Leita í fréttum mbl.is

Bölvað eineltiskjaftæðið

 mynd_2008-10-18_15-25-28bmynd_2008-10-18_16-00-10b

Einelti var ekki til sem orð þegar ég var í barnaskóla.  Melaskóla nánar tiltekið.

Þetta orð er að verða eitt af þeim mest misnotuðu í íslenskri tungu og það versnar dag frá degi.

Hver spekingurinn af fætur öðrum bloggar nú eða skilur eftir komment við annarra manna blogg og ásakar þá sem komu saman á Austurvelli í gær um einelti gegn Davíð Oddssyni.

Ég hefði reyndar kosið að mótmælin hefðu beinst að jakkafatamafíunni allri enda lítill munur á kúk eða skít að mínu mati.

En ég neita því alfarið að kennitalan, eiginmaðurinn, faðirinn og Reykvíkingurinn Davíð Oddsson hafi verið lagður í einelti af okkur 28Police sem þarna stóðum.

Seðlabankastjórinn og embættismaðurinn Davíð Oddsson má hins vegar taka pokann sinn vegna þess að hann er einn valdamesti maðurinn í havaríinu sem riðið hefur yfir okkur og ábyrgur eftir því  og ágætt að byrja á honum, af skiljanlegum ástæðum. 

Hér má sjá myndir af útifundinum "mannfáa" og smekklausu kommentin sem höfundur þeirrar bloggsíðu fær frá sumum lesendum sínum. Klikkið hér.

Og að eineltinu.  Minn skilningur á orðinu er að það lýsi ofsóknum á hendur börnum og ungmennum.  Punktur, búið, basta.

Eins og ég sagði þá var þetta orð ekki til þegar ég var barn þó einelti hafi svo sannarlega verið það.

Mér þætti vænt um að í hvert skipti sem fólk segir skoðun sína t.d. hér í bloggheimum, sem á ekki upp á pallborðið að spekingarnir (lesist fíflin) komi ekki og gargi einelti, einelti.

Ofsótt börn eiga skelfilega erfitt, ekki gengisfella alvarleika þess í upphrópunum um ofsóknir þar sem engar eru.

Þeir mega taka það til sín sem eiga það.

Bölvaðir asnarnir.

ARG


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Nákvæmlega, þessi orðnotkun er bara til að gengisfella orðið einelti. Er það að þurfa að taka afleiðingum gerða sinna einelti? Kjaftæði.

Hins vegar er ég auðvitað sammála því að það er ekkert bara hann sem þarf að taka pokann sinn, langt frá því.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 19.10.2008 kl. 10:49

2 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Einræðisherrum þeim sem steypt hafa verið úr stól í gegnum tíðina eru náttúrulega ekkert annað en fórnarlömb eineltis

Heiða B. Heiðars, 19.10.2008 kl. 11:05

3 Smámynd: Jack Daniel's

Ætla að vera ógeðslega leiðinlegur í þetta sinn og vera þér algerlega og 100% sammála.

Jack Daniel's, 19.10.2008 kl. 11:05

4 Smámynd: Einar Þór Strand

Þar fórstu með það Jenný að einelti fullorðina sé ekki til það er oft á tíðum verra en einelti barna. 

Hvort Davíð á að taka pokan sinn eða ekki er svo annað mál, mín skoðum er að svo sé en maður skiptir ekki um hest í miðri á þannig það þetta er bara ekki komið á borðið.  Svo er hitt að það eru margir fleiri sem verða að fara  má þar benda á til dæmis alla þá sem hafa setið á Alþingi síðan 1990 flesta fjölmiðlamenn og alla þá sem hafa verið að kenna viðskipta og hagfræði á undanförum árum.  Enginn þessara aðila talaði nokkurníma hreint út heldur sló alltaf úr og í og sagði í raun ekkert enda vissu þeir sennilega ekkert í sinn haus fremur en venjulega.  Af þessu leiðir að ef menn úthrópa Davíð til að gera hann einan að blórabögli þá er það einelti af verstu sort samkvæmt Olveus.

Einar Þór Strand, 19.10.2008 kl. 11:09

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Einar Þór: Það heita ofsóknir þegar fullorðnir eiga í hlut, ekki einelti.

Jack: Þar kom að því.  Híhí.

Heiða: Já ekkert annað en pjúra helvítis einelti á þessar elskur.

Hildigunnur: Sammála.

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.10.2008 kl. 11:22

6 Smámynd: Jack Daniel's

Einar.
Það er enginn að tala um að Davíð einn beri alla ábyrgð en á það verður að horfa og það er bara staðreynd, að hann er sá sem kom einkavæðingunni á í bankakerfinu sem leiddi til þeirrar útrásar og peningaprentunar sem engin innistæða var fyrir.  Hann ber líka ábyrgð á því að eftirlitskerfi var ekki komið á í kjölfar einkavæðingarinar og hann skeit svo rækilega á sig í kastljósviðtalinu um daginn með bullinu í sér að Bretar tóku sig til og settu hryðjuverkalög á ísland.
Hann bítur síðan höfuðið af skömminni með því að ákveða sjálfur hvaða fyrirtæki fá gjaldeyri til að flytja inn vörur.

