Leita í fréttum mbl.is

Frygðarbanar og aðrir kynhvatarmorðingjar

 Henry8

Ég verð að játa að aldurinn er farinn að trufla mig verulega.

Eins og t.d. varðandi hvað er sexý karl og hvað ekki.  Rólegan æsing samt ég hef aldrei hangið á fjölförnum stöðum (ekki fámennum heldur) við að mæla út kynþokkafulla karlmenn enda þeir ekki á hverju strái.

(Hvað varð annars um tímann uppúr gelgju þar sem það var ekki þverfótað fyrir karlkyns hormónabúntum?).

Ég varð nefnilega smá leið þegar ég las um að konum þætti Pútín sexý. Mér finnst hann álíka kynferðislega hvetjandi maðurinn og Óli Prik.  Sama með Clinton, sé ekkert frygðarhvetjandi við þann mann, finnst hann eins og gamall og tinandi frændi að utan að landi.  Algjör frygðarbani.

Kannski er það valdið sem gerir þetta að verkum.  Sumir segja það. 

T.d. Henrí mófó 8. Bretakóngur sem átti sjö eða átta konur, lét afhöfða þær eða svipta þær eignum og æru, lokaði þær inni, hélt fram hjá þeim og áfram út í það óendanlega.  Hann var ljótur, hann var með sífyllis en allar vildu þær eiga helvítis útvatnaða genaslysið.  Og sjáið Prins Charles enn útvatnaðri innherjafyrirbæri og afkomandi þess 8., þegar hér er komið sögu minnir hann mig á álf í skelfilegri kantinum.  En hvað get ég sagt þetta hefst af innherjaríðingum.

Æi ljótt af mér að skrifa svona, en ég er bara að hugsa svona upphátt þið skiljið  Viðra heilabúið enda föstudagur og svona.

Svo er ég orðin svo utan við mig.

Ég var að bera út poka áðan á leiðinni heim úr vesturbæjardvölinni og ég tók með mér ruslapokann.  Ekki í fyrsta skipti.

Það var sko völlur á minni þegar hún fór með sorpið í strætó og striksaði með það inn á deild á Lansanum þar sem ég var læknaritari.

En þá var ég þrjátíuogeitthvað.

Æi nennessekki.

Farin að leggja mig.

Síjúsúmílúmítúmí.

P.s. Það má svo til sönnunar máli mínu framleggja að ég ætlaði að skrifa um reyktan makríl í þessari færlsu.

Það verður næst bara.

Og farið með bænirnar ykkar skammirnar ykkar.


mbl.is Kynþokki Pútíns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Sofðu rótt....vonandi dreymir þig ekki Pútin og Hinrik 8 !

Farin að biðja

Sunna Dóra Möller, 5.9.2008 kl. 15:17

2 Smámynd: Þröstur Unnar

Hef fulla trú á kynþokka Pútíns. Það er nebblega ekki nóg að sjá mynd af viðkomandi personu. Nándin skipti höfuðmáli í kynþokkamælingum.

So koddu ekki nálægt góða og sofðu rótt.

Þröstur Unnar, 5.9.2008 kl. 15:48

3 Smámynd: Rebbý

æj hvað ertu að tala svona um ósjarmerandi menn síðdegis á föstudegi ... við einhleypingarnir dettum bara alveg úr stuði.
eins gott að Þröstur benti á það sem sannast er ... nándin/útgeislunin hefur allt með kynþokkann að gera svo kannski eru þessi grey bara ekki svo galin ef maður myndi rekast á þá út á götu

Rebbý, 5.9.2008 kl. 16:24

4 Smámynd: María Guðmundsdóttir

ussumfruss..Pútín sexy...og Clinton...nei tek undir med thér,má ég thá bidja um Óla Prik eda bara kallinn minns  

María Guðmundsdóttir, 5.9.2008 kl. 16:26

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Kristín Katla Árnadóttir, 5.9.2008 kl. 16:26

6 Smámynd: Gulli litli

Hvað er þetta út í Óla prik og Clinton?

Gulli litli, 5.9.2008 kl. 16:45

7 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Finnst þér reyktur makríll góður ?

Jónína Dúadóttir, 5.9.2008 kl. 16:49

8 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Þú ert fyndnasti pistlahöfundur sem ég veit um kona...mitt í sorginni sit ég skellihlæjandi yfir síðustu pistlum....takk, þú bjargar geðheilsu minni..

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 5.9.2008 kl. 17:16

9 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

"helvítis útvatnaða genaslysið" og "enn útvatnaðri innherjafyrirbæri "

Ég býð ekki í það þegar þú ákveður að tala virkilega illa um einhvern !

Ragnhildur Sverrisdóttir, 5.9.2008 kl. 17:51

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ragnhildur: Ég er að mæra mennina á kjarnyrtri íslensku.

Krumma: Takk fyrir og gott ef ég get komið þér til að brosa í þrengingum þínum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.9.2008 kl. 17:56

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jónína: Reyktur markríll með góðu salati er besta, besta.

Gulli: Þeir eru svo ósexý félagarnir.

María: Góð.

Rebbý: Tilgangurinn er að halda þér heima vúman.

Þröstur: Gott að þú ert sæll í trúnni, ég vona að þú og Pútin verðið ákaflega hamingjusamir saman.

Sunna: Ég hætti við að leggja mig.  Svona er lífið.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.9.2008 kl. 17:59

12 Smámynd: Frikkinn

Charles núverandi prins af Wales er ekki afkðmandi Hinriks 8. H8 var af Tudor ætt, hinn er af Coburg-Gotha eða svokallaðri Hannoverætt kallaðri. þó þau kallii sig Windsor. Hitt er annað mál af það er engin munur á skít og kúk.... Kveðja

Frikkinn, 5.9.2008 kl. 18:22

13 Smámynd: halkatla

Nú verð ég að tjá mig: þú bloggar alltaf um það sem máli skiptir JA og hefur fjári góðan smekk á því, amk hvað Pútín og hina kallana varðar

halkatla, 5.9.2008 kl. 21:48

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Frikkinn: Takk fyrir þetta og já það er rétt enginn munur á júnó.

Hallgerður: Vér munum ekki slást um sömu karlmenn, það er nokkuð ljóst.

AK: Ég veit að ég hitti ÁVALLT á mikilvægustu fréttirnar og ég elska þig líka.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.9.2008 kl. 22:29

15 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Frikkinn : Þú þyrftir að kynna þér ættfræði örlítið betur áður en þú þeysir fram á ritvöllinn eins og þú gerir hér , þér til lítils sóma í fúkyrðum þeim sem ég mun ekki hafa eftir þér. Elísabet er sannarlega Tudorafkomandi. Í meðfylgjandi ættartölu getur þú kynnt þér að Margrét Tudor nr. 17 í röðinni er dóttir Hinriks VII. Þannig er þessi Margrét Tudor systir Hinriks áttunda og eru þau börn Elísabetar af York og Hinriks sjöunda.

Upptalningin á beinni línu Elísabetar annarrar drottningar er í númeraröð. Þeir ónúmeruðu sem koma með til fróðleiks eru frændfólk hennar ekki í sömu línu samanber Hinrik áttundi.

Ártölin fyrir aftan vísa í árin sem viðkomandi ríkti.

  1. Wilhjálmur I , 1066-1087
Vilhjálmur II Englandskonungur , 1087-1100
  1. Hinrik I , 1100-1135- Tók við af eldri bróður sínum Vilhjálmi I , 1087-1100
  2. Matthildur drottning & keisaraynja (Maud) , 1141  
Dóttursonur Vilhjálms I = Stephán 1135-4/1141 & 11/1141-1154
  1. Hinrik II , 1154-1189
Ríkharður “ljónshjarta”, 1189-1199
  1. Jón “landlausi”, 1199-1216 Yngri bróðir Ríkharðs “ljónshjarta”
  2. Hinrik III , 1216-1272
  3. Játvarður I , 1272-1307
  4. Játvarður II , 1307-1327
  5. Játvarður III , 1327-1377
  6. Lionel af Antwerpen, hertogi af Clarence ,
  7. Filippa Plantagenet, af Ulster
Ríkharður II Englandskonungur, 1377-1399Hinrik IV Englandskonungur , 1399-1413
  1. Roger Mortimer, jarl af March
Hinrik V Englandskonungur , 1413-1422
  1. Anna Mortimer
Hinrik VI Englandskonungur , 1422-1461 & 1470-1471
  1. Ríkharður Plantagenet, hertogi af York
  2. Játvarður IV , 1461-1470 & 1471-1483
Ríkharður III Englandskonungur , 1483-1485Hinrik VII Englandskonungur , 1485-1509Hinrik VIII Englandskonungur , 1509-1547
  1. Elísabet af York (drottning Hinriks VII)
Játvarður VI Englandskonungur , 1547-1553 Játvarður V Englandskonungur , 1483
  1. Margrét Tudor (drottning Játvarðs IV & dóttir Hinriks VII)
  2. Jakob V af Skotlandi , 1513-1542
María (Mary) I Englandsdrottning , 1553-1558Elísabet I Englandsdrottning , 1558-1603
  1. María (Mary) Skotadrottning 1542-1567
  2. Jakob I Englandskonungur , 1567-1625
  3. Elísabet Stuart, (drottning kjörfurstans/konungsins í Heidelberg)
Karl I Englandskonungur , 1625-1649
  1. Sophía (drottning kjörfurstans/konungsins af Hanover)
Karl II Englandskonungur , 1649-1685Jakob II (& VII ) Englandskonungur , 1685-1688María II Englandsdrottning , 1689-1694Vilhjálmur III Englandskonungur , 1689-1702Anna drottning Stóra- Bretlands , 1702-1714
  1. Georg I konungur Stóra-Bretlands , 1714-1727
  2. Georg II konungur Stóra-Bretlands , 1727-1760
  3. Friðrik prins af Wales
  4. Georg III konungur breska samveldisins , 1760-1820
  5. Játvarður Ágúst prins, hertogi af Kent og Strathearn
Georg IV konungur breska samveldisins og Hanover , 1820-1830Vilhjálmur IV konungur breska samveldisins og Hanover , 1830-1837
  1. Viktoría drottning Stóra Bretlands og keisaraynja af Indlandi , 1837-1901
  2. Játvarður VII konungur breska samveldisins , 1901-1910
  3. Georg V konungur breska samveldisins og keisari af Indlandi , 1910-1936
Játvarður VIII konungur Stóra-Bretlands og keisari Indlands , 1936
  1. Georg VI konungur Stóra-Bretlands og keisari Indlands , 1936-1952
  2. Elísabet II drottning breska samveldisins , 1952-

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 6.9.2008 kl. 04:57

16 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Það ruglaðist eitthvað númeraröðin sjálfvirka hér að ofan. Reyi að setja það inn núna aftur :

1. Wilhjálmur I , 1066-1087

Vilhjálmur II Englandskonungur , 1087-1100

2. Hinrik I , 1100-1135- Tók við af eldri bróður sínum Vilhjálmi I , 1087-1100

3. Matthildur drottning & keisaraynja (Maud) , 1141

Dóttursonur Vilhjálms I = Stephán 1135-4/1141 & 11/1141-1154

4. Hinrik II , 1154-1189

Ríkharður “ljónshjarta”, 1189-1199

5. Jón “landlausi”, 1199-1216 Yngri bróðir Ríkharðs “ljónshjarta”

6. Hinrik III , 1216-1272

7. Játvarður I , 1272-1307

8. Játvarður II , 1307-1327

9. Játvarður III , 1327-1377

10. Lionel af Antwerpen, hertogi af Clarence ,

11. Filippa Plantagenet, af Ulster

Ríkharður II Englandskonungur, 1377-1399

Hinrik IV Englandskonungur , 1399-1413

12. Roger Mortimer, jarl af March

Hinrik V Englandskonungur , 1413-1422

13. Anna Mortimer

Hinrik VI Englandskonungur , 1422-1461 & 1470-1471

14. Ríkharður Plantagenet, hertogi af York

15. Játvarður IV , 1461-1470 & 1471-1483

Ríkharður III Englandskonungur , 1483-1485

Hinrik VII Englandskonungur , 1485-1509

Hinrik VIII Englandskonungur , 1509-1547

16. Elísabet af York (drottning Hinriks VII)

Játvarður VI Englandskonungur , 1547-1553

Játvarður V Englandskonungur , 1483

17. Margrét Tudor (drottning Játvarðs IV & dóttir Hinriks VII)

18. Jakob V af Skotlandi , 1513-1542

María (Mary) I Englandsdrottning , 1553-1558

Elísabet I Englandsdrottning , 1558-1603

19. María (Mary) Skotadrottning 1542-1567

20. Jakob I Englandskonungur , 1567-1625

21. Elísabet Stuart, (drottning kjörfurstans/konungsins í Heidelberg)

Karl I Englandskonungur , 1625-1649

22. Sóphía (drottning kjörfurstans/konungsins af Hanover)

Karl II Englandskonungur , 1649-1685

Jakob II (& VII ) Englandskonungur , 1685-1688

María II Englandsdtrottning , 1689-1694

Vilhjálmur III Englandskonungur , 1689-1702

Anna drottning Stóra- Bretlands , 1702-1714

23. Georg I konungur Stóra-Bretands , 1714-1727

24. Georg II konungur Stóra-Bretlands , 1727-1760

25. Friðrik prins af Wales

26. Georg III konungur breska samveldisins , 1760-1820

27. Játvarður Ágúst prins, hertogi af Kent og Strathearn

Georg IV konungur breska samveldisins og Hanover , 1820-1830

Vilhjálmur IV konungur breska samveldisins og Hanover , 1830-1837

28. Viktoría drottning Stóra Bretlands og keisaraynja af Indlandi , 1837-1901

29. Játvarður VII konungur breska samveldisins , 1901-1910

30. Georg V konungur breska samveldisins og keisari af Indlandi , 1910-1936

Játvarður VIII konungur Stóra-Bretlands og keisari Indlands , 1936

31. Georg VI konungur Stóra-Bretlands og keisari Indlands , 1936-1952

32. Elísabet II drottning breska samveldisins , 1952-

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 6.9.2008 kl. 05:02

17 Smámynd: Hulda Elma Guðmundsdóttir

Mér finnst Pútin helvíti sexy. Borðaði á sama veitingastað og hann í Moskvu og hann hreinlega fékk mig til að skjálfa.

Hulda Elma Guðmundsdóttir, 7.9.2008 kl. 09:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 2985885

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.