Leita í fréttum mbl.is

Játning

whitch 

Ég hef verið að reyna að finna eitthvað í fari mínu sem má laga, en það er ekkert að hafa.

Þetta er ekki kjaftæði út í bláinn heldur bláköld staðreynd beint frá höfuðstöðvunum - moi.

Ég er alsaklaus og hef ekkert á samviskunni.  Aðrir eru í þeirri deild.

En svona hefur þetta ekki alltaf verið - ónei.

Ég hef átt mín móment af ófullkomleika, ég viðurkenni það.

Ég var hyskin, löt, óheiðarleg, leiðinleg, illgjörn, andstyggileg, rætin, umtalsill og ofsafengin bredda.

Jájá.

En það gekk yfir á tíu mínútum sléttum.

Eretta íslenskur eiginleiki, þetta með fullkomnunina?

Éheldabarra.

Hvað get ég sagt?

Yðar heilagleiki sem þarf að þjóta.Devil


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Hvar ætli maður fái svona kúst eins og konan á myndinni er á...?

Lára Hanna Einarsdóttir, 19.11.2008 kl. 22:05

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Kóstinn geturðu fengið á næstu ráðstefnu vitra kvenna, hann er við Stonhenge í fyrirsjáanlegri framtíð.  Það er pláss á mínum kósti, ertu með?

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.11.2008 kl. 22:06

3 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Já, ég er sko með! 

Lára Hanna Einarsdóttir, 19.11.2008 kl. 22:21

4 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Mikið eigum við margt sameiginlegt. Nema þessar tíu mínútur komu aldrei hjá mér, kannski að ég eigi þær eftir?

Helga Magnúsdóttir, 19.11.2008 kl. 22:40

5 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

.....fullkomna bredda

Ég elti ykkur hinar á ryksugunni.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 19.11.2008 kl. 22:42

6 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 19.11.2008 kl. 23:04

7 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég er bara "skríll"

Sigrún Jónsdóttir, 19.11.2008 kl. 23:16

8 Smámynd: brahim

Þetta blogg Jennýar flokkast nú bara undir einræðu (við sjálfa sig) Því eru svörin frá ykkur blessuðum konunum alveg út úr kú eins og sagt er. Ekkert samhengi með svörunum og því sem Jenný skrifar.

brahim, 20.11.2008 kl. 00:57

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Muuuhaaaaa...

Ég held að Brahim hafi kvittað á rangt blogg.

Jóna Á. Gísladóttir, 20.11.2008 kl. 00:59

10 Smámynd: Kolgrima

Þessu trúi ég    Hví ætti einhver að vera sannleikanum sárreiðastur? Sannleikurinn gleður, bætir og kætir! Allavega hjá þessum bloggara.

Kolgrima, 20.11.2008 kl. 02:05

11 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ef ég hefði einhverja galla, þá yrði ég fyrst til að viðurkenna þáEr þessi Brahim í einhverju svona flokkunarstarfi hérna á blogginu ?   Ég vissi ekki að það væri til

Jónína Dúadóttir, 20.11.2008 kl. 06:03

12 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Ég hef aldrei, séð neitt ljótt, heyrt neitt ljótt né sagt neitt ljótt. (Ekki frekar en Davíð Oddsson).

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 20.11.2008 kl. 06:38

13 Smámynd: Dóra

---- Dóra

Dóra, 20.11.2008 kl. 07:44

14 Smámynd: Linda litla

he he he he þú ert alveg ótrúleg.

Knús inn í daginn.

Linda litla, 20.11.2008 kl. 07:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 2985796

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband