Leita í fréttum mbl.is

Selbitarnir í lífi mínu

markí

Ég hefði gjarnan viljað að lundinn sem beit leiðindaeiturbrasarann Ramsey í nefið, hefði bitið hann fast í rassinn og fengið til liðs við sig alla fjölskylduna.

Þar fyrir utan er mér slétt sama um þennan karl.  Mér er slétt sama um Mel Gibson og alla aðra Íslandsvini, nema hvað ég vona að þeim líði vel hérna, eins og öllum öðrum ferðamönnum.

En ég fékk alveg í magann í fyrra þegar ég keyrði fram á Jodie Foster í miðbænum.  Hún er ein af mínum uppáhalds.

Ég fór í öreindir mínar í framsætinu (ók, ég tók þessu með stóískri ró),  en ég sá konuna áður en blöðin vissu að hún var hér.  Nananabúbú.

Og við höldum áfram.  Ég hitti Freddy Mercury í Oxfordstreet og bókstaflega hnééé að fótum hans.  En ég lét samt eins og ég hefði dottið heiðarlega, af því að ég myndi aldrei, aldrei, vilja sýna einhverjum selbitum að ég væri svag fyrir þeim.  Það skal tekið fram að þetta var áður en ég vissi að hann væri hommi, maður bar enn vonir í brjósti.  Muhahahaha.

Annars hef ég áður bloggað um hittinga mína við hetjurnar í lífi mínu, en aldrei er góð vísa of oft kveðin.  David Bowie á Marquee klúbbnum og á Speek Easy.  Ómæfokkinggodd hvað hann var bjútífúl.

Ég hékk inni á Vanilla Park í heilt kvöld til að bíða eftir Bítlum, þeir komu ekki en mér leið eins og þeir hefðu gert það.  Jájá, þurfti ekki mikið til að gleðja mann í þá daga.

Og ég sá Gilbert O´Sullivan (leim) spila á hvítan flygil á efstu hæð í Biba í Londres hérna um árið.

Dubie Brothers voru á Speak Eeasy og ég horfði á þá með fyrirlitningu.  Til að hemja aðdáunina.  Alltaf kúl, sko alltaf í öllum aðstæðum hún Jenný Anna.

Svo leið bara yfir mig uppi á herberginu mínu á Regent Palace þegar engin vitni voru til staðar.

Ó mín elskaða "Swinging London" hvernig er komið fyrir yður?

Meira seinna,

Farin að leita að stórstjörnum á Laugaveginum.

I´m so excited.

Úje


mbl.is Óblíð náttúra og lundar hrelldu Ramsey
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

You travel in the best circles. Ég hef aldrei að mér vitanlega séð celebrity.

Steingerður Steinarsdóttir, 28.7.2008 kl. 10:59

2 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Hitti Led Zeppelin eins og bandið lagði sig í Austurstræti 1970. Var með forláta rúskinnshatt sem Ian Page tók af höfðinu á mér og setti á sig. Var með skjálfta í hnjánum í viku.

Helga Magnúsdóttir, 28.7.2008 kl. 11:08

3 Smámynd: Tína

Láttu vita hvernig leitin gengur. Tala nú ekki um ef þú rekst á einhvern spennandi. Samt engan á borð við Ramsey takk.

Knús í daginn þinn kona

Tína, 28.7.2008 kl. 11:23

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég hef séð Ómar Ragnarsson

Hrönn Sigurðardóttir, 28.7.2008 kl. 11:26

5 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Var í gamla starfinu mínu í hvalaskoðun, þar gaf sig á tal við mig farþegi, sem gaf sig á tal við mig. Við spjölluðum heilmikið saman. Þegar í land kom kvaddi hún mig, horfði svo kankvíslega á mig og sagði: " kannastu ekkert við mig?" Ég : " ha nei, á ég að gera það?". Um mig fór aulahrollur þarna á staðnum. " mér finnst þú kunnugleg reyndar" sagði ég dálítið kjánalega.

" En skemmtilegt" sagði þessi ljúfa kona, " ég heiti Emma Thompson.

Ég: " ", útleggst kjaftstopp.

Svona er ég mikið inni í þessu fræaga slekti, finnst það reyndar hvorki merkilegra né ómerkilegra en annað fólk.

Hvað varðar frú Thompson, þá er konan sú afar hrífandi og virkilega var gaman að spjalla við hana, hún flokkast undir þessa íslandsvini.

Jenný, fara að panta rúm, út með spíttgræjuna.

Kveðja frá Rotterdam.

Einar Örn Einarsson, 28.7.2008 kl. 11:57

6 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Fyrsta setningin hér að ofan er náttúrulega bara hörmung, en þar er ofaukið seinna, sem gaf sig á tal við mig. Maður á ekki að tala í tvo síma í einu og gera athugasemd á bloggi um leið.

Einar Örn Einarsson, 28.7.2008 kl. 12:02

7 Smámynd: Þröstur Unnar

Ég barðist með Sven Hazel í seinna stríðinu.

Þröstur Unnar, 28.7.2008 kl. 12:24

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég kyssti Freddie Mercury, en hann var þá orðin vaxmyndastytta á safni en samt flottur. Svo horfði ég á ABBA á sviði í Norge og Johnny Logan, hann var krútt árið 1974. Man ekki meira í bili og þó, Regan og Gorbi veifuðu til mín við Fríkirkjuna um árið, krúttlegir. Gangi þér vel að finna celeb og EF þú rekst á Mel Gib. viltu knúsa hann frá mér.

Ásdís Sigurðardóttir, 28.7.2008 kl. 12:24

9 identicon

Ég og Krumma systir hlupum á Pink hér um árið.Í orðsins fyllstu.Konan vék ekki úr vegi fyrir okkur svo hún var gengin niður.Íslenskar brussur á ferð..Svo hef ég spjallað við Þorvald Halldórs,Ellen.Andreu G,Sigga Ingimars og auðvitað Jón Jósep sem var heimalingur hjá okkur þegar hann var ungi.Svo ég hef líka hitt fræga hahahahahaha.Já og Jónu Ágústu Gísla

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 28.7.2008 kl. 12:44

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hjördís: Telst ekki með, því þú velur ekki familíuna, hún bara fylgir.  Nananabúbú.

Birna Dís: Hver er Pink?

Ásdís: Þú ert alvöru selbita.

Þröstur: Lúser.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.7.2008 kl. 13:21

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Einar: Emma Thomson, vá og þú þekktir hana ekki.  Frusssssssss

Helga: Ég hitti líka Zeppana og fór á tónleikana.  Ég hitti þá í Austurstræti.  OMG

Hrönn: Sveitalúði.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.7.2008 kl. 13:22

12 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég veit......

Hrönn Sigurðardóttir, 28.7.2008 kl. 13:35

13 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég sá flugvél sem bítlarnir voru í og gaf þeim fingur koss og fleiri og fleiri.

Kristín Katla Árnadóttir, 28.7.2008 kl. 14:20

14 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Ég hitti einusinni Dustin Hoffmann út í London, og spurði hann til vegar, var að leita að búð sem seldi karakterskó,-  ég fattaði ekki fyrr en ég kom inn í búðina sem hann sagði mér hvar væri, -  "við hvern" ég hafði verið að tala.  - Afgreiðslufólkið tók á móti mér í dyrunum og spurði hvort að ég væri leikari,  - já, svaraði ég,  og skildi ekki hvernig í ósköpunum þeim dytti það í hug,- Jú svöruðu þau óðamála, við sáum að þú varst að tala við Dustin Hoffmann. -

Ég hef aldrei fengið eins góða afgreiðslu í London eins og í það skiptið. - Það var bókstaflega stjanað við mig.  - Og ég keypti fullt af skóm.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 28.7.2008 kl. 14:21

15 Smámynd: Þröstur Unnar

Þið eruð ruglaðar nema Hrönn. Aþí hún er sveitó.

Þröstur Unnar, 28.7.2008 kl. 15:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 2985769

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband