Mánudagur, 1. desember 2008
Tvö samhliða fjárhús teljast ekki vera þorp
Ég er skríll. Það hlýtur að vera vegna þess að ég ber virðingu fyrir fólkinu sem settist að í Seðlabankanum í dag og mótmælti á friðsaman máta því gerræði sem ríkir í landinu og að ekki skuli vera hlustað á yfirgnæfandi vilja fólksins.
Eins og Davíð burt.
Svo geysast aularnir fram á ritvöllinn og garga skríll, skríll, skríll, en flestir án þess að kenna sig við nafnið sitt. Gott að rífa kjaft og vera með attitjúd án þess að gefa sig til kynna.
Heeeeetjur.
Mig langar að fremja eitthvað og nei það er ekki morð eða ofbeldi sem ég er að hugsa um heldur andlegt spark í andskotans afturendann á þessu liði.
En svo er það lúðinn fyrir norðan. Hann gapir af hneykslan yfir framferði mótmælandi á síðunni sinni.
Er hægt að vera svona mikill plebbi án þess að vera hreinlega háaldraður Framsóknarmaður af gamla skólanum hafandi aldrei séð stærra þorp en tvö samhliða fjárhús?
Maðurinn er á unga aldri búandi í næst stærstu "borg" landsins. Agureyris.
Svo kemur fólk og segir að það sé allt í lagi með friðsamleg mótmæli, en að hlamma sér niður í Seðlabankaanddyrinu, henda eggjum í Alþingishúsið eða hrópa fyrir utan löggustöðina það má ekki.
Það er nefnilega ekki friðsamlegt.
Kæru vinir, leyfið mér að upplýsa ykkur.
Friðsamleg mótmæli teljast vera það alveg þangað til mótmælendur beita fólk ofbeldi.
Nú eða dýr.
Og hana helvítis nú.
Og mikið árann sjálfan sem mér líður betur.
Gamli hippinn er að vakna til lífsins.
Hvar er blómsveigurinn og bjöllurnar svo ég tali nú ekki um sílóið (djók).
Góðar stundir.
Við viljum bara réttlæti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Ferðalög, Menntun og skóli, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:26 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 2
- Sl. sólarhring: 19
- Sl. viku: 71
- Frá upphafi: 2987152
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 70
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr
Athugasemdir
Nú verð ég næstum hreykinn af mínum landsmönnum. Það hefur því miður ekki verið mikið um ástæðu til þess síðustu mörg ár. Nú vantar bara fjöldann. Baráttukveðjur!
Thor Svensson (IP-tala skráð) 1.12.2008 kl. 18:47
Mótmæli ... fínt. Sýna samstöðu og samhug ... líka fínt. En afhverju eggjakast? Er það nauðsynlegt? Ég spyr í alvöru.
Hugarfluga, 1.12.2008 kl. 18:55
Já, bara ekkert annað
Ásdís Sigurðardóttir, 1.12.2008 kl. 18:55
Eggjakast, sturta mykju fyrir utan hús og setjast á ganga Seðlabankans er ekki ofbeldi. Mér finnst það flokkast undir friðsamleg mótmæli þar til einhver slasast á einhvern hátt.
Helga Magnúsdóttir, 1.12.2008 kl. 19:01
Hvað með ,,nornina" þú nefnir hana ekkert? Heheheh.....
Ía Jóhannsdóttir, 1.12.2008 kl. 19:02
Stendur ekki einhversstaðar að ekki verður kaka bökuð án þess að brjóta egg. ;-) En annars, hvað er að því að kasta eggjum í mótmælum? Í Thailandi hafa mótmælendur hertekið byggingar. Það er töggur í því fólki.
Thor Svensson (IP-tala skráð) 1.12.2008 kl. 19:07
Jahá
Jónína Dúadóttir, 1.12.2008 kl. 19:16
Til hamingju með daginn
Anna Ragna Alexandersdóttir, 1.12.2008 kl. 19:30
Þú lætur aðra alltaf um að mótmæla fyrir þig, er þægilegt að sitja heima og kokka fram færslu um mikilvægi þeirra er þetta gera en svo gerir þú ekkert sjálf "hetja" eða eitthvað þannig
Kreppa Alkadóttir., 1.12.2008 kl. 19:47
Kreppa: Steinþegiðu!
Takk öll fyrir innlegg. Mínum þessi óþolandi valdasleikja.
Jenný Anna Baldursdóttir, 1.12.2008 kl. 20:26
Og ennþá halda fjölmiðlar áfram að koma með misvísandi tölur af fjölda mótmælenda. RÚV segir nokkur hundruð, Vísir segir 2000.
Enn sem komið er hefur "skríllinn" ekki sýnt af sér neitt ofbeldi en samstaðan sem þarna ríkir yljar manni inn að beini......mér varð ekki kalt fyrr en ég sá afmyndaðan fréttaflutning sjónvarpsstöðvanna. Hvað gengur þeim til?
Sigrún Jónsdóttir, 1.12.2008 kl. 20:30
Treysti þér til að fremja skriflega kinnhesta og rassskellingar á þá sem eiga það skilið.
Hólmdís Hjartardóttir, 1.12.2008 kl. 20:31
Já, ekki er hægt að segja annað en mótmælin hafi verið friðsamleg og allt endað í sátt og samlyndi við brynvarða lögregluna. Mikið hefði verið gaman að sjá lögreglumennina alla sem einn leggja niður skjöld, hjálma, gaskúta,kylfur og ég veit ekki um fleiri vopn og verjur. Það er einnig athyglisvert að bera saman fréttir á ruv, stöð 2 og mbl af mótmælunum. M.a.s. var einn fréttamanna með gamla íslenska viðhorfið; er ekki farið að draga úr þessum látum? (með "lítilli" "aðsókn" mótmælenda (á vinnudegi, í skítakulda!!)) Ég segi nú bara: hver þorir að leggja niður vinnu á miðjum vinnudegi við aðstæður sem nú ríkja? Sá sem þorir á nefnilega á hættu að missa vinnuna, því það eru svo margir atvinnulausir "þarna úti" sem slást um vinnu. Ég dáist að fólkinu fyrir sunnan sem lét sig hafa það og gat mótmælt þrátt fyrir kuldann og allt.
Nína S (IP-tala skráð) 1.12.2008 kl. 20:59
Lúðinn fyrir norðan!! HAHAHAHAHa brill
Heiða B. Heiðars, 1.12.2008 kl. 21:08
Kreppa, rosalega ertu sæt. Ertu nokkuð í stelpuhljómsveit eða eitthvað?
Villi Asgeirsson, 1.12.2008 kl. 21:10
Hörku sleggjukast hér í gangi. Sigrún, varðandi fréttaflutninginn. Allir fréttamenn á RUV eru skíthræddir um að missa vinnuna. Fréttir litaðar af því. Þetta er stjórnunarstíllinn í hnotskurn. Góð tjáning Jenný og enn betra að þér hafi liðið betur eftir á. "orðin hafa mikinn mátt ef þeim er beitt á réttan hátt, og allt yrði sagt" (lag og texti - að ég held, eftir Rafn Jónsson, heitinn).
Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 1.12.2008 kl. 21:26
Hugarfluga: Eggjakast er auðvitað ákveðin tjáning. Ég myndi ekki nota hana sjálf en ég virði þörf annarra til að sýna hug sinn með þeim hætti.
Jenný Anna Baldursdóttir, 1.12.2008 kl. 21:30
Sem oft er máttugra en orðaflaumur. Fyrir utan að það hefur jákvæð áhrif á framleiðni eggjabænda sem vonandi bætir eitthvað þjóðarbúið. Er skyrkast dottið úr tísku?
Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 1.12.2008 kl. 21:52
Ég myndi ekki tíma þessum eggjum er nefnilega að hamstra í jólabaksturinn en sem betur fer erum við ekki öll lúðar á Agureyris
Huld S. Ringsted, 1.12.2008 kl. 22:09
Tvö samhliða fjárhús eru samsæri. Tvö egg á ráðhúsi eru hallæri. Minnir að Hósea hafi ekki verið svona nískur á skyrið...........
Lísa Björk Ingólfsdóttir, 1.12.2008 kl. 22:20
Hahaha góð Lísa ;)
Þegar fleygja á matvælum þætti mér betra ef þeir væru skemmdir...sbr, fúlegg, úldnir tómatar, súrt skyr... og það allra ógeðslegasta, kekkjótt mjólk
.....úff nú kúgast ég :)
Heiða B. Heiðars, 1.12.2008 kl. 22:44
Já, Jenný, lemjum og berjum á lyklaborðið. Við ætlum hvort sem er ekki að lemja neitt lifandi.
Fjandi hefði verið skemmtilegt að sjá löggurnar rífa af sér (nei, ekki fötin) hjálpa og skildi og sameinast mótmælendum. Þeir hafa það skítt líka og hafa tapað og munu tapa enn meiru. Draumur bara.
Ég er þakklát þeim sem mótmæla m.a. fyrir mína hönd. Frú Liðagikt er ekki mikið fyrir að fara út og alls ekki í kulda, þrátt fyrir góðan málstað.
Hefði GUÐNI ÁGÚSTSSON, framsóknarmaður heitinn einmitt sagt eitthvað á þessa leið:
"Þar sem tvö samhliða fjárhús standa, þar er stórt þorp"
tærra þorp en tvö samhliða fjárhús?
Beturvitringur, 1.12.2008 kl. 23:18
Gleymdi að taka lyfin mín eða tók tvöfaldan skammt: allt í rugli
hjálma (ekki hjálpa)
Hefði GÁ "ekki" einmitt sagt
síðasta setningin er e-s staðar að handan
Beturvitringur, 1.12.2008 kl. 23:21
Ég heyrði skratti góða hugmynd í dag og hún er að varna Davíð að KOMAST INN í Seðlabankann. Þá þarf ekkert að fara inn í hann, enda sagði Geir Jón að það væri ólöglegt fyrir skrílinn að fara inn í Seðlabankann. Ekki það ég skilji af hverju það er bannað að fara inn í anddyrið á opinberri stofnun. En Geir Jón veit þetta betur en ég enda bý ég næstum á Agureyris!
hp (IP-tala skráð) 1.12.2008 kl. 23:30
Ég hvet ykkur til að skoða krækjuna á myndbandið.
Seðlabankinn í dag - Oktober/Borgaravaktin
Baráttukveðjur.
oktober, 2.12.2008 kl. 00:01
Þegar ráðsettar kellur eins og ég eru komnar á fremsta hlunn með að arka með eggjabakka niður í bæ og henda innihaldinu í helstu stjórnunarmiðstöðvar landsins skal mig ekki undra þó unga fólkið geri það.
Þetta var flott.
Geir Jón var líka flottur.
Davíð er skógarköttur.
Greta Björg Úlfsdóttir, 2.12.2008 kl. 02:51
Ekki móðga skógarketti
Beturvitringur, 2.12.2008 kl. 03:04
Ah, ja, var að horfa á myndbandið, þetta með ólögleg mótmæli og piparúða og löggur með hjálma og kylfur var ekki flott, frekar svona..æji.....kannski var það bara RÚV sem fannst G.J. flottur...ehemm......hann þorði þó að vera innan um fólkið og tala við það...annað en skógarkötturinn...mjá.
Í gamla daga þurfti nú reyndar að BERA eitthvað af MH-ingum út úr menntamálaráðuneytinu, eftir daglanga setu, það átti nefnilega að fara að loka, minnir mig...kannski er ég að rugla...
Greta Björg Úlfsdóttir, 2.12.2008 kl. 03:09
Úpps, nei, ég bið alla skógarketti afsökunar.
Greta Björg Úlfsdóttir, 2.12.2008 kl. 03:10
Ég er líka mjög ánægð með fólkið mitt, sem reyndar er náttúrulega ekki þjóðin... en samt. Hvaða fyrirbæri er annars þessi þjóð?
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.12.2008 kl. 09:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.