Leita í fréttum mbl.is

Jennískur rekstur.

 innkaupavagn

Ég er orðin svo sparsöm að það á eftir að verða fært í annála þegar fram líða stundir.  Gott ef nýtni mín og útsjónarsemi í heimilishaldi verður ekki kennslugagn í matreiðslutímum framtíðarinnar.

Ég á jafnvel von á því að sú aðferð sem ég nota til að draga úr rekstrarkostnaði heimilanna fái sérstakt nafn og verði síðan þekkt hugtak innan vísindanna.

Svokallaður "jennískur rekstur".  (Ég er að reyna að slá dreifbýlisdúllunni við, þegar kemur að því að spara alveg heví).

Á fimmtudaginn setti ég mig í stellingar og sagði húsbandi að nú væri lag að fara í Bónus og versla inn mat til kærleiksheimilis. 

Svo var það sturta, blástur, málning, dragt, flottir skór (bara að hnykkja á þessu með skóna enda verslar alvöru kona ekki klemmu á ómerkilegum túttum) og listi skrifaður.

Vér steðjuðum í Bónus, týndum í körfu samkvæmt miða og ekkert umfram það.

En nú er ég komin að erfiðum kafla. 

Ég er nefnilega að ljúga.  Með miðann sko, reyndar var ég með flottan miða en mér tókst illa að halda mér við efnið.

Ég var búin að gleyma að mig vantaði skóáburð, silfurpúss, nýja moppu með tilbehör, súkkulaðispæni (W00t), sérstaka olíu fyrir tekkhúsgögn (ég er viss um að ég á eftir að eignast eitthvað úr tekki í framtíðinni), flugnaspaða og sagógrjón.  Ókei, ókei, smá ýkjur en þið vitið hvert er er að fara.

Hljómsveitin sagði: Jenný, miðinn.  Halda sér við miða.

Ég pirruð: Viltu hætta þessu, bíddu bara á meðan ég skrepp yfir í næsta gang.

Hljómsveitin: Þú verður að fara að taka sjálfa þig alvarlega.  Ekki að einhverjir smáhlutir skipti máli en hvernig væri að standa við gerðan samning við sjálfa þig?

Mér stórlega misboðið: Einar, ertu að fíflast í mér, erum við að tuða um þetta?  (Ég stóð við körfuna sem var kjaftfull af einu og öðru þegar hér var komið sögu og hélt dauðahaldi í körfufjandann eins og ég væri hrædd um að minn heittelskaði eiginmaður tæki hana af mér með valdi og skilaði henni í hendurnar á Jóhannesi Bónussyni, pabba okkar allra).

 Minn heittelskaði: Jenný Anna - grow up!

Ég rauk út úr búðinni og hann á eftir og hann vissi ekki hvað hafði hlaupið í þennan engil í mannsmynd sem hann er giftur.  Eða þannig.

Karfan varð eftir og verðið var 0 krónur.

Svo tuðaði ég þarna á bílaplaninu dágóða stund og til að þið hríðfallið ekki úr áhyggjum af matarleysi þá var taka tvö tekin í annarri Bónusverslun og í þetta sinn var miðinn notaður.

Það er nauðsynlegt að læra einhvern tímann, því ekki núna.

Þannig að hér er sparnaðarráðið mitt komið upp á núll krónur.

Rífist elskurnar eins og mófóar við einhvern þegar þið eruð búin að henda í körfuna allskyns óþarfa og ég lofa að 100% garanteruðum ægisparnaði.

Og hér á kærleiksheimilinu finnst okkur við hafa stigið feti framar á þroskabrautinni.  Mér hefur amk. farið fram, veit ekki með hljómsveit, þetta hefur aldrei vafist fyrir honum.  Ég lít á innkaup af öllu tagi sem dásamlegt listform sem má hefja upp í æðra veldi og snudda við guði sjálfum.

Ég ætla að vera með kjúkling í kvöldmatinn.  Nema hvað?

Pétur Blöndal snæddu hjarta.

Neysluboltinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Góðan daginn heillin, ertu búin að fá þér frystikistu ? Eða telst það kannski ekki til "jennísks reksturs" ?

Jónína Dúadóttir, 28.9.2008 kl. 09:59

2 identicon

Innkaup eru listform mín kæra og ber að æfa við hvert tækifæri sem gefst og hana nú, já og Pétur Blöndal getur bara etið hund mín vegna!

Ofurskutlukveðja

es. fegin að heyra að þú varst vel skóuð í þessari svaðilför í Bónusveldið!

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 28.9.2008 kl. 10:01

3 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Vambasúpa heitir það heillin sem nú er komin á kreik!

Edda Agnarsdóttir, 28.9.2008 kl. 10:02

4 Smámynd: Gulli litli

Þú ert meinfyndin..

Gulli litli, 28.9.2008 kl. 10:49

5 Smámynd: Huld S. Ringsted

Þetta hljómaði ekkert ólíkt innkaupaferð hjá mér og húsbandi hef margreynt að skrifa innkaupalista en gleymi þeim svo heima, lítið gagn af því

Huld S. Ringsted, 28.9.2008 kl. 10:52

6 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég fer alltaf ein í Bónus..., ég bara get ekki tekið neinn með mér í þetta áhugaverða verkefni sem tengist rekstri heimilisins og svo get ég aldrei farið með miða, bara kann það ekki og ég gleymi alltaf einhverju og þarf þá að skjótast í Nóatún til að kaupa eitthvað eitt og kem heim með fernt....! Ég reyndar uppgötvaði nýtt sparnaðarráð í gær....bara láta bjóða sér í mat, mér var boðið bæði í hádegismat og kvöldmat (af því ég er ein sko ..allir að vorkenna mér ) og eyðsla dagsins var 0kr.....algjör snilld!!

Eigðu alveg bestastan sunnudag !

Sunna Dóra Möller, 28.9.2008 kl. 11:23

7 Smámynd: Sigríður Inga Sigurjónsdóttir

Laukrétt. Það er ódýrast að kaupa ekki neitt. Ég er að hugsa um að kaupa bara mjólk og brauð í næstu viku, og klára það sem er til fyrir í skápunum.....

Sigríður Inga Sigurjónsdóttir, 28.9.2008 kl. 11:38

8 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Ætli ég eigi ekki eftir að berjast við þetta sama vandamál þegar ég kem heim en hér sest ég bara að borðum og krakkarnir splæsa á þá gömlu.  Annars kvartaði tengdasonur minn mikið í gær og lenti víst í rimmu við kassann í Hagkaupum þar sem hann tók eftir því að verðmerkingar á vörunni voru kolruglaðar.  Hann var að kaupa eitthvað smotterí og þess vegna tók hann eftir þessu.  Lægra verð var skráð inni í búðinni heldur en inn í kassann.  

Og þá spyr maður hvernig er þetta t.d. með grænmeti og annað sem viktað er við kassanum, það er ekki svo auðvelt að fylgjast með því.   

Ía Jóhannsdóttir, 28.9.2008 kl. 12:15

9 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Þetta er ekkert annað en snilldaraðferð við innkaup og megrandi í þokkabót fyrir þá sem þurfa á því að halda. Best að starta fætingi við erfðaprinsinn í búðarferðum framtíðarinnar, múahahahah

Guðríður Haraldsdóttir, 28.9.2008 kl. 12:22

10 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Ég skrifa alltaf miða og gleymi honum heima. Frábær aðferð!

Rut Sumarliðadóttir, 28.9.2008 kl. 12:35

11 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Hehe mitt besta sparnaðar ráð er að senda húsband í bónus með innkaupamiða á meðan ég sit við blogg eða eitthvað álíka mikilvægt ( djók) hann hefur ekki mikið hugmyndaflug að fara út fyrir miðann.. nei nei þessi elska hefur bara miklu meiri sjálfsaga en ég.....prófaðu næst að senda húsband með péning og miða í buddu......

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 28.9.2008 kl. 12:40

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Krumma: Það er nú oftast þannig að hann fer með miða og heldur sér algjörlega við hann. Annars væri hirðin farin á höfuðið.

Rut: Góð.

Gurrí: Já láttu erfðaprinsinn heyra það.

Ía: Þetta er ákveðin leið, að fara í mat til ættingjanna.  Múhaha.

Sigríður Inga: Gangi þér vel.

Sunna: Ég bóka mig í mat hjá öllum sem ég þekki út vikuna. Híhó.

Huld: Við slugsar höldum uppi efnahagslífinu.

Gulli: Sömuleiðis.

Edda: Hvað er vambasúpa?

Guðbjörg: Já maður lætur ekki ná sér á plebbaskóm við innkaupin vúman.

Jónína: Hef ekki pláss fyrir frystiskápinn.  Damn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.9.2008 kl. 13:05

13 Smámynd: Birna Guðmundsdóttir

Góður -betri -bestur!! Stundum topparu einfaldlega sjálfa þig!

Jafnvel argasti fýlupúki hlýtur ad brosa út í annað við lesturinn hjá þér 

Eigðu góðan dag - alla daga 

Birna Guðmundsdóttir, 28.9.2008 kl. 16:18

14 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Karlinn minn sér um öll innkaup. Ég vinn og hann verslar.

Helga Magnúsdóttir, 28.9.2008 kl. 16:23

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Helga: Ég held að ég láti hann alfarið í málið.

Birna: Takk fyrir það.

Auður: Við verðum hinar heimahangandi húsmæður með sendil og svo verslum við í laumi.  Kann allt um svona laumu.  Laumudrykkja, laumureykingar, jájá, það kemur enginn að tómum kofanum hjá mér.

Múhahahaha

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.9.2008 kl. 16:29

16 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Guð blessi þig fyrir þann hlátur sem loks hraut af mínum vörum eftir ansi öööööömurlega leiðinlegan sunnudag (að mestu).

Engill í mannsmynd....... ggggaaaaargghhhhh

Jóna Á. Gísladóttir, 28.9.2008 kl. 23:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.