Leita í fréttum mbl.is

Kveðjur frá alkanum

 

Þegar stelpurnar mínar voru litlar var ég með þá vitneskju múr- og naglfasta í höfðinu að eyranpinnar væru ekki ætlaðir til nota í eyru.

Fyrir mér er það stór furðulegt að nú í dag skuli komi frétt um að bandarískir læknar hafi komist að þeirri niðurstöðu að þeir geri ógagn.

En halló - hr. læknismaður - ekki að ræða það að ég trúi að ekki eigi að fjarlægja eyrnamerg hjá börnum. 

Ég er ekki að meina að maður eigi að skafa úr eyrum barna - eða fullorðinna, en eyrnamergur sem vellur út úr eyrum er hvorki heilsusamlegur vegna þess að viðkomandi er á jaðri heyrnarleysis þegar þar er komið sögu, fyrir utan það hversu ógeðslegt það er að sjá heiðgulan massann kíkja út í sólina.

Hafið þið verið svo óheppin að fá að bragða þessa líkamsafurð?  Ég státa af þeirri reynslu.  Fékk óvart upp í mig örlítið í einhverjum hamangangi og voila bragðið er eins og af Campari.

Svo gerist þetta æ undarlega.  Haldið ekki að Caparíið bragðist eins og eyrnamergur?

Jabb.  Satt. 

Hér á árum áður þegar ég vildi vera í stíl þá drakk ég stundum Campari af því ég átti kjól í þessum rauða lit.  Mér var sagt að bragðið myndi venjast.  Ég reyndi og henti svo kjóldruslunni.

Já og svo drakk ég twentívonn í stíl við eitthvað, minnir að það hafi verið fjólublár fínflauelskjóll.

Svo fór ég að vera eingöngu í svörtu.

Þið vitið að svart gengur við allt.

Nema hvað - auðvitað endaði ég í meðferð.

Allt fatasmekknum að kenna.

Kveðjur.

Alkinn.


mbl.is Bómullarpinnar gera meira ógagn en gagn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ó Jenný , nú grét ég úr hlátri.

Sigrún Jónsdóttir, 11.9.2008 kl. 00:22

2 Smámynd: Gulli litli

Þessar fatadruslur eru stórhættulegar..

Gulli litli, 11.9.2008 kl. 00:29

3 identicon

Við deilum þessari smakk-reynslu ég og þú....Campari er nákvæmlega eins og gulbrúnu afurðirnar á bragðið.  Annars sagði ég alltaf að sá drykkur væri drykkur eigingjarna mannsins/konunnar, einfaldlega af því að ENGINN biður um sopa, þvílíki horbjóðurinn. (Þetta var á táningsárunum mínum þegar maður var ennþá að biðja um að fá að smakka eða átti ekki mikinn pening og bað vinina um sopa til að viðhalda alkóhólinu í sér)

Aldrei datt mér í hug að fólk drykki í stíl við fötin sín HA HA HA HA

Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 11.9.2008 kl. 00:32

4 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Ætla EKKI að fá mér rauðan kjól. því þá yrði ég að fara að éta eyrnamerg.

Eða var það Campari?? Hvort kom á undan eggið eða hænan.

 Kveðja á þig mín kæra

Einar Örn Einarsson, 11.9.2008 kl. 00:45

5 Smámynd: Brynja skordal

 Fá sér vín í stíl við fötin sín allt er nú til En aldrei hef ég samt smakkað eins vont vín og Camparí sá sem fann það upp hefur Elskað bragðið af Eyrnamerg En já tvenntívonn ó boy man sko eftir því þótti það gott á sínum tíma ennn í dag nei takk vil bara eðal coniac og vindil það er að seigja þegar ég skelli mér í smókingeða snýst þetta ekki um fataval annars vegar og drykk hins vegar Annars góða nótt jenný mín gaman að fara brosandi án þess að nota þetta sull í bólið sitt

Brynja skordal, 11.9.2008 kl. 01:24

6 Smámynd: Hulla Dan

Eg hef alltaf notað hárspennu til að veiða eyrnamerg úr eyrum barnana minna... meðan þau hafa malað. Nota svo eyrnapinna eftir á til að hreinsa eyrað sjálft (ekki inní s.s)

Hulla Dan, 11.9.2008 kl. 05:41

7 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Þeir eru hrikalega langt á eftir þessir læknar

Jónína Dúadóttir, 11.9.2008 kl. 05:55

8 Smámynd: Tína

Tína, 11.9.2008 kl. 06:45

9 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 æ gafst mér hláturskast i morgungjøf  takk fyrir thad, hafdi sko thørf fyrir thad.

knus og kram til thin.

María Guðmundsdóttir, 11.9.2008 kl. 07:18

10 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Bara snilld, ég frussaði kaffinu hér út um allt borð er enn í kasti heheheh

Ía Jóhannsdóttir, 11.9.2008 kl. 07:31

11 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

þú ert alveg ótrúleg en samt alveg dásamleg

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 11.9.2008 kl. 07:33

12 Smámynd: Anna Margrét Bragadóttir

 Frábær lesning

'Eg hef orið fyrir því að fá eyrnamerg upp í mig,ekki geðslegt

Eigðu góðan dag

Anna Margrét Bragadóttir, 11.9.2008 kl. 08:12

13 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Jæks - ég mundi ekki drekka Campari þó það væri eina vínið í heiminum!

Hrönn Sigurðardóttir, 11.9.2008 kl. 08:25

14 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Alas: Earwax!

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 11.9.2008 kl. 08:51

15 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Það er svo gott að hlægja stundum og nú hló ég upphátt, alein heim fyrir framan tölvuna! Takk fyrir mig !

Sunna Dóra Möller, 11.9.2008 kl. 08:55

16 Smámynd: Þröstur Unnar

Camparí er hollur og góður drykkur, bull eretta.

Þröstur Unnar, 11.9.2008 kl. 09:42

17 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 11.9.2008 kl. 10:10

18 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.9.2008 kl. 10:19

19 Smámynd: Linda litla

Ég hef heyrt þetta með camparí, en aldrei smakkað eyrnamerg (sem betur fer) oj.

Linda litla, 11.9.2008 kl. 11:01

20 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Ég reyndi einu sinni að drekka Campari af því að mér var sagt að maður fengi ekki höfuðverk af honum. .... EEEEE ekki alveg!

Textinn þinn er tær snilld! 

Ingibjörg Hinriksdóttir, 11.9.2008 kl. 11:27

21 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég legg til að þeir sem ekki hafa þegar smakkað eyrnamerg verði sér úti um þá reynslu pronto.  Það er ekki hægt að deyja án þess að hafa öðlast þá vígslu börnin góð.

Annars eruð þið alltaf jafn frábær.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.9.2008 kl. 12:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 2985791

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband