Leita í fréttum mbl.is

Af hverju valdi ég ekki Galapagoseyjar?

Aðgerðir kynntar eftir hlegi segir ríkisstjórnin.

Kannski kortéri fyrir þjóðfund?

Tek undir með Heiðu, látum okkur ekki vanta á þjóðfundinn.

Og ef ég heyri einu sinni enn ráðamenn og aðrar silkihúfur segja...

"Ég skil vel reiði almennings en"

( mér dettur ekki í hug að lyfta upp mínum hlupkennda rassi af mínum valdastól til að bregðast við þessari reiði, ónei, en ég skil hana ofboðslega vel... meiri aularnir).

Þá enda ég í rúminu og það til langdvalar.

Annars ætla ég að horfa á sjónvarpið.

Er alveg í því sko að refsa mér fyrir að hafa fæðst hérna.  Sjónvarpsdagskrá RÚV gerir mér hluti.

Af hverju valdi ég ekki Galapagoseyjar til að fæðast á?

Segi svona.

Elska ykkur í milljón.

Örlítið seinna


mbl.is Aðgerðir kynntar eftir helgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Darling! Þá værirðu að horfa á þátt um skjaldbökur......

Hrönn Sigurðardóttir, 28.11.2008 kl. 22:08

2 Smámynd: Heiða B. Heiðars

....og hlýtt á tánum!

Heiða B. Heiðars, 28.11.2008 kl. 22:11

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Aular.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.11.2008 kl. 22:13

4 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Skil þig fullkomlega.  Við hér erum heppin þó útlegðin í 18 ár hafi verið erfið á stundum þá held ég að ekkert jafnist á við það sem yfir ykkur gengur þarna heima. Maður er farin að forðast að segja fólki að það sé allt í lagi með okkur, fær bara yfirhollningu, það er sárt. 

Ía Jóhannsdóttir, 28.11.2008 kl. 22:19

5 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Nei Tinnsl! Við erum að tala um útifundinn 1.des á Arnarhóli!!

Heiða B. Heiðars, 28.11.2008 kl. 22:24

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Er ekki málið að gefa smá séns, engir betri til staðar eins og er.Mitt mat.

Ásdís Sigurðardóttir, 28.11.2008 kl. 22:57

7 Smámynd: Heidi Strand

 áratugi í skuldafeni framundan.
Mig langar að flytja héðan, en get það ekki í bili. Ég mun fara við fyrstu tækifæri.

Heidi Strand, 28.11.2008 kl. 23:14

8 identicon

Jenný,

Ég er einn af þeim sem vill sjá breytingu á stjórnkerfi landsins.  Er ekki sjálfstæðismaður/framsóknarmaður/ samfylkingarmaður...hvar telur þú að ríkisstjórnin hafi brugðist?

itg (IP-tala skráð) 28.11.2008 kl. 23:42

9 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Ég held að næsti borgarafundur sé 8.des

Gefa smá séns á hverju Ásdís?

Heiða B. Heiðars, 29.11.2008 kl. 00:11

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ásdís: Ég segi aftur; ég skil þig ekki.  Gefa hverju séns?  Höfum við eitthvað að gefa?

itg: Þetta er fyndin spurning, hvað finnst þér um þetta svar?  Ríkisstjórnin hefur brugðist í aðdraganda hrunsins, og eftir það. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.11.2008 kl. 00:13

11 Smámynd: Tína

Dýrka þig trilljón tjelling. Njóttu nú helgarinnar og svo hlakka ég orðið verulega til að knúsa þig í eigin persónu kona góð. Styttist ekki annars í að þið rennið austur???

Knús inn í helgina þína og dekraðu nú rækilega við þig.

Tína, 29.11.2008 kl. 00:14

12 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Ég skil ekki bofs í hugarfari stjórnarmanna.  Hverju eru þeir að reyna að redda?  Eigin skinni?  Meira að segja það er ekki að takast neitt sérlega vel.  En mér finnst frábært hvað þjóðin er að sýna mikla samstöðu í að tjá hug sinn og skoðanir - þó þær séu ekki allar þær sömu.

Ég trúi á fólkið í landinu og hana nú - lúðahúfur, ljótar úlpur og vettlinar........

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 29.11.2008 kl. 11:40

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Æ ég er fegin að þú ert hér en ekki þar, hefði ekki viljað missa af þér.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.11.2008 kl. 11:51

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Dúa: Þú drepur mig kona.  Krútt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.11.2008 kl. 13:41

15 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Hæ Dúa - nei ég skrópaði í MR.  Var í Hagaskóla, ætlaði í MR en fór daginn fyrir skólabyrjun og sagði Guðna rektor að ég væri hætt við.  Ég gleymi aldrei því sem hann sagði "þér eruð fífl"......

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 29.11.2008 kl. 17:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 2985622

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband