Leita í fréttum mbl.is

Hvað gerðist?

Ég hef farið á þá borgarafundi sem haldnir hafa verið í Háskólabíói nema í gær þá geisaði hér styrjöld við bakteríukvikindi.

Ég beið eins og óð fluga eftir fréttum af fundinum en aðrir hafa þegar tíundað skortinn á þeim.

Furðulegt að 8. borgarafundur fyrir fullu húsi skuli ekki vekja meiri athygli en svo að maður þurfi að leita með logandi ljósi af frásögnum um hann.

Nú sit ég hér og veit ekki hvað ég á að halda varðandi ráðherrann sem sendi Sigurbjörgu Sigurgeirsdóttur skilaboð um að hún skyldi tala varlega á borgarafundinum.

Gulli segir ekki ég.

Sigurbjörg segist ekki ætla að gefa það upp hver ráðherrann sé.

Ég las líka einhvers staðar að Sigurbjörg vildi ekki að fókuserað væri um of á þetta atriði og framhjá því sem skiptir máli.

Ég er algjörlega ósammála.

Það skiptir ÖLLU máli ef ráðherra í ríkisstjórn Íslands hótar starfsmanni og varar hann við að tala um ákveðna hluti á lýðræðislegum vettvangi.

Hvað gerðist og hver er ráðherrann?


mbl.is Guðlaugur kemur af fjöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Himmalingur

Guðlaugur á að fara til fjalla!

Himmalingur, 13.1.2009 kl. 14:31

2 identicon

  Það hlýtur að skipta mestu máli ef það reynist rétt að fólki sé hótað.Önnur atriði ery bara húmbúkk miðað við það.

Höður Már Karlsson (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 14:32

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Það er ekkert nýtt að fólk fái símtöl og hótanir ef það ætlar að tala á mótmælafundum. Málið virðist bara vera svo eldfimt að fáir þora að tjá sig um það. Hvað segir það okkur um ógnarskoðanakúgunina sem hér ríkir?

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 13.1.2009 kl. 14:38

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hörður Már: Ekki misskilja mig, ég trúi Sigurbjörgu og ekki efi í mínum huga að henni var hótað.

En við erum í lausu lofti, það eru upplýsingar út um allt sem fást ekki staðfestar og mér finnst skipta máli að það sé hægt að negla þessa kóna, gera þeim erfiðara fyrir.

Þess vegna finnst mér algjört grundvallaratriði að fá að vita hver þetta er þó ég telji mig vita það.

Hilmar: Nokkuð til í því.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.1.2009 kl. 14:41

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Katrín: Ég veit það, en ég tel þetta skipta miklu máli.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.1.2009 kl. 14:42

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jenný mín þetta gæti  verið nánast hvaða ráðherra sem væri, ef hann hún óttaðist að á sig yrði hallað í ástandinu í dag.  Þau eru öll í bullandi vörn og afneitun.  Enda orðin toguð og teygð af bröltinu í okkur almenningi.

En hvað er það sem heldur í þau að sitja áfram? Það er spurningin sem við hljótum að hafa áhyggjur af.  Hvaða tök hefur Davíð Oddsson á þeim öllum saman upp til hópa sem verður til þess að utanríkisráðherra bakkar með öll sín fyrri ummæli  um að hann verði að víkja og "treystir" honum allt í einu manna best.

Það liggur þarna einhver skelfilegur skítur sem þau eru hrædd við að komi upp á yfirborðið.  Þess vegna er slímseta þeirra hrópandi.  Ég veit að þannig var farið með Sverri Hermannsson, hann lét bara ekki hóta sér og því var hann ataður auri, ekki að ég sé að verja hans gjörðir, en það sem hann gerði var gert af öllum bankastjórum landsins.  En af því að hann óhlýðnaðist var byrjað að leita að ávirðingum.  Hann sagði mér þetta sjálfur.  Þetta eru vinnubrögð sem hafa viðgengist lengi virðist vera.  Og alltaf eru til kjánar sem vilja ekki trúa neinu, eða hrópa upp til varnar ef hallað er á þetta lið.  Ég er alveg orðin yfir mig hissa á hve fólk getur annað hvort verið bláeygt, eða miklir kjánar að halda að hér sé allt í besta standi, stjórnvöld eyði nótt við dag að "bjarga okkur" 

Nýja Ísland mun koma, það verður ekki nýtt land fyrir núverandi stjórnvöld eða pótintáta.  Það skal verða okkar lýðveldi byggt á sanngirni, heiðarleika og hreinleika. 

Fyrst þurfum við sennilega að fara að auglýsa eftir borðinu sem allt á að vera upp á.  Það hefur ekki sést til þess ennþá.  Ég spyr eins og ég sá hér einhversstaðar HVAR ER BORÐIÐ!!!

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.1.2009 kl. 14:52

7 Smámynd: Soffía Valdimarsdóttir

Sigurbjörgu ber að koma fram með nafn þessa ráðherra. Fjölmiðlar upplýsa okkur ekki um eitt eða neitt, stjórnvöld standa ekki vörð um hagsmuni okkar og eftirlitsstofnanir sinna ekki starfi sínu. Þess vegna verðum við fólkið að vinna verkin sjálf.

Sigurbjörg, kláraðu það sem þú byrjaðir á. Annars ertu bara eins og Davíð Oddsson!

Soffía Valdimarsdóttir, 13.1.2009 kl. 14:53

8 Smámynd: María Guðmundsdóttir

innlitskvitt Jenný.

hafdu gódan dag

María Guðmundsdóttir, 13.1.2009 kl. 14:53

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Soffía: Sigurlaugu BER ekki að gera eitt eða neitt.

Ríkisstjórninni BER hins vegar að segja af sér og áður en hún gerir það BER henni að láta DO og forstjóra FME gossa.

Ásthildur: Ég er til í að fara að leita að þessu borði.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.1.2009 kl. 15:02

10 Smámynd: Kristján Logason

Geiri og solla hljóta að ganga vasklega fram í að upplýsa málið. Ekki geta þau setið undir því að í ríkistjórnarliðinu séu menn með hótanir í garð fólks. Eða hvað? Leysi stjórnin ekki úr málinu strax og fjarlægi viðkomandi er stjórninni nokk sama. Það var því gott hjá henni að segja ekki til um það hver er á bak við hótanirnar því nú liggur öll stjórnin undir grun og verður að hreynsa sig. Hún neiðist til að hreynsa til eða vera samsek ella

Kristján Logason, 13.1.2009 kl. 15:10

11 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Á ekki að sýna frá fundinum á MIÐVIKUDAGINN, sem sé rækilega ritskoðaðan og klipptan. 

Ía Jóhannsdóttir, 13.1.2009 kl. 15:17

12 Smámynd: S. Lúther Gestsson

Sigurbjörg vill ekki gefa nafnið upp.

Sigurbjörg vill ekki tala um málið eftir að þetta varð fjaðrafok.

Þá verður maður að velta því fyrir sér hvort Sigurbjörg er að sega satt. Ég held að þetta hafi einungis verið klaufalega orðað hjá henni og þetta hafi aldrei átt að hafa verið svona mikið mál.

Spurning hvort Sigurbjörg vilji ekki bara leiðrétta þennan miskilning allann.

S. Lúther Gestsson, 13.1.2009 kl. 15:26

13 identicon

Vissulega ber Sigurbjörgu ekki að gera neitt en mér finnst alveg hiklaust að hún eigi að greina frá því hver á í hlut.  Að mínu mati eru ásakanir hennar ekki trúverðugar nema hún segi frá því hvaða ráðherra hafði í hótunum við hana.  Hún á ekki að falla í sama pytt og ráðherrann, þ.e. að vera með hótanir á bakvið tjöldin

Sandra (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 15:28

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sandra: Ég er sammála, það væri ákjósanlegt að hún greindi frá nafni ráðherrans. Annars fer hellings orka í að spá og spegúlera í því hver hann sé.

Lúther: Hún á eftir að gera það.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.1.2009 kl. 16:10

15 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Auðvitað átti Sigurbjörg að nefna nafnið úr því hún var að þessu á annað borð.

Sigurður Þór Guðjónsson, 13.1.2009 kl. 17:03

16 identicon

Sæl

Hún á að nefna þann aðila sem lagði fram þessa hótun. Hún á ekki að láta þetta liggja í loftinu því á meðan það er svo er hún ómerkingur. Því miður. Þá er hún eins og Reynir Trausta.

Kv.

Sveinbjörn

SveinbjornK (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 17:20

17 Smámynd: S. Lúther Gestsson

Reyniði að átta ykkur á þessu. Sigurbjörg getur ekki nefnd neitt nafn. Áður enn þetta kaffærir allt bloggsvæði moggans og fyllir allar tölvur heimilanna af vírusum þá á hún að taka þetta til baka.

Er Sigurbjörg manneskja til þess? Sjáum til.

S. Lúther Gestsson, 13.1.2009 kl. 17:30

18 identicon

Sæl öll

Þá er það komið á hreint að vinkona hennar Ingibjörg Sólrún "hótaði henni" sem vini. Svo getið þið hent upp á hvorri þið trúið, þeirri sem kaus að slá sig til riddar með þessu í Háskólabíói eða hinum vandaða stjórsýslufræðingi.

Það er ekki oft sem ég kýs ISG en það geri ég í þetta skipti. Sorry.

Kv.

Sveinbjörn

SveinbjornK (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 21:56

19 identicon

Sæl aftur smá leiðrétting

Átti að vera "þeirri sem kaus að slá sig til riddar með þessu í Háskólabíói, þessum vandaða stjórnsýslufræðingi eða ISG."

Kv.

Sveinbjörn

SveinbjornK (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 22:01

20 identicon

Við viljum fá beina útsendingu í sjónvarpi frá fundinum. Er ekki líka fólk á landsbyggðinni ?

Margret S (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 14:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 2985788

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.