Leita í fréttum mbl.is

Appelsínugula byltingin er hafin - úje

appelsínuguliborđinn

Ţađ er enn slatti af fólki niđur viđ Alţingi og flestir í appelsínugulu. Sú litfagra bylting er hafin og ég er hluti af henni.

Ţađ má sjá á síđunni minni, ég er ekkert fyrir hálfkák, allt líf mitt er appelsínugult fram ađ ţjóđstjórn, eđa réttara sagt, fram ađ stjórnarslitum.  Frá ţví verđur ekki vikiđ.

Appelsínugult er litur búddistanna.  Ţađ eru flott trúarbrögđ.  Fylgjendur ţeirra eru ekki ađ trođa trú sinni upp á annađ fólk, elska friđinn og svona. 

Ef ég vildi endilega ganga í trúfélag ţá fćri ég ţangađ.  En ég vil ekki fćđast aftur sem kakkalakki eđa könguló, ţađ er bara ekki ég.  Ég vil fćđast aftur sem John Lennon eđa Martin Luther King.

Já, ég á mér draum.

Appelsínugulur matur er fínn.

Gulrćtur og appelsínur.  Nammi.

Blóm eru falleg í ţessum tón og fleira og fleira.

Hér verđa borđađar gulrćtur út í eitt ţar til yfir líkur.

Ég vil benda ykkur á tilmćli frá Röddum fólksins ađ mótmćla ekki eftir klukkan átta annađ kvöld og á laugardagskvöldiđ.

Ţá er djamm í bćnum og djammararnir myndu kannski vilja slást í hópinn međ afleiđingum.

En á laugardeginum verđur fundur á Austurvelli kl. ţrjú eins og venulega.

Svo má auđvitađ fremja trommuslátt niđri viđ Alţingi allan guđslangan morgundaginn.

Svei mér ţá ég á ekki til appelsínugula flík í öllu mínu fatasafni.

Ekki lit ađ sjá í skápunum.  Ekki einu sinni hálsklútur.

Allt svart, brúnt og grátt.

Hvernig átti ég ađ vita ađ ég vćri á leiđ í byltingu og ađ mig myndi vanta júníform?

Jćja, farin ađ lúlla.

Friđur og hamingja veri međ yđur öllum.

Hari Kristna.

P.s. Ég ćtla ađ segja ykkur ţađ svona í trúnađi ađ í mínum huga heitir ţessi bylting ekkert annađ en pottabyltingin.


mbl.is Mótmćlt í góđri sátt
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Frábćrt

Sigrún Jónsdóttir, 23.1.2009 kl. 01:07

2 Smámynd: Ragnheiđur

Farđu í búđ, einhverja búđ og náđu ţér í flíkur í öllum regnbogans litum, ţá ertu ávallt tilbúin eins og skátarnir...

Góđa nótt skvís...

mótmćlabarniđ mitt er enn ekki komiđ heim....

Ragnheiđur , 23.1.2009 kl. 01:08

3 Smámynd: Tómas Ingi Adolfsson

Fólk er búiđ ađ vera ađ dreifa appelsínugulum borđum í dag og í kvöld ţannig ađ ţađ er ekki erfitt ađ nálgast slíkt...

Tómas Ingi Adolfsson, 23.1.2009 kl. 01:11

4 Smámynd: Brjánn Guđjónsson

ţegar ég, gamli Brjánn hrekk upp af, endurfćđist ég sem nýi Brjánn. laus viđn skuldirnar en held öllu hinu. svona á ađn gera ţetta Jenný. Orange er líka fínt. mér finnast appelsínur góđar.

Brjánn Guđjónsson, 23.1.2009 kl. 01:20

5 Smámynd: Hörđur B Hjartarson

Kreppukallinn góđur .

Hörđur B Hjartarson, 23.1.2009 kl. 01:25

6 Smámynd: Svanur Gísli Ţorkelsson

Ađ hćtti Úkraínubúa sem eiga hina upphaflegu "orange" byltingu ćtti sú íslenska ađ enda núna í Janúar. Ţeirra bylting stóđ frá síđari hluta nóvember 2004 til janúar 2005.

