Mánudagur, 22. september 2008
Englar í mannsmynd? - Held ekki
Þegar frægt fólk yfirgefur þennan heim þá hættir við að þeir séu gerðir að englum og sú staðreynd að viðkomandi var af holdi og blóði er algjörlega tekin út úr jöfnunni.
Nú er verið að skrifa bók um Lennon og þar kemur fram hversu skapbráður hann var.
Halló, auðvitað var maðurinn ekki eins og andapollur. Hann var enginn andskotans Ghandi og þarna er ég komin með annan engil sem hefur örugglega verið mannlegur líka með skap, hefur pissað og kúkað og bölvað í hljóði þegar hann var að drepast úr hita í friðsömum mótmælum.
John F. Kennedy er annar engillinn og ofurmennið.
Í fyrsta lagi þá sat hann ekki heilt kjörtímabil, þannig að það var ekki komin mikil reynsla á hann sem forseta, hann var verkjatöflu- og kynlífsfíkill. Það var talað um það í Whasington að hann gæti ekki sinnt störfum sínum vegna þess að hann var stöðugt ríðandi eins og rófulaus hundur út um allar koppagrundir. Koddahjal mannsins var líka tilefni til ótta hjá paranojaða transvestítnum J. Edgar Hoover.
Svo kom bang, bang, bang og maðurinn var ei meir og það uxu á hann vængir á ljóshraða.
Það er afskaplega æskilegt að sjá fólk eins og það er. Ég hef engar sérstakar áhyggjur af fræga fólkinu, það má alveg líma á það geislabauga fyrir mér, en ég er að meina svona á meðal oss dauðlegra.
Við höfum öll tvær hliðar (vá allir voða hissa á spekinni í mér?) annars værum við örugglega svífandi um í alheiminum, kynlaus og allslaus. Fullkomnun getur gjörsamlega klúðrar fyrir manni lífinu.
Ég persónulega hef snúið upp vilausu hlið lífspeningsins æði oft.
En núna er ég réttu megin girðingar og ætla að reyna að halda mig þar eitthvað aðeins lengur.
En það eru minningargreinarnar sem ég óttast. Að einhver mér tengdur kjósi að gleyma því hversu brokkgengur vitleysingur ég hef verið og skrifi um mig langloku þar sem ég stökkbreyttist í engil, hannyrðageta mín verði tíunduð svo og afrek mín í eldhúsi.
Ég ætla skanna þessa hluti þegar ég er komin hinumegin og ég mun skella hurðum, láta hluti hverfa og hanga á klósettinu með þeim sem það munu gera.
Ég vil vera eins og ég er - gjörsamlega laus við fullkomnun af því hitt hlýtur að vera gjörsamlega boring.
Aumingja John Lennon. Hann var ekki týpan í að vera fullkominn, kaldhæðinn andskoti sem gaf Bítlunum þetta sem þá annars hefði vantað, kaldhæðni og subbuskap (vinsamlegan subbuskap ekki æsa sig).
Góðan mánudag aularnir ykkar.
Lennon sagður hafa skaðað heyrn Seans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Bækur, Menning og listir, Tónlist | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 2986898
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr
Athugasemdir
Jæks! Ekki vil ég hafa þig með mér á klósettinu! Ég lofa upp á æru og trú - ég skal ekki tala fallega um þig!
Hrönn Sigurðardóttir, 22.9.2008 kl. 09:20
Eins gott. Hehe.
Jenný Anna Baldursdóttir, 22.9.2008 kl. 09:22
Vera með manni á klósettinu - hahahaha það sem þér dettur í hug
Sem betur fer er maður nú ekki fullkomin - held það væri nú ansi leiðinlegt líf sem fæli í sér að maður þyrfti ekkert að þroskast eða bæta sig.
Dísa Dóra, 22.9.2008 kl. 09:30
Ég lofa því að skrifa barasta alls enga minningargrein um þig
Jónína Dúadóttir, 22.9.2008 kl. 10:02
Þú verður að minnsta kosti, alveg örugglega, pottþétt, lofuð fyrir frááábært blogg, þegar þinn tími kemur!!
alva (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 10:40
Ertu nokkuð að hrökva uppaf Jenný mín? Sat með konu í gær sem sagði bara svona upp úr þurru Jæja nú á ég bara seytján ár eftir, hvernig í andskotanum sem hún vissi það nú.
Ía Jóhannsdóttir, 22.9.2008 kl. 10:42
já ætli thad ekki bara en thad liti nú kannski lika skringilega út ef einhver minningargreinin hljódadi á thessa leid " hann var bølvadur skitbuxi hann Egill, laug og stal øllu steinléttu...drykkfelldur med afbrigdum svo enginn tholdi vid i návist hans...en mikid thykir mér leitt ad hans timi sé kominn.."
María Guðmundsdóttir, 22.9.2008 kl. 10:42
Sko, að hann Ghandi hafi verið að drepast úr hita í friðsömum mótmælum
toppaði þessa frábæru frásögn...
Þú ert ógeðslega fyndin og skemmtileg ...
takk fyrir að fá mig til brosa, upphátt hehe... á mánudagsmorgni
Valdís
Valdis (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 10:47
klósettdraugur- ekki ætlaru að vera í fýlu -þarna hinu megin? Eitthvað svo ólíkt þér- hurðaskellir og rassaköst hæfa þér mun betur megir þú lengi lifa!
Birna Guðmundsdóttir, 22.9.2008 kl. 10:55
tvær hliðar? Lágmark að vera í 3D
Heiða B. Heiðars, 22.9.2008 kl. 10:56
Heiða: Ég er í kasti. Ég hélt fyrst að þú værir að tala um brjótstahaldarastærð (er ekki til sollis númer?) svo náði ég því.
Ég vill hafa minnst fjórar hliðar á hverju máli.
Persónuleikakofinn.
Ég verð í góðu skapi á klóinu að fokka upp ykkar klósettferðum, en það get ég af því að dauðir finna ekki lykt. Múhahaha
Jenný Anna Baldursdóttir, 22.9.2008 kl. 11:09
Jenný Anna Baldursdóttir að tala um kúk og piss. Ja einu sinni mér áður brá.... (er þetta ekki sagt einhvurn veginn svona?)
Jóna Á. Gísladóttir, 22.9.2008 kl. 11:43
Jóna: Öðruvísi mér áður brá þarna krúttið þitt. Hehe.
But I get the meaning of it.
Jenný Anna Baldursdóttir, 22.9.2008 kl. 11:49
Mín minningargrein um þig verður stutt, ef ég skrifa hana.
jenfo.blog.is og hananú!
Annars eru það gallarnir sem gera John svona merkilegan karakter. Hann spáði því reyndar sjálfur að hann yrði gerður að einhverjum helv. engli þegar hann færi.
Villi Asgeirsson, 22.9.2008 kl. 19:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.