Leita í fréttum mbl.is

Ekki dropi í tvö ár

Ég og fleiri alkar sem ég hef kynnst hafa á einhverjum tímapunkti áður en hundskast er í meðferð fengið þá brilljant hugmynd að flytja.  Bara taka sig upp og koma sér fyrir á nýjum stað, byrja nýtt líf.  Skilja vandamálin og vesenið eftir á gamla staðnum.

Sem betur fer kannski, hafði ég ekki orku til að framkvæma mikla flutninga nema í huganum, enda fárveikur alki á lokametrunum og þorði ekki út úr húsi, hvað þá heldur að ég hefði getað pakkað niður einni klósettrúllu svo ég tali ekki um heilli búslóð.

En á ákveðnum tímapunkti í neyslu virðist "aðflytjastábrott" ídean alveg frábær lausn.

Kallinn hennar Amy, pabbi hennar og Sarah Harding eru á því að Amy eigi að flytjast frá London og að það muni getað bjargað henni úr neyslunni.  Já sæl, sterk í blekkingunni.

Margir sem hafa flutt hafa sagt mér að þeir hafi verið búnir að finna neyslufélagana á nýja staðnum áður en þeir vissu hvar matvöruna var að finna.

Málið er að maður getur dröslast á heimsenda en maður er sjálfur með í för.  Það væri svo sem í lagi nema hvað að vandamálið er fyrirbærið sem maður sér í speglinum.  Allt eins gott að hanga heima, hringja upp á Vog og drífa sig í meðferð.  Það gerast engin kraftaverk meðan maður situr og vælir ofan í glasið eða hvað það nú er sem verið er að nota.

Það verða 2 ár um helgina síðan ég drakk áfengi síðast.  Ég átti þá eftir að fara í meðferð út af pillunum og það gerðist í október sama ár.  Æi þið sem lesið bloggið mitt vitið þá sögu alla.

En merkilegt hvað tíminn líður.  Ég er ennþá alveg svakalega þakklátur alki.

Mikið rosalega vildi ég að Amy Winehouse ásamt öllum hinum sem eru þarna úti í vondum málum sæju lífgjöfina sem felst í því að verða edrú.

Ég bíð og vona.

Lofjúgæs.

KISA TÝND, LESIÐ ÞETTA!


mbl.is Hvetur Amy til að flytja frá London
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Guðný

Til hamingju með tvö árin. Ég er gift einum svona óvirkum og ég þakka fyrir að hann var hættur áður en ég kynntist honum. Þið eruð miklu flottari edrú en full.

Anna Guðný , 1.8.2008 kl. 00:53

2 Smámynd: Benna

Já það er sko ein af þessu brilliant hugmyndum sem maður fær sem virkur alki að flytja eitthvert annað en þar sem maður er ....til hamingju með 2 árin:) Mig langaði að biðja þig um greiða en það er að linka á bloggið mitt í færslu hjá þér, málið er að kisan mín litla slapp út á laugardaginn síðasta og er týnd, hennar er mjög sárt saknað af fjölskyldunni og eru drengirnir mínir í rusli því er ég nú að reyna að biðja alla um hjálp með að auglýsa eftir henni með mér....því ég veit það eru margir sem skoða mbl bloggið og því einhver von að fólk sjái hana eða finni.. Ég væri þér óendanlega þakklát ... Með kærri kv. Benna.

Benna, 1.8.2008 kl. 00:56

3 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Hjartanlega til hamingju með 2ja ára afmælið, hugrakka,  fallega kona.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 1.8.2008 kl. 01:02

4 Smámynd: Hulla Dan

Til hamingju með 2 árin

Hulla Dan, 1.8.2008 kl. 01:10

5 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Til hamingju Jenný mín

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 1.8.2008 kl. 01:10

6 Smámynd: M

Það er auðvitað ekkert nema flótti frá vandamálinu sem fer ekkert. Flytur bara með þér eins og þú segir.

En til hamingju með þinn flotta áfanga um helgina Jenný

M, 1.8.2008 kl. 01:21

7 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Frábært hjá þér, Jenný mín....fyllirí geta verið svo vitlaus og drep leiðinleg. Verst að ég er að spá í einn alka núna, en voga mér ekki aftur í þá gildru...hann verður að hætta ef ég á að líta á hann.

Góða helgi Jenný mín

Eva Benjamínsdóttir, 1.8.2008 kl. 01:33

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Bestu kveðjur og hamingjuóskir elsku Jenný, þetta er góður áfangi og þetta var góð ákvörðun hjá þér að hætta.  WooHoo

Ásdís Sigurðardóttir, 1.8.2008 kl. 01:39

9 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Samgleðst, það er full ástæða til þess!

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 1.8.2008 kl. 01:43

10 Smámynd: Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)

Til hamingju Jenný

Pabbi er búinn að vera edrú í 30 ár og er að verða 80 ára

Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock), 1.8.2008 kl. 01:52

11 Smámynd: Brynja skordal

Til hamingju með þessi 2 ár þú ert frábær hafðu ljúfa helgi Elskuleg

Brynja skordal, 1.8.2008 kl. 02:02

12 identicon

Sæl Jenný.

Til hamingju með árin 2.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 1.8.2008 kl. 02:29

13 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

til hamingju, sigurvegari!!

alveg rétt hjá Önnu Guðnýu. maður er flottari edrú en drukkinn. þegar maður þarf að vera flottur  er best að láta ölið eiga sig

Brjánn Guðjónsson, 1.8.2008 kl. 02:41

14 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Já sko mína

Skil þig vel , þekki tilfinninguna. Án edrumennsku og 12 sporanna væri ég ekki að senda þér þessa kveðju t.d.

Til hamingju  Alkaknús á þig og klapp á bakið.

Amy þyrfti að lesa 5 kaflann heheh. Vonum að hún nái þessu stelpan.

Einar Örn Einarsson, 1.8.2008 kl. 03:07

15 Smámynd: Laufey B Waage

Til hamingju með edrú-árin tvö.

Laufey B Waage, 1.8.2008 kl. 08:24

16 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Til hamingju Jenný mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 1.8.2008 kl. 09:53

17 Smámynd: Dísa Dóra

Innilega til hamingju með þennan stóra áfanga - óska þér endalausra ára í viðbót á þessari braut

Dísa Dóra, 1.8.2008 kl. 10:05

18 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk öll fyrir falleg orð.  Einn dag í einu, það er málið.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.8.2008 kl. 10:15

19 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Málið er að maður getur dröslast á heimsenda en maður er sjálfur með í för.

afskaplega vel orðað. Þú hittir svooo naglann á höfuðið í þessum flutningsmálum öllum. Say no more.

Ég hef nú svo sem reynt þetta sjálf með flutninginn. Reyndar af öðrum ástæðum en alka-gamla, en það var flótti engu að síður.

2 ár - góður og merkur áfangi - keep up the good work girl

Jóna Á. Gísladóttir, 1.8.2008 kl. 12:38

20 identicon

Til hamingju með 2 árin! :)

Agnes Vald. (IP-tala skráð) 1.8.2008 kl. 15:18

21 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Tíminn líður svo hratt að maður verður bara dauður áður en maður getur áttað sig. En bláedrú!  Til hamingju með  áfangann!

Sigurður Þór Guðjónsson, 2.8.2008 kl. 01:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2985770

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband