Leita í fréttum mbl.is

Allt fyrir almenning

Blaðamennirnir á DV ætla ekki að segja upp vegna klúðurs Reynis Traustasonar.Mér kemur það svo sem ekkert á óvart og alfarið þeirra að ákveða það.

En ég hló samt smá þegar ég las eftirfarandi:

„Við tókum þá ákvörðun að sinna okkar skyldum við lesendur og áskrifendur að gefa út blað,og  halda því áfram,“ sagði Kolbeinn Þorsteinsson, trúnaðarmaður blaðamanna á DV að loknum starfsmannafundi í dag.

Miðað við stöðu almennings á Íslandi, hversu illa hefur verið farið með hann eftir bankahrun, ekki á hann hlustað, hann ekki virtur viðlits, talað niður til hans og ákvarðanir teknar þvert á vilja hans þá er merkilegt hvað sá sami almenningur er öllum kær við vissar aðstæður.

Blaðamenn á DV ætla að "þrauka" til að geta gefið almenningi upplýsingar (vonandi óritskoðaðar).

Og það sem öllu alvarlegra er, er að ríkisstjórnin er búin að bíta það í sig að sitja og stjórna þessum saman almenningi með heill hans í huga og viðkvæðið er að það væri ábyrgðarleysi að hlaupa af vettvangi í miðjum björgunaraðgerðum.

Þá skiptir engu hvað andskotans almenningi finnst um það.

Það skiptir ekki einu sinni máli þó það hafi komið margsinnis fram að ríkisstjórnin nýtur ekki trausts meðal  títttnefnds almennings sem mun þegar upp er staðið borga brúsann.

Sjitt. 

Almenningurinn. 


mbl.is Sinnum okkar skyldum við lesendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Jennslan mín... komdu yfir á mína síðu ;)

:.....og þið hin líka...núna strax! :)

Heiða B. Heiðars, 17.12.2008 kl. 19:18

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Vitaskuld ætla þeir ekki að segja upp! Það er nú hægara sagt en gert að fá vinnu nowadays........

Heiða ég kem ;) 

Hrönn Sigurðardóttir, 17.12.2008 kl. 19:43

3 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessuð Jenný.

Munurinn er sá að við þurfum ekki að kaupa DV.  Árni segist vera á réttri leið því hann er óvinsælasti maður landsins.  Samkvæmt þeirri speki var Idi Amin einn al farsælasti stjórnmálamaður heimsins. 

Þið eru ekki þjóðin og fólk er fífl.  Og þannig mun það vera þar til ömmur þessa lands setjast niður á Lækjartorgi og prjóni þessa stjórn burt.  Það dugði í Argentínu á sínum tíma og hví ætti það ekki duga hér? 

Ógæfufólkið sem stjórnar okkur gæti breyst í gæfufólk ef nógu margar ömmur brosa til þess og biðja barnabörnum þeirra griða.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 17.12.2008 kl. 20:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband