Leita í fréttum mbl.is

Amma Póló, afi Pilsner og barnahatari í peysufötum

 kókkassi

Íslendingar eru þrjóskir og ósveigjanlegir segir Hattersley, fyrrverandi aðstoðarutanríkisráðherra Bretlands.  Hann segir að málstaður Breta í þorskastríðinu hafi verið réttmætur og í nýja stríðinu sem nú geysar sé málstaðurinn það einnig.

Ég man eftir þessu þorskastríði jájá og mér fannst við ferlega flott þá og mér finnst það enn.

Ég man eftir Ólafi Ragnari Pres, með viðtalsþætti á ensku þar sem hann stóð sig alveg þræl vel.

Hjartað barðist í brjóstinu með málstað litla Íslands á móti andskotans Bretunum.  Það var svart-hvítt dæmi, við vorum réttu megin við strikið.  Algjörlega spikk og span.

En núna er ég ekki svo viss.  Auðvitað hefur Gordon Brown verið að nýta sér þessa stöðu Íslands til eigin vinsælda en ég vil ekki trúa því að óreyndu að þeir hafi gert sér það að leik að ljúga upp samtölum við íslenska ráðamenn.  Ef svo er þá eru þeir ótýnt pakk.  En bíðum aðeins.

Ísland á auðvitað ekki að láta bjóða sér þessa framkomu sama hvað er.  Þessi djöfulgangur í Bretanum hefur þegar skaðað okkur biggtæm.

En að kjarna málsins.  Hehe.

Ég var að hugsa um gildi íslensku krónunnar og auðvitað fleygði það mér í nostalgíu.

Ég bloggaði um litabókina fyrr í vikunni sem ég keypti á rétt tæpan níuhundruð kall og gaf mér nánast hjartastopp.

Ég man nefnilega eftir því þegar ég fór í Möggubúð á horninu á Ásvalla og Hofsvalla og keypti kúlur á 1 aur stykkið.  Þær voru í fánalitunum og Magga geðvonda sem var líka barnahatari í peysufötum, bjó til kramarhús úr umbúðapappír og taldi kúlurnar í það.  Svo sagði hún okkur að andskotast út með varninginn um leið og hún tók við peningunum.  Þjónustulundin í hámarki hjá helvítis kerlingunni, guð blessi hana.

Það voru til fimm aura stykki.  Rauður haltukjafti brjóssykur kostaði krónu.  Líka Bazúkatyggjó.

Og Pan tyggjóið var keypt í lausu eða í litlum kössum, kostaði kúk og kanil.

Á sunnudögum fékk ég rauðan tíkall í bíó.  Brúnn fimmkall fór í bíómiða í almenn og afgangur í nammi.  Poppkornið var poppað heima og tekið með í brúnum bréfpoka sem myndaði fitubletti af heitu poppkorninu.

Og svo fór mig að langa í ískalda Póló úr svona Kókassa á gólfi, (það varð svo mátulega kall) þegar ég bloggaði.  Ég fékk vatn í munninn. 

Rosalega var Póló góður drykkur og Ananas með dansandi Hawaymeyju íklæddri strápilsi á miðanum.

Ótrúlegt hvað lífið var einfalt.

Svo voru rauðar pylsur í matinn á laugardögum.  Með bræddu smjöri og kartöflum.

Ég finn bónlyktina úr sameigninni á Hringbraut 84 þegar ég skrifa þetta.

Á laugardögum var nefnilega allt skúrað út í hörgul.

Nostalgía je,je, je!


mbl.is Íslendingar þrjóskir og ósveigjanlegir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Ég held einhvern veginn að partur af því hvað maður fær góða tilfinningu að hugsa til baka sé einmitt það hvað allt var í föstum skorðum, fiskur þýddi að það var mánudagur, kjötbollur þriðjudagur og læri og bíóferð var sunnudagur....Það eru ekki svona margir fastir punktar í tilverunni í dag.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 11.10.2008 kl. 14:11

2 Smámynd: halkatla

Rosalega viturlegar pælingar, að venju

halkatla, 11.10.2008 kl. 14:32

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Namm! Ég man eftir rauðu pylsunum - þær voru miklu girnilegri en hinar!

Hrönn Sigurðardóttir, 11.10.2008 kl. 14:52

4 Smámynd: M

Yndisleg færsla Jenný ;-)

M, 11.10.2008 kl. 15:16

5 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Þú ert alveg yndisleg!  Ég var oft send upp í hverfið, en held að það hafi ekki verið þessi búð sem þú talar um.  Síðan stytti ég mér alltaf leið í gegn um gamla kirkjugarðinn maulandi eitthvað sem amma leyfði mér að kaupa fyrir nokkra aura.  Ég var farin að þekkja flest öll leiðin í kirkjugarðinum svo of t gekk ég þarna yfir í Tjarnagötuna. 

Mér fannst miklu skemmtilegra að vera send í þessa búð heldur en Silla og Valda, þarna var strax komin upp í mér dramadrottningin, svo eitthvað mustískt að ganga um leiðin og tala við fólkið í leiðinni.

Ía Jóhannsdóttir, 11.10.2008 kl. 15:21

6 identicon

Poppað heima og poppið sett í brúnan bréfpoka.Svo var strunsað á myndina Tómasínu í Gamlabíó  og auðvitað margar fleiri.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 11.10.2008 kl. 18:20

7 Smámynd: Kolbrún Baldursdóttir

Jenný Anna snillingur, það eru fáir sem fara í þín spor hvað varðar hugmyndaríki og frumlegheit.

Keep up the good work, I love it.

Kolbrún Baldursdóttir, 11.10.2008 kl. 18:57

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég hefði ALDREI látið sjá mig í bíó með heimapoppað popp.....

....enda ekkert bíó í minni sveit

Hrönn Sigurðardóttir, 11.10.2008 kl. 18:58

9 Smámynd: Steingrímur Helgason

ooohhhhh,,,, póló & pylzur....

Steingrímur Helgason, 11.10.2008 kl. 19:08

10 Smámynd: Brynja skordal

Jenný nú hugsa ég bara um póló dí hvað það var gott langar í það núna og rauðu pulsurnar miklu betri  margt sem rifaðist upp við þessa færslu takk fyrir "dreym" knús inn í nóttina

Brynja skordal, 11.10.2008 kl. 22:33

11 Smámynd: Blaðamenn Foldarinnar

Af því að þetta ert nú þú, þá bjóðum við yður í heimsókn á foldin.blog.is

Blaðamenn Foldarinnar, 11.10.2008 kl. 22:57

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk öll fyrir frábær og falleg innlegg.

Við verðum að komast þetta á gleðinni, voninni og húmornum.

Allt annað sökkar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.10.2008 kl. 23:12

13 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Munið þið hvað stóð á Pólóflöskunum? Kjarnadrykkur með gervikjörnum... :P

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 11.10.2008 kl. 23:56

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nú man ég Hildigunnur.  Krúttlegt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.10.2008 kl. 23:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 2985793

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.