Leita í fréttum mbl.is

Hjá borginni - minn afturendi

Mér finnst voða krúttlegt að sjá Hönnu Birnu svara í símann í borginni og fyrst var ég alveg; dúllan og sonna.

Svo fór ég að hugsa, (já ég veit það, stór-furðulegt en ég á þetta til þegar minnst varir).

Vildi svona skemmtilega til að blaða- og myndatökumaður móðurblaðsins var á rambi um Símaverið hjá borginni og gengu þar fram á Hönnu Birnu alveg í starfskynningu á fullu?

Auðvitað ekki.  Það tekur krúttlegheitin niður um helling þegar maður fattar að allt svona er sett á svið.

Þetta er ímyndasköpun í beinni útsendingu.

Fjandinn að maður skuli vera orðinn svona kaldhæðinn á gamals aldri.

Það verður erfiðara með hverju árinu fyrir mann að sjá hlutina eins og þeir eru settir upp fyrir mann.

Sama fyrir kosningar, þegar frambjóðendurnir hanga á kaffistofum og í vélar- og pökkunarsölum út um allan bæ en myndu ekki fyrir sitt litla líf koma í námunda við viðkomandi starfsemi á milli kosninga.

Gætuð þið ekki kastað ykkur fyrir björg að sjá t.d. Áddna fjár með fyrstihúsahúfu í innilegum samræðum við pökkunarkonuna?  Alveg intú itt?

Algjört stílbrot.

Mér er alveg sama hvar í flokki menn standa þeir eiga ekki að setja á svið einhver sjónarspil í aumri tilraunastarfsemi sem ætlað er að blekkja fólk.

Steingrímur með sveðjuna á lofti í frystihúsinu, Solla í pípulögnum, Áddni í dósaverksmiðju, Kiddi Sleggja í þvottahúsi og Geir í loðnu er ekki að gera neitt fyrir mig.

Hanna Birna, geðþekk eins og hún er og hún má eiga það, á ekki að vera að svara í símann fyrir blaðamenn.

Hvað varð um spekina úr bókinni um að hægri höndin skuli ekki vita hvað sú vinstri er að bardúsa?

Er ekki gott að halda henni til haga?

Hjá Reykjavíkurborg góðan dag, minn afturendi.


mbl.is Símadama á borgarstjóralaunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Einmitt það sem ég hugsaði, PRstunt, ekkert annað.  Einhvernveginn læðist að manni sá grunur að borgarfulltrúar ætli að ná vinsældum út á svona hluti.  Og fólk svo bláeygt og kjánalegt að grípa þetta á lofti; Guð hvað hún er almennileg, og lítillát !!!! bla bla.....

Þetta er ekkert annað en sýndarmennska af verstu tegund og hana nú.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.9.2008 kl. 14:22

2 Smámynd: 365

Geðið að gefa sig?  Hafið þið allt á hornum ykkar?  Þið eruð þessar sem talið við sjónvarpið.  Crumpy Old Ladys.

365, 17.9.2008 kl. 15:02

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Er þetta satt stelpur? Eruð þið Crumpy??

Hrönn Sigurðardóttir, 17.9.2008 kl. 15:27

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ásthildur: Eins og leikrit.

365: Þú ert þrjúhundruðsextíuogfimmsinnum leiðinlegur

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.9.2008 kl. 15:28

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hrönn: Nei, þessa stundina hjala ég við sjálfan mig.

Ég get fjandinn hafi það ekki gert að því þó fólk fari offari í pr-stöntum.  Bara gaman þegar það eru andstæðingarnir í pólitík.  Múhaha.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.9.2008 kl. 15:29

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nú dey ég CRUMPY las þetta sem grumpy.  Crumpy er nottla annað mál og mun alvarlegra.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.9.2008 kl. 15:30

7 identicon

Einmitt. Ekki svona neikvæðar.

Um að gera að slumma og slafra í sig öllu heila gumsinu sem frá þessum dálausu lýðskrumurum kemur. Með bros á vör

Ekki hugsa.

Rómverji (IP-tala skráð) 17.9.2008 kl. 15:32

8 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Þetta var að mínu mati leiðinleg sviðsetning en aftur á móti þarft fyrir konuna að kynna sér störf fólksins.  Hún á náttúrulega enga samleið með símadömunum í launamálum.  Mér finnst þessi starfskynning bara engin frétt.

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 17.9.2008 kl. 15:41

9 Smámynd: Linda litla

Það er alveg rétt þessi starfskynning er engin frétt. En hvað er málið ?? Á Hanna Birna að hækka í áliti hjá fólki fyrir þetta ??

Hún myndi kannski gera það ef að hún væri sett á símadömulaun.

Linda litla, 17.9.2008 kl. 16:09

10 Smámynd: Þröstur Unnar

Hanna Birna má alveg koma í starfskynningu til mín e.kl.18:00, en Kiddi sleggja fær ekki inngöngu hér í þetta þvottahús.

Þröstur Unnar, 17.9.2008 kl. 16:22

11 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Af hverju ertu búin að breyta litnum!

Já og taka út blúnduna?

Edda Agnarsdóttir, 17.9.2008 kl. 16:43

12 identicon

Vá mér fannst þetta svo asanlegt og glatað e-ð að ég á ekki til orð. Hvað er að verða um alla þessa stjórnmálamenn... hvað er í gangi bara í þjóðfélaginu, Það vantar bara pjúra heiðarlega stjórmálamenn sem eru í þessum störfum af hugsjón. í dag virðist allt snúast um að búa til rétta ímynd en svo er ekkert á bakvið þessa ímynd. Vá hvað maður er orðinn þreyttur á þessu!

Viktoria (IP-tala skráð) 17.9.2008 kl. 16:59

13 Smámynd: María Guðmundsdóttir

kommon...thetta er nú bara halló  finnst thessi "stunt" hjá thessum pólitíkusum ótholandi,nákvæmlega..med frystihúsahúfurnar á lofti og flr i theim dúr..uss...bara sleppa thessu..frekar patrónæsing ad minu mati..sérstaklega thegar fæstir hafa nokkru sinni unnid i verkamannastørfum

María Guðmundsdóttir, 17.9.2008 kl. 18:16

14 Smámynd: Liberal

Og hvað með það?  Athyglissýkin í sósjalistunum er engu minni, góða mín.  Dæmigert væl í hinu bitra vinstrapakki sem aldrei er ánægt.  Vinir þínir í VG og Samfylkingunni gátu meira að segja fundið sér tíma í fílabeinsturni sínum til að agnúast út í það að reisa eigi styttu af Tómasi Guðmundssyni, og kölluðu slíkt dæmi um karlæga hugsun!

Ef það er ekki PR stönt, þá veit ég ekki hvað.  Munurinn á þessum tveimur stöntum er sá að annað virkar og sýnir borgarstjóra sem eðlilegan einstakling (annað en þeir 3 sem á undan fóru, vitleysingurinn, Villi gerspillti, og Dr. Dagur blaðurskjóða), en hitt sýnir að hinar bitru rauðsokkur fá að ríða röftum í VG og Samfylkingunni í borginni, okkur kjósendum til ómældrar kátínu.

Liberal, 17.9.2008 kl. 18:57

15 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ég mundi fyllast aðdáun ef alvörusímadaman fengi borgarstjóralaun

Jónína Dúadóttir, 17.9.2008 kl. 20:05

16 Smámynd: Sigrún Óskars

Blaðamenn hafa ekki fundið þetta á sér, það hefur verið hringt í þá og leikritið svo hafist þegar myndatökumenn hafa verið tilbúnir. Það hfur þurft eitthvað jákvætt í kringum borgarstjóraembættið og hugmyndaflugið ekki verið upp á marga fiska.

Sigrún Óskars, 17.9.2008 kl. 21:00

17 identicon

Hjartanlega sammála öllu í þessari færslu. Mér finnst allt þetta athæfi hjá pólitíkusunum sýndarmennska og ekkert annað. Ég sá myndskeið frá þessari uppákomu Hönnu Birnu og finnst hvorki staður ne´stund til að vera í einhverjum ímyndarleik.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 17.9.2008 kl. 21:05

18 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Þvílík sýndarmennska og stælar. Hvaða máli skiptir það hvort Hanna Birna kunni að svara í símann eða ekki? Ég hélt að það væri fólk til að sinna því og hún ætti að druslast til að taka til hjá borginni og sinna því starfi sem hún fær himinhá laun fyrir. Svei attan.

Helga Magnúsdóttir, 17.9.2008 kl. 21:46

19 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Ójá Jenný, þinn "Endi"!

Hann færi örugglega betur í símadömustól en nafni hans á HB. og það þótt þú værir líka á Stjóralaununum!

Magnús Geir Guðmundsson, 17.9.2008 kl. 22:38

20 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Ertu sem sagt að segja að þetta hafi ekki verið tilviljun ;-? Og undarlegt hvað blaðamenn láta oft nota sig.

En annars get ég sagt þér aðra sögu úr sama heimi. Það voru nefnilega einu sinni (sumir segja í sextán ár) til stjórnmálasamtök sem fóru í frystihúsin, sláturhúsin, skrifstofurnar og út um allt á hverju ári (í september) en ekki bara á kosningaárum. Þetta var Kvennalistinn. Og það var næstum undantekninglaust spurt: Hva, eru að koma kosningar?

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 17.9.2008 kl. 22:55

21 Smámynd: Víðir Benediktsson

Þetta er þekkt fyrirbæri hjá Sjálfsstæðismönnum. Munið hvernig látið var með Árna Sigfússon þegar hann var leiðtogi þeirra í Reykjavík. Þá var Barbie lúkkið inn.

Víðir Benediktsson, 17.9.2008 kl. 23:37

22 Smámynd: Villi Asgeirsson

Þetta var alveg rosalega flott hjá henni. Það er alveg stórkostlegt að borgarstjóri vilji kynna sér hvernig borgin virkar. Það skemmdi para pínulítið að hún breytti ekki um nafn til að fá rétt viðbrögð fólks og að hún þurfti endilega að hringja í pressuna til að auglýsa humbelheitin. Kannski ég láti það vera að falla fyrir pí ar stöntinu.

Villi Asgeirsson, 18.9.2008 kl. 10:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 2985769

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband