47

9 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Alveg dáist ég að því hvað þú ert barnslega einföld, Jenný mín. Ert enn að verða hissa yfir Geir og co.

Helga Magnúsdóttir, 12.2.2009 kl. 20:13

10 identicon

Misskilningur  hjá  Steingrími með  Mogens Glistrup og  tíkallinn. -  

 Það var tuttugu og fimmeyringur !!!!

Eiður (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 20:52

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Eiður: Góður, það munar öllu.  Haha.

Helga: Á ég að móðgast?

Ingibjörg: Mér datt þetta lag líka í hug.

Ragna: Djö.. sem þið eruð skáldlegar.

Steingrímur: Hahaha.

ASE: Ég er þér eiginlega sammála.  En kannski gerir smæð þjóðfélagsins þetta erfiðara hér.

Ég verð að játa að ég fékk smá aula þegar maðurinn játaði að hann hefði kannski átt að hringja.

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.2.2009 kl. 21:21

12 identicon

Ég minni á að hann þarf ekkert að hringja í GB.  Davíð þykist nefnilega vita ástæðurnar en gat  ekki upplýst þær fyrir viðskiptanefnd Alþingis þegar honum þóknaðist að mæta þar.........viku of seinn og bar fyrir sig bankaleynd.  Davíð segir Geir hið sanna ÞEGAR OG EF HONUM ÞÓKNAST.

Jónína (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 22:55

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég hefði kannski átt að gera það, sagði Geir, en hann var samt búin að upplýsa okkur pöpulinn um það að þeir Brown hefðu átt "uppbyggilegt samtal".  Hann hefur ef til vill bara dreymt það. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.2.2009 kl. 09:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 2985803

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband