Leita í fréttum mbl.is

Fyrirgefðu svín og burt með spillingarliðið

 svín

Svefn er mikilvægur og fyrir óvirka alka er hann grundvallaratriði til að vera í góðri líðan.

Þess vegna fer ég yfirleitt í rúmið á skikkanlegum tíma þrátt fyrir að ég sé kvöldmanneskja og mér finnist að fjörið hefjist upp úr miðnætti.  Búhú lífið er friggings hundstík.

Ef ég sef ekki nóg gerast hlutir.  Það vex á mig úlfafeldur og kryppa.  Ég verð að villidýri.

Ók, reynum aftur.

Ef ég sef ekki nóg gerast hlutir, ég verð úrill, döpur, svartsýn og örg.  Það alvarlegasta er þó að ég missi húmorinn.  Fyrir sjálfri mér og öllu öðru.

Í nótt vakti ég til að verða þrjú.  Út af Obama, ég var nefnilega svo hrædd um að ef ég sofnaði og léti talningamennina í USA eina um málið þá myndi maðurinn tapa kosningunum.

Muniði þegar Al Gore vann og tapaði svo?

Já, einmitt, þar gerðist það að ég fór að sofa og á meðan vann karlandskotinn hann Georg Búski.

En nú er ég sem sagt með afleiðingar nætursukksins í fullum blóma.

Ég er eitruð. 

Reyndar ber að þakka Boga Nilssyni fyrir að haga sér eins og heiðarlegur maður, hann gerði það eina rétta í stöðunni.

Vá, hugsaði ég, þarna fer eitt stykki af manni sem ekki gengur fram af mér með siðlausri hegðun.

Það lá við að ég dytti af stólnum þegar ég sá fréttina um að hann væri hættur að rannsaka.

Og þá fattaði ég að það þarf ekki mikið til að vekja aðdáun manns þessa dagana.

Það heyrir nefnilega til undantekninga að fram komi fólk úr kerfinu sem gerir hið sjálfsagða.

Hinir halda áfram að haga sér eins og svín.

Fyrirgefðu svín, ég er að gera þér skömm til.

Arg og ekki rífa kjaft við mig.  Ég er EKKI búin að jafna mig á svefnleysinu.

Farin að leita að löndum til að sigra.

Burt með spillingarliðið!

Later.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Satt og rétt - leggðu þig svo og náðu þér. 

Lára Hanna Einarsdóttir, 5.11.2008 kl. 11:55

2 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Tek undir orð þín.

Svo les ég ekki fleiri blogg fyrr en kannski í kvöld, svo ég haldi sjóninni.

Kveðja frá annarri svefnlausri, ekki út af kosningunum, eða kannski í með þó ég hafi hvorki horft né hlustað...ég opnaði fyrir útvarpið kl. 6 í morgun og hlustaði á gleðfréttirnar. Segi eins og þú, maður var við öllu búinn síðan síðast.

Greta Björg Úlfsdóttir, 5.11.2008 kl. 11:59

3 Smámynd: Brynja skordal

já ég vakti til kl rúmlega 5 varð að vera alveg viss um sigur obama áður en ég náði að loka augunum í gleðivímu en náði samt að fá að kúra til 10 svo ég er góð svínið er krútt á myndinni sko...Hafðu góðan dag Jenný mín

Brynja skordal, 5.11.2008 kl. 12:41

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég vakti eins lengi og augun voru opin, man ekki hvað klukkan var, en ég var nokkuð viss þegar ég sofnaði að þetta mundi hafast. Vona að dagurinn verði góður og þú slakir vel á  miss piggy er æði

Ásdís Sigurðardóttir, 5.11.2008 kl. 13:09

5 identicon

Góð.Svefnleysi er að ganga held ég.Ég er úlfur í dag.Varúlfur

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 5.11.2008 kl. 14:18

6 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Tek undir með Birnu Dís svefnleysi er örugglega að ganga, vona samt að sigur Obama geri það að verkum að við sofum vært næstu nótt. -

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 5.11.2008 kl. 15:52

7 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Skil þig.....

Að öllu leyti.....

Ég er líka svona annáluð kvöldmanneskja og á mjög erfitt með að breyta út af vananum. Fer aldrei í rúmið fyrir miðnætti og ef ég á vinnudag morguninn eftir, þá yfirleitt ekki fyrr en eftir kl. 01.....  What can a girl do to change this rythm??? Verð ég að verða óvirk kannski??

Knús til þín

Lilja G. Bolladóttir, 5.11.2008 kl. 20:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985766

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband