Leita í fréttum mbl.is

Fordyr hvelvítis stækkaðar?

Þvílíkur dagur og ég er lifandi.

Var að klára að rýma geymsluna á gamla heimilinu.  Tók mánuð að hafa mig í það, ég er með frestunaráráttu dauðans.

Það var varla að ég gæti slitið mig frá miðlunum.  Hvað ef eitthvað/einhver rúllaði á meðan?

En...

Ég er ennþá bálill.  Jafn ill og í morgun.  Ekkert hefur orðið til þess að slökkva í mér og það er komið kvöld.

Nú er byrjað að manga um stækkun Álferlíkisins í Straumsvík.  Stækkum, stækkum segja þeir sem vilja fá þessar fordyr helvítis stækkaðar, þrátt fyrir að Hafnfirðingar hafi hafnað því í lýðræðislegri íbúakosningu.

Á ekki að nauðga náttúrunni bara?

Djöflast á hverri sprænu, virkja hvern bæjarlæk sem finnst á landinu?

Sökkva fjöllum og dölum, eitra andrúmsloftið?

Ha, það eru nú meiri skammsýnissjónarmiðin sem eru að hrjá stóriðjuaðdáendurna, virkjanasinnana og áfram veginn í vagninum ek ég.

Ég hef þetta fólk grunað um að klökkna af hrifningu þegar það kemur auga á álver.

Tárast, verða orðlaust vegna fegurðarinnar sem er að finna í rauðköflóttu strompunum.

Ég er ekki að grínast enda geðbrigðin ekki í gleðifasanum.

Iss, farin að sparka í veggi, bíla og ruslatunnur.

Lalalalala.


mbl.is Niðurstaða íbúakosninga verði virt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 í stuði ?Ég gef þessu rugli öllu EKKI  það vald að hreifa í minni gremju.En að vera net-laus í 3 daga kom mér á gremjukoppinn

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 15.10.2008 kl. 19:22

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það sem við þurfum að gera er að losna við Sjálfstæðisflokkinn úr pólitíkinni, meðan þeir eru við völd, breytist ekkert.  Fólk verður að átta sig á þessari staðreynd.  Nú er markínan að fara í gang, með öllum sínum þunga, þeir hafa ítök í öllum fjölmiðlum, og blaðamenn eru eins og hænur á priki varðandi sjallana, þora ekki nema sitja og standa eins og þeir vilja. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.10.2008 kl. 19:34

3 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Farðu vel með þig.....ekki sparka of fast ! Góð leið til að dreifa huganum er að baka vöfflur alveg í massavís, ég gerði það og fékk hugarró í 2 tíma.....síðan kom reiðin aftur á leið heim og nú er hún kraumandi á ný!!! Veit samt ekki hvort að ég sparki í neitt, veraldilegir hlutir í kringum mig eru það mikilvægir að ég vil ekki skemma þá....svo á ég ekki pening fyrir viðgerðum ef ég skemmi eitthvað !

En ég hlakka til þegar koma tímar til að reiðijafna !

Sunna Dóra Möller, 15.10.2008 kl. 20:01

4 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Þeir nota hræðsluáróðurinn vegna kreppunnar til að koma því inn hjá fólki að ef ekki verði virkjað og virkjað og virkjað... fari allt beint leið til helvítis því við eigum ekkert nema auðlindirnar svo um að gera að nauðga landinu.

Helga Magnúsdóttir, 15.10.2008 kl. 20:07

5 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Þú meiðir þig í þessum látum

Jónína Dúadóttir, 15.10.2008 kl. 20:16

6 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já, það væri nær að huga að því að efla innlendan og vistvænan iðnað með ódýrri orku.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 15.10.2008 kl. 20:26

7 Smámynd: Himmalingur

Frestunarárátta dauðans er snilldarhugtak hjá þér Jenný mín og sá dauði hrjáir mig og eflaust fleiri!

Himmalingur, 15.10.2008 kl. 20:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985800

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.