Leita í fréttum mbl.is

Þvag í lítratali og sælgæti fortíðar

 kók

Dem, dem, dem, hvað það er ömurlegt að vera vitur eftirá.

Ég er búin að tapa þremur fylgjum í brennsluofn ákveðinna heilsustofnana um æfina og hafði ekki hugmynd um að það væri góð hugmynd að gefa þær til Skógræktarinnar í þessu gróðurvana landi sem fósturjörðin er.

Svo koma svona Einsteinar alltof seint í fjölmiðla og deila með sér af notkunargildi fylgjunnar sem mun koma með hverjum einstaklingi í heiminn.

Og allar þessar konur sem eru búnar að skutla fylgjunum í ruslið í gengum aldirnar.

Munið þið eftir frasanum; eina ískalda kók og kaupa glerið?  Fór maður ekki síðan með glerið og fékk peninginn til baka? Mig minnir það.

Sama hugmyndafræði gæti gilt um fylgjur framtíðarinnar, taka barnið og fylgjuna með heim og gefa hana síðan til aldingarða heimsins. Nú eða selja, ekki leiðinlegt.

Fífl og fávitar.  Ég bíð eftir að þetta sjálfupptekna lið í Hollywood fari að selja úr sér þvagið í lítratali.

En..

Þegar ég fór að skrifa um ískalda kók þá fór ég að hugsa um Krummalakkrísrör, Lindubuff, krembrauð og Bingó.

Og haltukjaftikaramellur og brjóstsykur.

Bazookatyggjó og fimmaurakúlur.

Svo ég gleymi nú ekki Krumma lakkrískonfekti.

Alladín poppkorni og Sínalkó.

Skemmtilegt fyrir mig að detta í namminostalgíu, sérstaklega af því að undirrituð er með sykursýki.

Well þá er ég beisíklí ekki í neinni hættu.

Búið að loka sjoppunni og nammi er löngu hætt að vera spennandi.

Dæs og þungt andwarp.

Úje.


mbl.is Fylgjan verður gróðursett í aldingarði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Drauma nostalgía með allt sælgætið og eiginlega fylgjurnar lika ekki minni en sex sem hafa farið í ruslið hjá mér!

Annars þegar ég átti Fylki 1987 í Aarhus, tók á móti honum spriklandi fjörug blökkukona frá Simbabe og klíndi allri fylgjufitunni á mig og sagði að ég gæti ekki fengið betra fegrunarkrem.

Edda Agnarsdóttir, 12.8.2008 kl. 00:09

2 Smámynd: M

Þú ert agaleg, er með mikla sykurþörf á kvöldin og ekki batnaði það við að lesa þennan góða pistil

M, 12.8.2008 kl. 00:17

3 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Í Dýragarði í Hollandi er hægt að kaupa 5 kílóa dollu af Fílakúk fyrir 5 gyllini, þá þegar ég keypti fílaskít og svo fékkstu 5gyllini til baka þegar þú skilaðir fötunni, í næstu Sorpustöð þeirra Hollendinga.

Ég veit um einn karlmann sem pissar alltaf í dollu og fer svo með dolluna út í garð og vökvar bæði blómin sín og trén. - Og þið ættuð bara að sjá garðinn hans. -  Hann hefur vakið mikla athygli.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 12.8.2008 kl. 02:23

4 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Hehehe ég elska að vakna við svona á morgnanna.  Minn elskulegi vökvar hér reglulega blettinn fyrir aftan húsið og sá partur er fagurgrænn, ætti e.t.v. að fara að benda honum á að beina ,,honum" á buxusana þeir eru svo asskoti seinvaxnir.

Annars bara góð svona í morgunsárið. 

Ía Jóhannsdóttir, 12.8.2008 kl. 04:33

5 Smámynd: María Guðmundsdóttir

thid erud ótrúlegar

sinalco!! omægod...fékk bara nostalgíu vid ad lesa thetta, og já,lindubuff og lakkrísrør those were the good old days..

hafdu gódan dag

María Guðmundsdóttir, 12.8.2008 kl. 04:41

6 Smámynd: Hulla Dan

Þú ert ferleg!!!
Hér sit ég í landi hins vonda nammis (fyrir utan m og m) og þú hreinlega þylur upp mín uppáhalds nammi.
Og því sem þú sleppir kemur svo í kommentakerfinu... Kisutyggjó ómg!
Lindubuff hreinlega elska ég... Verð að fá næstu gesti til að færa mér þannig.

Eigðu bjútífúl dey

Hulla Dan, 12.8.2008 kl. 06:26

7 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jónína Dúadóttir, 12.8.2008 kl. 07:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 2985885

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband