Leita í fréttum mbl.is

Óeirðabílar það sem koma skal?

Ég er ekki hissa á að lögreglustjóri hafi ætlað að flytja inn óeirðabíla frá dönsku lögreglunni.

Vanir menn vönduð vinna eða þannig.

Yfirvöld að fyrrverandi dómsmálaráðherra meðtöldum hafa viljað auka vopnabúr lögreglunnar, gasið hefur óspart verið notað, rafbyssur hafa verið í umræðunni og því þá ekki brynvarðir bílar á óþæga mótmælendur?

Þetta væri fyndið ef tilhugsunin væri ekki svona skelfileg.

Að það hafi í alvörunni átt að grípa til aukins ofbeldis gagnvart borgurum í friðsömum mótmælum.

Með friðsömum mótmælum á ég við mótmæli án líkamlegs ofbeldis, sem 99,9% mótmælenda stunduðu, þar á meðal ég sjálf.

Og endilega hættið að rugla saman eignaspjöllum og ofbeldi.

Hávaða og ofbeldi.

Eggjakasti og ofbeldi.

Lámark að hinir gaggandi verjendur lögregluofbeldis geri greinarmun þarna á.

Hvenær koma svo byssurnar í umræðuna?

Hvað segir Björn Bjarnason við þessari "hugmynd" lögreglustjórans?

Nú er fyrirsjáanlegt að mótmæli verði mun algengari en áður var.  Fólk mun grípa til aðgerða til að veita stjórnvöldum aðhald ef í harðbakka slær eða þegar einhver sofnar á verðinum.

Verða óeirðabílar notaðir til að brjóta fólkið á bak aftur?


mbl.is Vildi ekki beita meiri hörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Þar höfum við það. Betra að hugsa sig tvisvar um næst, áður en mótmælt verður.

Björn Haraldur og Danir. Ég fæ hroll

hilmar jónsson, 6.2.2009 kl. 17:47

2 Smámynd: Tiger

 Þegar mótmælendur (sumir allavega) eru farnir að haga sér að erlendri fyrirmynd - finnst mér það í fínu lagi að lögreglan geri það líka. Eða hvað finnst ykkur - að lögreglan eigi að standa og láta kveikja í sér eða kasta steinhellum í sig (ofbeldi já) án þess að búa sig betur svo þeir geti varið sig betur næst. Myndi segja að lögreglan sé í góðum rétti að búa sig að erlendri fyrirmynd fyrst mótmælendurnir eru farnir að haga sér að slíku líka ...

Tiger, 6.2.2009 kl. 18:13

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Það eru samt þarna einhverjir sem láta öllum illum látum, það gengur ekki að leyfa þeim bara að gera það sem þeim sýnist...

Jónína Dúadóttir, 6.2.2009 kl. 18:28

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Óeirðabílar? Eru það bílar sem fara ekki í gang..............?

Hrönn Sigurðardóttir, 6.2.2009 kl. 18:38

5 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Ætli Björn hafi ekki laumað þessari hugmynd að Stefáni!

Ingibjörg Hinriksdóttir, 6.2.2009 kl. 19:26

6 identicon

Hrönn, er fótaeirð þá þegar maður þarf að setja aðra framfyrir hina til að komast milli staða?

Vignir (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 19:33

7 identicon

fótaóeirð átti þetta að vera

En óeirðabílunum má ekki blanda saman við Óreiðubíla, það eru allar þær týpur sem Jón Ásgeir og féllagar aka, Bentley, Range, Hummer og hva þetta heitir allt.

VIgnir (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 19:55

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Vignir: Það er það sem er búið að hrjá mig svo lengi sem ég man eftir.  Sko fótaóeirð.  Meira og minna allan daginn þjáist ég af þessu og set annan fram fyrir hinn, og ég enda út um allt vegna þessa.

Takk.

Tiger: Látteggieins og banani.  Að erlendri fyrirmynd hvað?

Við búum í lýðræðisríki og það er ekkert að því að mótmæla.

Þessir óróaseggir eru innan við tugur manna.  Þarf bíl á þá?

Vignir: Þú ert voða blíður þessa dagana.  Ertu lasin?

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.2.2009 kl. 20:52

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hilmar: Við látum EKKERT stoppa okkur.

Ingibjörg:Björn mun hafa stoppað þetta.

Hrönn: Arg.

Jónína: Ég spyr er réttlætanlegt að fara í stríð við almenning vegna örfárra óeirðaseggja?

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.2.2009 kl. 20:53

10 identicon

Óeirðarbílar eru lík bílar með krakkaskröttum í baksæti.

Mófó, fótavésenið... farðu í fjarðarkauk og keyptu Magnesium bauk, leysir upp í sjóðandi vatni og drekkur á kvöldin... veit það þarf ekki að segja þér það tvisvar að ddrekka eitthvað til að líða betur :)

En þetta fiffar fótaflippið, láttu mig svo vita í kommentakerfi með árangur, ég fygist með.

VIgnir (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 21:01

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég geri það skömmin þín.

Múha, ég tek alltaf áskorun um að drekka, þó það sé bara fokkings magnisium.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.2.2009 kl. 21:30

12 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

....veit ekki Vignir! Hvort eru fæturnir á þér óeirðafætur eða óreiðufætur?

Hrönn Sigurðardóttir, 6.2.2009 kl. 21:32

13 identicon

óreiðan er á milli eyrna minna, fæturnir eru f flækjutegund.

Vignir (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 22:12

14 Smámynd: Kristján Logason

Þú spyrð hvenær byssur komi í umræðuna.

Þær eru í umræðunni

http://www.smugan.is/pistlar/adsendar-greinar/nr/773 

Kristján Logason, 8.2.2009 kl. 01:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 2985769

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband