Föstudagur, 3. október 2008
Sóðakvöld - loksins - loksins
Ég óska Selfyssingum og nærsveitarmönnum innilega til hamingju með þessa viðbót í menningarlíf bæjarins.
Sóðakvöld er auðvitað eitthvað sem hvert bæjarfélag verður að hafa á dagskránni þegar dagar styttast og myrkur hellist yfir, bæði í beinharðri og grautlinri merkingu.
Það er svo ekki verra að sóðakjaftur og subbukarl skuli standa fyrir uppákomunni.
Það gerir þetta enn hámenningarlegra og meira notendavænt.
Sóðapésinn Eiður Birgisson hefur skemmtilegan subbuhúmor sem hæfir auðvitað vel í þessum frábæra bransa. Hann hefur boðið Sóleyju Tómasdóttur, varaborgarfulltrúa á skemmtikvöldið og segir í DV:
"Við erum með merktan miða í miðasölunni handa Sóleyju og ef hún treystir sér til skulum við bera á hana olíu og leyfa henni að taka snúning í búrinu, segir Eiður Birgisson, annar eigenda skemmtistaðarins 800-Bar á Selfossi, en á laugardaginn verður haldið svokallað Dirty-Night, eða sóðakvöld eins og það gæti kallast á íslensku."
Þegar konur sem vita ekki betur eru að gagnrýna svona menningarviðburði verður auðvitað að klámvæða þær. Sóley mun ábyggjalega vitkast til frambúðar ef hún gengur til liðs við mannvininn Eið Birgisson. Sér ljósið, lætur niðurlægja sig svolítið.
Ein aðalröksemdafærsla hámenningarsinna í þessum bransa er einmitt að halda því fram að konur sem sjá ekki listina í nektardansi og annarri klámvæðingu á kynsystrum sínum er einmitt sú að þær þurfi að fá að ríða, já að það þurfi jafnvel að nauðga þeim ef þær eru ekki að meðtaka boðskapinn. Það er semsagt skortur á klámtengdu kynlífi sem gerir konur að jafnréttissinum.
Nú er að bíða spenntur eftir að hin vaski lögreglustjóri Árborgar hreinsi upp í menningarsetrinu 800-Bar en það mun merkilegt nokk vera eitthvað ólögleg við þennan yfirvofandi listviðburð.
Svei mér þá ef Eiður Birgisson hefur ekki sannfært mig um að það sé beinlínis eftirsóknarvert fyrir konur að vera olíuborið barborð nú eða vera olíubornar í búri. Smokkar ókeypis við innganginn. Listahátíð snædd þú það sem úti frýs.
Aumingja fáráðlingarnir í klámbransanum.
Ætli þeir viti hvað þeir gera?
Fífl með lítið.......
hehemm
heilabú?
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Lífstíll, Menning og listir, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:00 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.12.): 2
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 78
- Frá upphafi: 2987163
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 76
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr
Athugasemdir
Í öðru sveitarfélagi er auglýst dirty-night. Þar er boðið upp á "girnilegar mjög ungar dansstúlkur í búri", svo svo "gera "allt fyrir þig" síðar á kvöldinu. Svo er karlpeningurinn spurður. "Þorir þú! - eða ertu kjúlli?!!!" Konur fá "það frítt við innganginn". Hvert vorum við komin í jafnréttisumræðunni? :-=/
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 13:05
Ég þekki ekki þennan viðburð eða þessa veitingabúllu en miðað við myndina þá mun fáklædd stúlka leika listir sínar. Ef ekkert alvarlegra er þarna á ferðinni spyr ég: Hvað er svona sóðalegt við beran kvenmannsrass?
Sigurður Þórðarson, 3.10.2008 kl. 13:18
Sigurður: Ég veit ekki hvað er sóðalegt við hann. Þú verður að spyrja bareigendurna. Þeirra er nafnið.
Gísli: Geðslegt.
Jenný Anna Baldursdóttir, 3.10.2008 kl. 13:19
Þetta er svo ósmekklegt að það er engu lagi líkt! Huxa sér að laða fólk að með því að auglýsa girnilegar ungar dansstúlkur í búri........Ég eiginlega fyllist viðbjóði og það sem sorglegast er að menn mæta á þetta og skemmta sér yfir kúgun ungra stúlkna og aðrir verja þetta alveg fram í rauðan dauðan, allt í nafni frelsis !
Sunna Dóra Möller, 3.10.2008 kl. 13:34
Skyldi listahátíð í Reykjavík vita af þessu?
Eða menningarnefnd EU?
En látum vera að einhver "menningarfrömuðurinn" láti verða af því að plana soddan menningarviðburð, en þeir sem heillast af auglýsingunum og mæta á staðinn, hvað segir það um soddan fólk?
Einar Örn Einarsson, 3.10.2008 kl. 13:45
eru þær þá ekki að fara að sýna töfrabrögð, í búri eins og Houdini?
Brjánn Guðjónsson, 3.10.2008 kl. 15:21
Vá svakalega sem mig vantar að rí.. ég finn jafnréttis tilfinningar ólga um æðar mér..
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 3.10.2008 kl. 15:27
Vér sauðirnir skellum okkur bara á Sauðamessu í Borgarfirðinum.
Þröstur Unnar, 3.10.2008 kl. 15:59
Ég er kannski með svona sóðalegan húmor en mér finnst þetta fyndið! Það er heldur ekki að marka mér finnast drengir á þessum aldri alltaf fyndnir þegar þeir fara í hortugu stellingarnar! Ef ég væri Sóley þá mundi ég bara fara og hafa gaman af..........
Hann hefur líka fengið ágætis auglýsingu í dag - er þá ekki tilganginum náð?
Hrönn Sigurðardóttir, 3.10.2008 kl. 16:42
Nú sé ég pælinguna hjá ykkur femínistunum. Auðvitað er betra að hafa konur í búrkum, þá er ekki hægt að hlutgera þær.
Auðvitað er allt í lagi að drulla yfir kaþólikka. Þetta eru mest latínógerpi sem eru með klámfengnar kjötkveðjuhátíðir þar sem þeir hlutgera ungar stúlkur og niðurlægja þær á allan hátt.
Gagnrýni á íslam er aftur á móti ógeðslegt kynþáttahatur. Nema hvað. Það er ekki mikil klámvæðing í löndum múslima og þess vegna er íslam æskilegt allsstaðar í sem mestum mæli.
marco (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 18:18
Öll þessi kynvillu-og klámvæðing ásamt innflutningi á and-kristnum trúarbrögðum, er ekki til þess fallinn að laða Guð til okkar og hjálpa okkur á þessum erfiðu tímum Ef fólk kýs glaum og klám, og gefur skít í Guð hefur það í för með sér ? Jú, meiri eymd og volæði ! Það er nú bara þannig vinir . Snúið því hið snarasta frá girnd og öðrum ósiðum svo Guð hafni ekki þjóðinni alveg !
conwoy (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 19:42
Conwoy: Ég reikna með að þú sért að grínast.
Marco: Ég er á móti trúarbrögðum en mér er vel til fólks.
Jenný Anna Baldursdóttir, 3.10.2008 kl. 21:07
Alveg fékk ég aulahroll þegar ég sá þetta í DV.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 3.10.2008 kl. 21:42
Stoppar zelfozzrútan í 104 ?
Steingrímur Helgason, 4.10.2008 kl. 00:25
Sóðaskapur erðetta..
Gulli litli, 4.10.2008 kl. 05:25
thetta er allt tómt óged, "olíubornar stúlkur i búrum" ...minnir mann á sirkus,nema thad voru apar i búrum og whatnot en á okkar timum er thad kvenfólk...
knús til thin Jenný
María Guðmundsdóttir, 4.10.2008 kl. 07:39
Já allt virðist vera boðlegt nú til dags
Eyrún Gísladóttir, 4.10.2008 kl. 07:45
Conwoy ekki grínast !
conwoy (IP-tala skráð) 4.10.2008 kl. 13:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.