Leita í fréttum mbl.is

Ég er ástfangin - púmm og pang - og?

 red-cupid

Ástarsorg er háalvarlegt mál.  Krísa sem er ekkert ósvipuð því að missa náinn ættingja, þ.e. þegar um löng sambönd er að ræða.

En..

það er ekki mín sérgrein þó ég hafi upplifað nokkrar svoleiðis þá voru þær eiginlega ekki alvöru með nokkrum sárum undantekningum.´

Þegar ég var ung og ör var ég ástfangin nánast á hverjum degi.  Af nýjum og nýjum sko.  Ástfengnin rann hinsvegar af mér jafn snögglega og hún heltók mig.  Búmm Pang.

Ég var að ræða það við gamla vinkonu (Eddu Agnars) um daginn hversu rosalega lítið þurfti til að ástarvíman rynni af manni þarna á upphafsárum fullorðinslífsins.

Svartir krepsokkar sem innihéldu líkhvíta og háruga spóaleggi hröktu hrifningarvímuna á brott eins og hendi væri veifað.  Viðkomandi ástarviðfang vissi þá ekki hvaðan á sig stóð veðrið, hafði verið tilbeðinn áður en hann lyfti buxunum upp svo sást í bífurnar og var snarlega hrakinn á brott.  Skýringalust.

Svona fór þessu fram í nokkur ár.  Asnalegar höfuðhreyfingar, klór í rasskinn, hallærislegur hósti, ótímabær söngur og danstaktar settu hvern drenginn á fætur öðrum á dauðalistann.

Og svo lenti maður í svona niðurskurði sjálfur, sem ég reyndar skil ekkert í enn þann daginn í dag, enda fullkomin þá sem nú.

En alvöru ástarsorgirnar og ævintýrin áttu svo sannarlega eftir að banka á dyrnar með sínum ljúfsáru upplifunum.

Og ég grét flóðum.

En ég tók mig í gegnum allan tilfinningaskalann með hjálp sjálfrar mín og vinkvennanna.

Mínar ófarir hefa sýnt sig verða mun alvarlegri þegar ég tek hana til fagmanna.  Þá fer ég nefnilega að bera virðingu fyrir viðkomandi upplifunum og þori ekki að kroppa í þær.  Ég held að það sé vegna þess að prísinn á faghjálp er á við meðal sófasett.  Algjör bilun.

En þetta á auðvitað ekki við þegar um alvöru krísur í lífinu er að ræða.  Þar hafa sálfræðingar og geðlæknar bjargað lífi mínu.

I´m in love.  Jájá, so what´s new?


mbl.is Aðstoð í ástarsorg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Múhahahahahahahaha...!!

Drepiði mig ekki ...spóaleggir dauðans maður.....hehe

Guði sé lof fyrir að plebbahelgin er á enda ....

knús

Valdís

Valdís (IP-tala skráð) 4.8.2008 kl. 18:23

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég er mest ástfangin af sjálfri mér! Það bezta við það er að ég veld sjálfri mér aldrei vonbrigðum......

Hrönn Sigurðardóttir, 4.8.2008 kl. 18:24

3 Smámynd: Rebbý

já hver hefur ekki orðið fyrir ástarsorg nokkrum sinnum á ævinni ... annars á maður bara að gera eins og Hrönn og vera ástfangin af sjálfum sér þá verður lífið yndislegt

Rebbý, 4.8.2008 kl. 19:13

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hrönn klikkar aldrei með sín dásamlegu komment. En hjá mér var það svaka turn off ef piltar voru í stuttermabol með smá kraga og svo opið í miðju niður á bringu og reimar fyrir, fékk sko aulahroll dauðans, sérstaklega ef viðkomandi bolur var með t.d. gulum reimum við  grænan bol og hvítan kraga/hálsmál. Ojjjjjjjj   en svona spóaleggir eins og þú lýsir voru algjör horbjóður.  Man ekki eftir að ég hafi valdið vonbrigðum, þó hugsanlega þegar ég fór að pissa einu sinni á balli og kom til baka, voða fín í nýja jakkanum mínum með beltið, beint út á gólf að dansa og þá kom ein vinkona mín og dró annan beltisendann upp úr brókum mínum að aftan og ég var að dansa við einn sem ég hafði áhuga á að krækja í, skemmst frá því að segja að hann hefur ekki talað við mig síðan. 

Ásdís Sigurðardóttir, 4.8.2008 kl. 19:31

5 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 4.8.2008 kl. 20:12

6 identicon

Ásdís: Hverslags pempía var þessi dansherra eiginlega eiginlega? 

Jenný: Þú þarft að skrifa bók!

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 4.8.2008 kl. 22:33

7 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Sæt er heit og saklaus ást,
sárt er hana að dylja;
eins og það er sælt að sjást,
sárt er líka að skilja

Páll Ólafsson.

Tek undir með Páli :(

Ester Sveinbjarnardóttir, 4.8.2008 kl. 22:37

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ástin hefur hýrar brár
en hendur sundurleitar:
Ein er mjúk en önnur sár
en þó báðar heitar.

GN 

Ásdís Sigurðardóttir, 4.8.2008 kl. 22:41

9 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Æi spóaleggirnir, það er algert turn off.

En mikið andsk... væri gaman að heyra meira um öll misheppnuðu deitin þín, það er greinilega ekki lognmolla í kringum þig mín kæra.

Elísabet Sigurðardóttir, 4.8.2008 kl. 23:10

10 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Ástin logar og hatrið líka. Hver er munurinn?

Edda Agnarsdóttir, 4.8.2008 kl. 23:13

11 Smámynd: Steingrímur Helgason

Kvenlegur skilníngur hérna mér yfirskiljanlegur, skilurðu.

Steingrímur Helgason, 4.8.2008 kl. 23:46

12 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Tek undir með Önnu, þú ættir að skrifa bók kona.

Marta B Helgadóttir, 4.8.2008 kl. 23:47

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Stelpur mínar: Bók á leiðnni jájá, bara smá bið og svo smellur þetta.

Steingrímur: Þú þarft ekki að skilja konur, bara umbera honní.

Elísabet: Það mun bresta á með fleiri deitsögum.  Bísósjúr.

Edda: Munurinn er enginn nema sá að ég vil brenna upp af logum ástarinnar fremur en hatursins mér finnst það verðugri tilfinning að þjást af.  Og nú æli ég af kjaftæðinu í sjálfri mér.

Anna: Segðu.

Ásdís og fleiri: Rosalega eruð þið póetrísk í dag.

Hrönn: Auli.

Rebbý: Ég er reglulega head over heals af ást á sjálfri mér en hætti svo með mér reglulega þar sem ég er óþolandi í sambúð. Lalalala

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.8.2008 kl. 23:56

14 identicon

Alltaf flott..og Hrönn líka!!

alva (IP-tala skráð) 5.8.2008 kl. 00:17

15 Smámynd: Steingrímur Helgason

Jenný, ænó, truzt mí.

Enda þá væri ekkert varið í að við kynin værum kærlega misskilin.

Steingrímur Helgason, 5.8.2008 kl. 00:22

16 Smámynd: Sporðdrekinn

Ester og Ásdís: Falleg og sönn ljóð. Og þú þarna Jenný yndislegt hvað þú getur komið hlutunum skemmtilega frá þér.

Sporðdrekinn, 5.8.2008 kl. 05:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2985777

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband