Leita í fréttum mbl.is

Ég er ekki að tala við þig - heldur er ég að tala við þig

Jenný Una Eriksdóttir litaði á borðið í gær og sagði aðspurð að hún hefði ekki gert það.  Það hafi verið önnur Jenný Una Eriksdóttir, mjög óþekk slík, sem gerði það en hún væri farin.

Jennýju má segja til málsbóta að hún er þriggjaoghálfs árs og með afskaplega líflegt ímyndunarafl.

Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi í stjórn Landsbankans, frábað sér að vera kallaður óreiðumaður á flokkráðsfundi í gær en takið eftir hann var ekki að vísa til Davíðs Oddsonar.

Samt er ekki vitað um að neinn annar hafi látið þessi orð falla um forsvarsmenn bankanna annar en téður Davíð, þó leitað sé með logandi ljósi.

Kjartan Gunnarsson, kt. sósósó-sósó, til heimilis að Sóandsó nr. sóandsó; ég trúi ekki orði af því sem þú segir, ég held að þú sért svona skelfilega hræddur við Föðurinn.

En ég er ekki að tala við þig, ég er að tala við Kjartan Gunnarsson með sömu kennitölu og sama heimilisfang.

Meikar það ekki sens kallinn minn?

Jújú erþaeggibara?


mbl.is Tár felld á flokksráðsfundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Æi maður tárast nú bara líka... eða er þa´kki annars ?

Jónína Dúadóttir, 12.10.2008 kl. 12:40

2 Smámynd: Sólveig Kristín Gunnarsdóttir

snøft snøft í ødru

Sólveig Kristín Gunnarsdóttir, 12.10.2008 kl. 12:41

3 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Hahahaha þú ert perla

Heiða B. Heiðars, 12.10.2008 kl. 12:47

4 Smámynd: María Guðmundsdóttir

æ thetta er nottlega allt saman hid sorglegasta mál Jenný  madur bara kløkkur ad lesa um greyid sjálfstædismenn...obbobbobb..

María Guðmundsdóttir, 12.10.2008 kl. 13:27

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

úff hvað ég þurfti að lesa þetta oft til að litli heilinn á mér næði utan um efnið. En það tókst á endanum

Jóna Á. Gísladóttir, 12.10.2008 kl. 13:58

6 Smámynd: Líney

 Ég beygi mig í duftið,háæruverðugi foringi.

Líney, 12.10.2008 kl. 14:02

7 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Heheh  Einn maður sem má ekki koma inn á barinn hjá mér segir alltaf að tvíburabróðir hans hafi verið með vandræði fyrir nokkrum árum, en málið er að maðurinn á engann tvíburabróður. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 13.10.2008 kl. 01:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 2985763

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.