Nei þetta er sko ekkert einelti.  Þetta krafa meirihluta fólks á íslandi hvort sem þér líkar það betur eða verr góði minn og kallast lýðræðisleg krafa fólksins í landinu og flokkast ekki sem neitt anskotans einelti.

Jack Daniel's, 19.10.2008 kl. 11:24

7 identicon

Ég álít ad Einar hafi rétt fyrir sér. Vuxenmobbning er thetta kallad á saensku. Og ef fólk leggur fraegt fólk eda adra í svidsljósinu í einelti svo ad theim stafi  óthaegindi eda haetta af, er thad kallad "stalkning" og thad er nýbúid ad "kriminalisera" slíkt í Svíthjód. Agnetha í ABBA vard fyrir thessu svo og fjölskylda Everts Taube. Kona Kveikti í Sjösala heimili Taubefjölskyldunnar í Roslagen svo húsid brann til grunna.

Mín skodun er ad 500-1000 "stalkers" hafi verid samankomnir á Austurvelli í gaer og thad er tháttakendum til mikillar vansaemdar.

Ad menn eins og Jón Baldvin Hannibalsson og Thorvaldur Gylfason ( ef satt er) flykki sér undir mótmaelaspjöld med texta eins og sjá mátti á mbl.is segir meira um persónu theirra en Davíds Oddssonar.

Thetta eru vidbrögd frumstaedustu hvata mannskepnunnar.

S.H. (IP-tala skráð) 19.10.2008 kl. 11:42

8 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Stórt knús Jenný mín

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 19.10.2008 kl. 11:44

9 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

S.H. finnst þér semsagt að hann eigi bara að fá að sitja þarna áfram og enginn segi neitt?

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 19.10.2008 kl. 11:52

10 identicon

 Hildigunnur:

Hins vegar er ég auðvitað sammála því að það er ekkert bara hann sem þarf að taka pokann sinn, langt frá því.

Thú ert bara búin ad svara thessu sjálf. Ad ekki krefjast  thess af ödrum vid mótmaelaadgerdirnar " ad their taki pokann sinn"! er einelti.

En var thad ekki Lenin sem taladi um "nyttiga idioter" (nytsama bjána). èg hef mestu skömm á fólki sem "löper i flock"

S.H. (IP-tala skráð) 19.10.2008 kl. 12:49

11 identicon

Davíð og fleiri stjórnmálamenn njóta þess að baða sig í ljósi almennings, og njóta af því dágóðan túskilding fyrir að vera á tungubroddi fólks.  Það er því ekkert einelti, þó kvartað sé yfir lélegri stjórnsýslu hans eða annarra. Ríkið og stjórnsýslumenn bera ábyrgð á gerðum sínum og einnig á því, að hafa ekkert gert þegar þeir vissu í hvað stefndi. Þeir eru í sínum stöðum til þess að aðhafast, og ekki til að horfa á.

Það er aftur á móti einelti, þegar venjulegt fólk sem ekki er í framboði og ekki stendur til að vera nokkurs staðar í slíku hlutverki, fær ekki frið fyrir skríl og eiturlyfja fíklum, sem halda að það sé sniðugt að eyðileggja líf annarra.  Og þetta á jafnt við um, hvor um sé að ræða fullorðna, börn eða ungmenni, og hefur ekkert að gera með hvort þeir bloggi eða ekki.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 19.10.2008 kl. 13:10

12 identicon

Af hverju ekki að mótamæla ríkistjórninni. Ríkisstjórnin ber ábyrgð á Dabba. Ríkisstjórnin ber ábyrgð á þessu öllu. Virkjum reiðina í réttan farveg og mótmælum ríkisstjórninni.

Burt með þetta valdagráðuga fólk sem rígheldur í stólana sína. Hefur einhver pælt í því af hverju Íslendingar þiggja ekki alla þá hjálp sem þeir geta fengið frá Noregi? Gæti það kostað stólana þeirra?

Og svo bara verð ég að bæta þessu við vegna þess að ég hef orðið fyrir svo miklum vonbrigðum með Samfylkinguna. Eru gömlu Kratarnir í Samfylkingunni að búa til mótmæli sem beina augum frá þeim sjálfum. piff, aulalegt. Af hverju var Samfylkingin ekki búin að gera eitthvað í málunum?

Emma (IP-tala skráð) 19.10.2008 kl. 14:29

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta eineltisblaður er komið beint frá spunaverksmiðju Valhallar, eldað í áróðursmaskínunni þeirra, og hanterað af flónum, sem eru látin bera þetta út um allt.  Þessi maskína hefur malað margt kornið, og á eftir að gera svo lengi sem til eru kjánar sem trúa öllu sem að þeim er rétt.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.10.2008 kl. 17:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 2985804

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband