Leita í fréttum mbl.is

Tvennt lýsir með fjarveru

Gott og vel, Reynir biður lesendur og blaðamenn afsökunar og lofar að aldrei aftur muni óttinn stýra fréttaflutningi DV.

En það vantar tvennt í þessa yfirlýsingu.

Fyrst Reynir er kominn úr óttaskápnum þá verður hann að segja við hvern hann var hræddur.  Fara alla leið.

Hver á hagsmuna að gæta varðandi fréttina af Sigurjóni og það í þeim mæli að ekki megi birta hana?

Svo vantar tilfinnanlega að Reynir biðji blaðamanninn afsökunar því hann fór sérdeilis illa að ráði sínu gagnvart honum.

Það er virðingarvert þegar fólk sér að sér. 

En það þarf að gera það alla leið.


mbl.is Aldrei aftur mun óttinn stýra fréttaflutningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hmmmmm mér þykir nú ekki mikið varið í þessa afsökunarbeiðni! Hún segir eins lítið og hægt er að komast af með!  

Mér hefur svosem aldrei þótt neitt ýkja varið í DV og ekki lagaðist álit mitt með þessu.

Það er oft bezt að hafa það í huga þegar maður umgengst fólk að afsökunarbeiðni er ekki strokleður. 

Hrönn Sigurðardóttir, 17.12.2008 kl. 10:35

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það virðist vera einhver vírus í gangi, hann heitir" þöggunarvírusinn" og fer víða, sérstaklega herjar hann á stjórnmálaleiðtoga, ríkisstjórnina, Seðlabankastjórann, og allt heila klabbið, og nú er hann farinn að herja á fréttastjóra, blaðamenn og svo fer hann sennilega í okkur, þá getum við bara gleymt því að vera til lengur.  Lokum búllunni og förum til Kanarí eins og foringinn sagði hér fyrir margt löngu.  Guðni er farinn nú þegar, og er örugglega að undibúa komu okkar hinna á Klörubar. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.12.2008 kl. 10:36

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég er sammála Hrönn, afsökunarbeiðnin er yfirborðskennd og segir í rauninni ekki neitt.  Ég held að það sé "einhverjum" mikils virði að Reynir sé áfram ritstjóri.....

Sigrún Jónsdóttir, 17.12.2008 kl. 11:33

4 Smámynd: Anna

Já svo annarlega.

Anna , 17.12.2008 kl. 11:59

5 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Ég má ropa og reka við
í ríki voru
ef ég segi afsakið
öðru hvoru.

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 17.12.2008 kl. 12:53

6 identicon

Reynir er bara fáránlegur,klórar aðeins yfir

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 17.12.2008 kl. 13:50

7 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Mér finnst Reynir bara taka Dabbann á þetta..lúrir á upplýsingunum sem skipta mestu máli hér en það er auðvitað hver er að hræða. Og meðan hann þorir ekki að upplýsa hver herra Ótti er..er ekkert að marka yfirlýsinguna um að frá og með núna stjórni Ótti ekki skrifum DV. Bara luðrulegt. Og þar til hann biður unga blaðamanninn afsökunar á að reyna að taka hann aðf lífi starfslega og mannorðslega séð...er hann maður að minni.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 17.12.2008 kl. 17:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.