Leita í fréttum mbl.is

Enn í vondu skapi - Só?

Ég er yfirleitt ekki í vondu skapi.  Það á það til að snöggfjúka í mig og svo er ég eins og gullfiskarnir, ég gleymi því nánast strax og held áfram að hafa gaman.

Einfalt og þægilegt.

En sumir dagar ættu ekki að vera til.  Þessi er einn af þeim.

Einhver sagði í athugasemdakerfinu mínu að ég ætti ekki að eyða tímanum í að vera reið.  Örugglega rétt, en ég hef tekið upplýsta og meðvitaða ákvörðun að vera bálill þar til þessi dagur er á enda runninn.

Það var kominn tími á smá túrbúlans.

Stundum þarf maður einfaldlega smá illsku til að dusta örlitið af uppsafnaða rykinu á sálinni.

Ég játa reyndar að ég missti mig í gamalt mynstur.  Ég lét utanaðkomandi fólk, að vísu töluvert nálægt mér, afa áhrif á líðan mína, þrátt fyrir að ég viti að ef ég ætla að láta stjórnast af framkomu annarra í minn garð þá get ég alveg eins flutt lögheimilið mitt í næsta rússíbana bara. 

Ég er búin að gera það sama og síðast þegar það fauk illilega í mig.

Ég þurrkaði af - var enn ill - ég setti í þvottavél - var enn ill - ég eldaði mat- það sauð meira á mér en friggings matnum - ég tók til á lóðinni - okokok, ég er hætt.  Þið hljótið að skilja hvert ég er að fara þaeggibara?

Hehe, svei mér ef ég er ekki öll að koma til.  Gott ef ég er ekki farin að brosa og blakta augnhárunum.

Æi lífið er sætt og súrt og heill hellingur þar á milli.

Og svo tók ég út færslu sem ég geri helst ekki. 

1-0 fyrir mér, ég gerði mistök.

En ég ætla að vera ill í 57 mínútur í viðbót.

Farin að einbeita mér að því.

Úje.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Ertu að telja til miðnættis ?

Var að tala við frænda minn áðan sem sagði að það væru 82 dagar, 56 mínútur og 40 sekúndur þar til hann fengi bílprófið.

Undarlegt að hitta tvo "teljara" á sama hálftímanum. Ætli þetta viti á vinning í happdrættinu ?

Ragnheiður , 1.9.2008 kl. 23:09

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

3871-3872-3873.....   Jenný missti ég þá af góðri færslu?? 

Ásdís Sigurðardóttir, 1.9.2008 kl. 23:12

3 identicon

.Annars er ég búin að gráta í allt kvöld.Sorgin er búin að vera óvenjulega sár í kvöld.En verð góð á morgun.Já Ragga.Sá stóri.Jenný það er smá bót í máli er að svona stendur oftast stutt yfir.Og núna þarf ekki að þrífa hjá þér fyrr en í oktober hahahahaha

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 23:15

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Kannski er þetta að ganga, hvað veit ég.

Ásdís: Færslan var ágæt en samt aðeins yfir strikið að mínu mati.  Vertu róleg þær eiga eftir að verða margar brilljant.  Hehe.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.9.2008 kl. 23:16

5 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Má ég segja eitt.....þú og systur þínar eruð allar jafn æðislegar. Heppin kona þú. Ég á reyndar bara eina systur en hún jafnast alveg á við þínar sex.... Og það er bráðhollt að pústa reglulega annars fær maður bara hjartaáfall eða eitthvað þaðan af verra. Ég ríf reglulega allt út úr fataskápnum og raða í réttri röð, lítum og formum og verð svo afar sátt.

Knús á þig. 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 1.9.2008 kl. 23:16

6 identicon

:) þú hlýtur að vera í hrútsmerkinu ef þú snöggreiðist svona og snöggafreiðist svona aftur- þú ert frábær - reið sem ó-reið!!

Baráttukveðjur!!

alva (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 23:21

7 identicon

Mér finnst eitthvað óendanlega krúttlegt við Jenný hina snak-illu  svo er það líka svo eðlilegt að verða svona stundum og það vitlausasta er víst að reyna að fara að afneita því að það geti fokið í mann - sammála?

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 23:30

8 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

  Það góða við svona ham er að alltaf birtir upp um síðir og ef fúllyndið er hressilegt er hægt að fá góða útrás.

Voru ekki "missed calles" á gemsanum þínum á laugardaginn? 

Lára Hanna Einarsdóttir, 1.9.2008 kl. 23:35

9 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sigrún Jónsdóttir, 1.9.2008 kl. 23:43

10 Smámynd: Steingrímur Helgason

Mér þykir alveg jafn mikið í þig varið þegar þú ert úldin, en þegar þú er ferzk, gæzkan mín.  Hvoru tveggja fer þér nefnilega vel, & það er gáfa sem að öðrum er ekki jafn vel gefin.

Svo ertu líka skemmtilega hnýsin & hyzkin...

Steingrímur Helgason, 2.9.2008 kl. 00:15

11 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 æ vonandi rjátlar thetta af thér...eitthvad kannst ég vid svona daga...thyrfti ad búa i helli á theim døgum

María Guðmundsdóttir, 2.9.2008 kl. 05:14

12 Smámynd: Linda litla

Jæja, núna ættu þessar mínótur að vera liðnar og góða skapið mætt á svæðið.

Fór að hugsa þetta mál me að vera pirruð og reið, það hhefur verið sagt við mig ef að ég er svoleiðis skapi "farðu á fund", þú hlýtur að kannast við það.

Annars hlakka ég bara til að lesa bloggið þitt í fyrramálið..... þegar þú verður þú aftur

Linda litla, 2.9.2008 kl. 05:44

13 Smámynd: Tína

Ekkert að því að vera reið annað slagið. Ég tel það meira að segja bráðnauðsynlegt. Safnast ekki upp einhver kergja á meðan.

Vona samt að vonda skapið hafi farið sömu leið og dagurinn......... s.s orðin að fortíð.

Knús á þig yndislegust.

Tína, 2.9.2008 kl. 07:13

14 identicon

SIgurvegari

Kveðja úr skítabrælu, lengst úti í hafi. Þrátt fyrir það er hægt að brosa hringinn.

Einar Örn Einarsson (IP-tala skráð) 2.9.2008 kl. 07:13

15 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Góðan daginn heillin góð, hvernig líður þér í dag ?

Jónína Dúadóttir, 2.9.2008 kl. 07:36

16 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Er ekki allt komið í dúnalogn og jörðin farin að snúast sinn vanagang? 

Ía Jóhannsdóttir, 2.9.2008 kl. 07:48

17 Smámynd: Þröstur Unnar

Auðvitað hafa utanaðkomandi áhrif á okkur. Annað væri ekki mannlegt.

Svo bara hressa sig við........

Þröstur Unnar, 2.9.2008 kl. 08:58

18 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Þú ert æðislegust og bestust .

Knús

Elísabet Sigurðardóttir, 2.9.2008 kl. 09:31

19 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk alveg innilega fyrir allar þessar fallegu kveðjur, að þessu sinni hafði ég verulega þörf fyrir orðaknús.

Katrín: Hitturðu systur mínar?

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.9.2008 kl. 09:45

20 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Sunna Dóra Möller, 2.9.2008 kl. 14:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985766

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.