Svanur Gísli Ţorkelsson, 23.1.2009 kl. 01:38

7 Smámynd: Jóna Kolbrún Garđarsdóttir

Ég ţarf ađ finna mér eitthvađ appelsínugult fyrir helgina

Jóna Kolbrún Garđarsdóttir, 23.1.2009 kl. 01:56

8 identicon

Hagkaupspokar  eru appelsínugulir. Hćgt ađ binda ţá um handlegginn,svona smá kreppuráđ var međ svoleiđis í dag

Guđbjörg Sigurđardóttir (IP-tala skráđ) 23.1.2009 kl. 02:30

9 Smámynd: Eygló

vćri ekki hćgt ađ komast í vestin sem bćjar/borgarstarfsmenn klćđast til ađ sjást.

Létt, órans, skjól, endurskin, vatnshelt (má spúla)

eru ekki hlauparar međ eitthvađ svipađ

Annars er ţađ bara Rauđi krossinn međ e-a órans dulur og flíkur sem hanna mćtti auđkennisborđa úr.

Eygló, 23.1.2009 kl. 03:47

10 Smámynd: Óskar Steinn Gestsson

Ég tek undir međ kreppukallinum, ţegar lögreglan ber appelsínugulan borđa ţá skal ég bera hann, annars er mér illa viđ ađ flokka mig sem appelsínugulan ţegar ég er svona svakalega svartur

Óskar Steinn Gestsson, 23.1.2009 kl. 05:46

11 Smámynd: Hrönn Sigurđardóttir

Appelsínugula búslóđabyltingin!

Hrönn Sigurđardóttir, 23.1.2009 kl. 06:35

12 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Kona eins og tú med allt appelsínugult í kringum sig mćtir bara á svćdid tad sjá allir appelsínugula litinn.Tú ert bara svo frábćr.

Gangi ykkur vel.Sammála ad mótmćla ekki á helgarkvöldum.

Kvedja frá Jyerup

Gudrún Hauksdótttir, 23.1.2009 kl. 08:03

13 Smámynd: María Guđmundsdóttir

bara flott, uss..geturdu ekki reddad thér gódum sjóstakk?? yrdir megaflott i honum en list vel á thetta ad sleppa helgunum,thad yrdi bara tómt rugl.

Hafdu góda helgi Jenný

María Guđmundsdóttir, 23.1.2009 kl. 08:42

14 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Pottabyltingin, já. Gott orđ!

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 23.1.2009 kl. 09:00

15 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Einhverntíma átti ég ţennan líka fagurappelsínugula sjóhatt.  Hvar er hann í dag?  Nú vćri ég til í ađ bera slíkt höfuđfat........

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 23.1.2009 kl. 09:11

16 Smámynd:

Er styđjandi appelsínugulri pottabyltingu  Ef ekki vill betur má bara ţrćđa appelsínur upp á band og hengja um hálsinn

, 23.1.2009 kl. 09:23

17 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Björn: Góđur.

Dagný: Ţú ert međ ţetta.

Lísa: Ţá er ađ kafa ofan í skúffur og skápa.

Ingóflur: Frábćrt og lýsandi byltingarheiti og alls ekki ógnandi.

María: Ég er tildurrófa, ég enda međ ađ kaupa mér eitthvađ í Karen Millen eđa Evu!

jyderrupdrottning: Takk fyrir ţetta.

Óskar Steinn og kreppukall: Ég er í raun sammála ykkur ađ vel flestu leyti.

Hrönn: Flott.  Hehe.

Guđbjörg og Eygló: Viđ finnum út úr ţessu.

Jóna Kolbrún: Farđu og leitađu í skápunum.

Svanur Gísli: Sjitt ađ ţeir skuli hafa veriđ á undan.

Hörđur: Kreppukallinn er alltaf góđur.

Brjánn: Sounds like a plan.

Tómas Ingi: Hárborđar eru flottir og líka svona eins og á myndinni hjá mér.

Ragga: Góđ hugmynd.

Sigrún: Sjáumst í byltingunni.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.1.2009 kl. 09:52

18 Smámynd: Svanur Gísli Ţorkelsson

Potta og pönnu byltingin er líka hćgt ađ nota, félagi Björn. Ţađ hefur margar sniđugar skírskotanir í íslensku málfari. Í slíkri byltingu er fólkiđ sjálft potturinn og pannan í öllu saman.

Svanur Gísli Ţorkelsson, 23.1.2009 kl. 11:19

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 2985769

Annađ

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.