Leita í fréttum mbl.is

Orðið á götunni- Stjórnin fallin!!

Sú saga gengur fjöllunum hærra að stjórnin sé fallin.

Að þingfundi sé frestað fram til 4. febrúar.

Guð láti á gott vita.

Vó ef satt er.


mbl.is Fundað með flokksformönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Villi Asgeirsson

:o)

Villi Asgeirsson, 21.1.2009 kl. 13:22

2 identicon

Vertu ekki að leggja þetta á Guð okkar.  Sé stjórnin fallin, þá er voðinn vís og allt fer líklega í hina áttina, þ.e.a.s. niður!

Freyr (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 13:22

3 identicon

Já... og ef við ættum að blanda honum í þetta... þá segi ég "Guð hjálpi okkur endanlega ef VG kemst til valda!"

Freyr (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 13:24

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Freyr: Guð veri með þér.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.1.2009 kl. 13:25

5 identicon

Já ef VG kemst fram... takk fyrir það.  Annars vona ég helst að fólk fari að þroskast, taka á málunum af ábyrgð og bjarga fjölskyldunum sem þurfa sko meira á þessari guðs blessun að halda. 

Hvernig sem þetta verður nú, kosningar eða ekki, þá gerist það ekki hviss bang.  Því þarf að leysa málin strax fyrir fólkið.  Leyfa fólki að taka út séreignarsparnaðinn, finna lausnir til handa fólki með erlend lán (önnur en tímabundin), frysta verðtrygginguna, o.s.frv.  Þetta verður að gerast strax... kosningar mega mín vegna koma í kjölfarið.  

Skynsemin verður að ráða... ekki ómerkileg loforð VG í slæmu ástandi.

Freyr (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 13:30

6 Smámynd: Þórarinn M Friðgeirsson

Það er Jenný spurning um hvað gott þykir og mikið finnst mér þessi Guð sem þú ert að vísa í vera að reyna á okkur núna. Líklega hefur hann/hún ekkert haft með útrásina og sukkið að gera ? Ég held að orðið á götunni sé alveg á réttri leið og ekkert annað hægt að gera í stöðunni en fara í kosningar en það þarf einhverjar góðar vættir til að hjálpa okkur ef um langvarandi stjórnarkreppu verður hér að ræða eftir kosningar en maður spyr sig.

Þórarinn M Friðgeirsson, 21.1.2009 kl. 13:32

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þórarinn: Ég trúi ekki á guð, tók svona til orða.

Ég held að það eigi eftir að koma fram nýtt framboð úr grasrótinni.

Við verðum að hugsa út fyrir þetta hefðbundna flokkamynstur.

Allt er breytt. Ég vil nýtt blóð inn á þing.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.1.2009 kl. 13:34

8 Smámynd: Heimir Eyvindarson

Er niður í hina áttina Freyr? Erum við semsagt á uppleið???

Heimir Eyvindarson, 21.1.2009 kl. 13:36

9 Smámynd: Ár & síð

Förum endilega ekki að blanda saman guði og pólitík, það hefur yfirleitt gefist illa og gæti endað með fósfor.
Ég myndi sætta mig vel við Vilhjálm Bjarnason sem utanþingsráðherra bankamála og Jón Daníelsson í fjármálaráðuneytinu með fleiri fagmenn sér við hlið.
Matthías

Ár & síð, 21.1.2009 kl. 13:36

10 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

Þú vilt sem sagt frekar utanþingsstjórn en þjóðstjórn fram að kosningum?

En við skulum samt gæta okkar á að súpa ekki kálið fyrr en í ausuna er komið - enn er þetta bara kvittur.

Björgvin R. Leifsson, 21.1.2009 kl. 13:41

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Björgvin: Þetta mun staðfest en ég þori ekki að trúa fyrr en ég tek á.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.1.2009 kl. 13:46

12 identicon

Nýtt afl... bönnum fyrrverandi stjórnmálamenn, látum þá vinna á sorphaugunum ásamt elítunni.

DoctorE (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 13:47

13 Smámynd: Ár & síð

Eins og staðan er núna held ég að blanda þingmanna og utanþingsmanna sé skársta lausnin - góðar lausnir eru engar til.

Ár & síð, 21.1.2009 kl. 13:50

14 Smámynd: Harpa Oddbjörnsdóttir

OMG, ég er með fiðrildi í maganum af spenningi! Loksins(vonandi) fáum við að kjósa!

Harpa Oddbjörnsdóttir, 21.1.2009 kl. 13:50

15 Smámynd: Ragnheiður

Ja nú verður spennandi að sjá, ég trúi heldur ekki fyrr en ég tek á.

Það hafa aðrir en ég staðið fyrir mótmælum, algerlega í mína þágu og fyrir það er ég þakklát.

Þið stóðuð þarna fyrir mig vegna þess að ég gat það ekki sjálf.

Hip hip húrra !

Ragnheiður , 21.1.2009 kl. 14:12

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Vonandi er þetta rétt.  Reyndar stendur í mogganum að það eigi að vera löng umræða um efnahagsmál á morgun.

Bíðum og sjáum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.1.2009 kl. 14:15

17 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

Ég tek undir orð Ragnheiðar hér að ofan. Ég bý á Húsavík og hef ekki getað tekið þátt í mótmælunum, þvi miður.

Mótmælendur! Takk fyrir að standa vaktina fyrir mig og meirihluta þjóðarinnar.

Björgvin pabbi hans Himma (en það er einhver allt annar Himmi).

Björgvin R. Leifsson, 21.1.2009 kl. 14:24

18 identicon

Og hvað ætlið þið að kjósa gott fólk, sem bíðið svona spennt eftir kosningum? Hvað haldið þið að gerist með nýtt fólk við stjórnartaumana?

Erla (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 14:25

19 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Aukafréttir á Rúv eftir 2 mín

Heiða B. Heiðars, 21.1.2009 kl. 14:29

20 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

Sem stofnfélagi í VG reikna ég frekar með að kjósa minn flokk. Hann hefur aldrei komið nálægt ríkisstjórnum sjálfstæðisflokksins þessi 18 ár, sem þær hafa verið við lýði. Hann hefur stöðugt varað við einkavæðingunni og afleiðingum hennar, sem eru svo berlega komnar og eru enn að koma í ljós.

En sú stjórn sem tekur við verður að taka á vandanum hvort sem henni líkar betur eða verr. Fólkið í landinu mun ekki líða annað. Það er aðalatriðið burtséð frá því hvaða flokkar, nýir eða gamlir, verða í stjórninni.

Björgvin R. Leifsson, 21.1.2009 kl. 14:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband