Sunnudagur, 18. janúar 2009
"Bið að heilsa jólasveininum og kysstu á mér rassinn"
Til hamingju formaður Framsóknar.
Ég er kurteis og ég kann mig.
Óska honum velfarnaðar.
En ég var að pæla í því þegar ég sá viðtalið við Björn Bjarna hjá Agli og umfjöllum um Framsókn í sjónvarpinu, fréttir af meikóverinu hjá Samfó sem er að fara í fundaherferð, að allt þetta fólk í stjórnmálaflokkunum er ekki búið að ná því sem almenningur er með á hreinu.
En það er að heimurinn snýst ekki í kringum flokkinn og þeir eru enginn djöfulsins nafli alheimsins.
Flokkurinn þvælist heldur ekki neitt sérstaklega fyrir fólki svona almennt séð held ég, vel flestir eru búnir að átta sig á að það mun þurfa meira til en meikóver hér, nýjan mann þar og loforð hist og her til að fullnægja þörf þessarar þjóðar fyrir réttlátu og gegnsæju þjóðfélagi.
Auðvitað er enn fólk sem hangir á sínum flokk eins og hundar á roði og ég skil það alveg upp að vissu marki.
Fjórflokkarnir (eða fimmflokkarnir) hafa verið í boði svo lengi sem við munum.
Fjarvera frá kjörstað nú eða auð atkvæði hafa ekkert að segja.
Auð atkvæði eru talin með ógildum sem lýsir auðvitað hugarfarinu sem við búum við.
Þegar ég skila auðu þá er ég að greiða atkvæði.
Þegar ég skrifa ¨Bið að heilsa jólasveininum og kysstu á mér rassinn" þá er ég að eyðileggja kjörseðilinn.
Ég ætla ekkert að vera leiðinleg og með úrtölur út af nýjum formanni í Framsókn. Hann er örugglega alveg ágætur og hann virðist ósköp viðkunnanlegur maður.
En það er bara ekki málið.
Nú á landsfundur Sjálfstæðisflokksins eftir að beita mann fjölmiðlaofbeldi eftir hálfan mánuð, þeir eru vissir um að allir bíði með önd í háls eftir niðurstöðunni.
Rólegir, mér er sama, svo mörgum er sama.
Við viljum nýtt Ísland en ekki sama graut í sömu skörðóttu skálinni.
Ajö.
Sigmundur kjörinn formaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Lífstíll, Sjónvarp, Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 9
- Sl. sólarhring: 13
- Sl. viku: 78
- Frá upphafi: 2987159
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 76
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr
Athugasemdir
Mér hefur alltaf fundist hugtakið "ungir framsóknarmenn" vera eins og úr vísindaskáldsögu. Eru í alvöru til ungir framsóknarmenn?
Helga Magnúsdóttir, 18.1.2009 kl. 19:02
Burt með flokksræðið
Sigrún Jónsdóttir, 18.1.2009 kl. 19:32
Finnið þá betra fólk og farið að presentera það, það er of seint nokkrum dögum fyrir kostningar, ekki væla um að allir séu ómöglegir þegar þið hafið ekkert betra.
Óskar (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 20:51
Einu sinni var pólitíku lýst svo í mín eyru: „... er eins og loðnudæla og ef maður er heppinn koma tvö orð af viti af hverjum tíuþúsund sem (einstaklingurinn) lætur út úr sér.“
Mér rétt flaug þessi setning í hug þegar ég sá viðtal Jóhönnu Vigdísar við nýja formanninn í fréttunum í kvöld.
Æ voder væ?
Þorsteinn Úlfar Björnsson (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 20:52
Mér líst nú bara vel á Framsókn núna, og já það er til mikið af ungu framsóknarfólki
Arnar Hólm Ármannsson, 18.1.2009 kl. 21:13
Þarf ekki örugglega alla vega báða formennina sem að koznir voru, með 5 mínútna millibili, til að kyzza allann þennann eðalrazz ?
Steingrímur Helgason, 19.1.2009 kl. 00:54
Sæl veriði. Ég er ungur framsóknarmaður. Ég er ekki alveg að skilja. Almenningur segist vilja breytingar. Grasrótin í Framsókn knýr fram breytingar. En nei. Þetta eru ekki nógu góðar breytingar. Núna spyr ég, hvað viljið þið sjá breytast?
Oft er besta meðalið við neikvæðni, sem einkennir þjóðfélagið í þessari krísu sem við erum í, jákvæðni og bjartsýni.
Ég held að fólk, sem er með jafn sterkar skoðanir og margir í bloggheimum, ættu að koma að málefnavinnu í þeim flokki sem á best við sig og láta af sér kveða.
Ég lét af mér kveða, ég vildi breytingar og ég sá þær koma. Ég virði ykkar skoðanir, og er þess vegna orðinn leiður á að litið sé niður á mann af fólki með aðrar skoðanir.
Vinnum saman að því að koma okkur úr krísunni og sýnum samstöðu.
Kv. Einar Freyr
Einar Freyr (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 15:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.