Leita í fréttum mbl.is

Hlandkoppur á elliheimili

magart0107_p54_pic3

Þegar ég var að alast upp og langt fram á þrítugsaldur skilgreindi ég íslenska karlmenn og raðaði þeim í fimm kategóríur. 

Ruddarnir, sem hættu í skóla 12 ára, lásu aldrei neitt annað en bankabókina sína, fóru á lúðu og steinbít, migu og kúkuðu í saltan sjó, snýttu sér á gólfið, hræktu á konur, klóruðu sér í pung og ráku við í fjölmenni.  Þeir þóttu vera karlmenni hin mestu þessir ógeðismenn.  Ég var aldrei sammála og þeir hrundu úr móð.

Menntamennirnir, sem nú eru flestir komnir í yfirvigt, voru grannir, fölir og pervisnir, reyktu franskar sígarettur, héngu á Tröð, ortu ljóð og voru með axlarsítt hár.  Svona tæringartýpur, alltaf með trefil og hóstandi ofan í bringuna á sér.  Mér fannst þeir törnoff með örfáum undantekningum.  Þeir áttu ekki upp á pallborðið nema hjá kvenkyns tvíburum sínum.

Hipparnir, með hárið niður í mitti, sem bökuðu vöfflur og brauð, eða opnuðu leðurverkstæði, reyktu hass og sögðu vávává í tíma og ótíma, gengu í afganpelsum með 3 m. langa trefla, bjöllur og keðjur, leðurarmbönd og fleira glingur.  Þeir voru undantekningarlítið berfættir í skónum, áttu aldrei krónu og fóru sjaldan í bað.  Ég baðaði nokkur stykki og fannst þeir sætir, nýbaðaðir og nýpúðraðir.

Mestu plebbarnir, voru MR-náungarnir, litlu karlarnir, svona 17 ára gamalmenni í hvítum nælonskyrtum með lakkrísbindi, "innvíðum" terlínbuxum og menntóúlpu.  Þessir hoppuðu yfir unglingsárin og lentu beint á "háttíþrítugsaldrinum".  Þeir gerðu álíka mikið fyrir kynhvötina og hlandkoppur á elliheimili.

Svo voru það perlurnar á fjóshaug lífsins sem er ekki hægt að setja í kategóríur.  Það voru mínir menn og ykkur kemur ekki afturenda við hverjir þeir voru.

En nú óttast ég að maðurinn í lið eitt sé að hefja sig til vegs og virðingar.

Sel það ekki dýrar en ég keypti það.

Mæómæ.

 

 


mbl.is Guðjón hættur með ÍA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Dásamlegar lýsingar! Ég lít um öxl og sé fyrir mér nokkra í hverjum flokki! 

Lára Hanna Einarsdóttir, 21.7.2008 kl. 12:36

2 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Þú ert óborganleg Jenný, eins gott að blog.is er frítt.

Svanur Gísli Þorkelsson, 21.7.2008 kl. 12:39

3 Smámynd: GOLA RE 945

Sko mína! Það er að rofa til, það rofar alltaf til..Nú erum við farnar að tala saman. Frábær lýsing sem ég tek undir að öllu leiti... Þú ert ótrúleg manneskja sagt og skrifað...

GOLA RE 945, 21.7.2008 kl. 12:41

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

 Kisses Þvílík snilldar grein hjá þér. Enginn af þeim sem þú lýsir voru mínir menn, svo ég spyr mig hvort við höfuma hugsanlega svipaðan smekk?  Njótti dagsins og lífsins, takk fyrir að gleðja hvern dag með sýn þinni á lífið "Hlandkoppur á elliheimili" þennan ætla ég að nota ef ég má??  knús

Ásdís Sigurðardóttir, 21.7.2008 kl. 12:44

5 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jónína Dúadóttir, 21.7.2008 kl. 12:50

6 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Hvernig ferðu að þessu, ÓMG ég held ég sé búin að pissa í buxurnaræ

Þetta minnir mig á það að ég heyrði einu sinni sagt frá því að þú værir að hugsa um að skrifa bók um hina íslensku Karen Blixen sem gæti verið ein kvenlýsingin á móti menntamanninum og plebbanum.

Edda Agnarsdóttir, 21.7.2008 kl. 12:51

7 Smámynd: Þorsteinn Þormóðsson

Hmmm hvað hefur þetta með Guðjón Þórðarson að gera og brottrekstur hans?? 

Þorsteinn Þormóðsson, 21.7.2008 kl. 13:05

8 identicon

"Enginn af þeim sem þú lýsir voru mínir menn" Það er líklegast vegna þess að það var engin "jákvæður" flokkur, eða þeir sem eftir voru voru ekki skilgreindir í flokk.

Jenný, ég skora á þig að flokka kynsysturnar þínar!

Ég nota aðeins einn flokk til þess að flokka fólk: Fólk er fífl og þeir sem eru það ekki :) 

Davíð Halldór Lúðvíksson (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 13:17

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Davíð: Þá eru það tveir flokkar.

Af hverju ætti ég að flokka þær?  Það er í þínum verkahring.

Þorsteinn: Segðu.

Edda: Hver sagði þér þetta með bókina og Karen?

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.7.2008 kl. 13:21

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Davíð: Gleymdi einu, hefurðu heyrt talað um fíflaskap, gamanmál, skrítlur (guð forði mér frá þeim), kaldhæðni, og önnur mál sem koma inn á gleðigenin?  Hélt ekki.

Ásdís: Það er eins gott að við erum ekki á markaði, með sama smekk.

Svanur: Takk, sömuleiðis.

Lára Hanna: Við vorum ekki nágrannar fyrir ekki neitt.

Hallgerður:  Enn á golunni?

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.7.2008 kl. 13:23

11 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þú er snillingur og skemmtileg

Kristín Katla Árnadóttir, 21.7.2008 kl. 13:38

12 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knús á þig elskulegust

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 21.7.2008 kl. 13:57

13 identicon

Sæl,

"hefurðu heyrt talað um fíflaskap, gamanmál, skrítlur (guð forði mér frá þeim), kaldhæðni, og önnur mál sem koma inn á gleðigenin?"

Eg man ekki eftir skrítlum eða freka óljóst, amk hef ég ekki heyrt góða skrítlu lengi. Ég ákvað þess vegna að leita af skrítlum og því miður fundust bara tvær niðurstöður á is.wikipedia.org. Fyrri niðurstaðan var tilvísun um grein sem var birt um H.C Andersen í Mogganum þann 1966.

Þetta var skemmtileg lesning og í raun var athugasemdin mín frekar kaldhæðnisleg og í raun undirstrikaði það sem þú varst að segja hvað varðar flokkunina. Þatta var í raun yfirflokkur á undirflokkana þína.

Það er víst ekki í tízku fyrir karlmenn að gera grín af konum, sértaklega hér á blogginu. Maður er nánast dreginn niður og á torg og hýddur fyrir slíkar atlögur :)

Davíð Halldór Lúðvíksson (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 14:02

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Davíð: Það má gera grín að flestu, þar með töldum þjóðsöngnum.  Því ekki konum?

Mér líst ágætlega á yfirflokkinn, hehemmm.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.7.2008 kl. 14:14

15 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

muuhaaa

Jóna Á. Gísladóttir, 21.7.2008 kl. 14:37

16 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 súperflottir flokkar...verd ad vidurkenna ad flokkur eitt var i dotlu uppáhaldi á vissu aldursskeidi fannst flokkur tvø alltaf soldid hómó,kynntist aldrei flokki thrjú...en flokkur fjøgur er eilífur amen...setti aldrei fót í thann flokk fann eina perlu i fjóshaugnum og batt mitt trúss vid hann og held thvi rammføstu

Frábær pistill as usual hjá thér. Eigdu gódan dag

María Guðmundsdóttir, 21.7.2008 kl. 14:40

17 Smámynd: Laufey B Waage

Mikið langar mig í lýsingu þína á perlum á lífsins fjóshaug, þó mér komi hún ekki hringvöðva við.

Laufey B Waage, 21.7.2008 kl. 14:57

18 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Jenný mín. Þessi lýsing á konu er í hávegum höfð á heimili vinkonu okkar í Reykjavíkurborg, þegar viss kona birtist, þá er alltaf talað um Karen Blixen og það skemmtilega er að hún hefur líka numið land í henni Afríku. En það gerðist ekki fyrr en löngu eftir að þú ætlaðir að skrifa um þína Blixen.

Edda Agnarsdóttir, 21.7.2008 kl. 15:43

19 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Edda: Takk, nú skil égur.  Ég er með svo langa fattara stundum.  Blixen í garðinum.  OMG.

Laufey: Þú mátt vera viss um að ég get ekki stillt mig um að blogga um perlurnar.

María: Góð.

Jóna: Ertu að reyna að hræða mig?

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.7.2008 kl. 15:46

20 Smámynd: Kolgrima

Æ, hvað þeir eru sætir, ég skellihlæ yfir því hvað þeir eru mikil krútt! Gaman að það skuli fleiri en ég muna eftir Tröð. 

Kolgrima, 21.7.2008 kl. 16:03

21 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Arg! Þú ert klikkuð  Shit hvað þetta er fyndið

Heiða B. Heiðars, 21.7.2008 kl. 16:22

22 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

ég sverða ég þekki allar týpurnar......ég syrgði það í mörg ár að hafa rétt misst af hippatímabilinu, fannst þeir svo svalir þegar ég var unglingur....

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 21.7.2008 kl. 17:10

23 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

takk fyrir þetta Jenný. ég get með engu móti sett mig í neinn fjóra fyrstu flokkanna. því hlýt ég að falla í síðasta flokkinn, perlurnar á fjóshaug lífsins.

ekki amalegt að fá bevís upp á það

Brjánn Guðjónsson, 21.7.2008 kl. 17:58

24 Smámynd: Linda litla

Þetta er alveg frábær lýsing hjá þér. Ég kannast annars ekkert við þessar lýsingar hjá þér, enda kemst ég aldrei nálægt karlmanni...... Jenný, af hverju geng ég ekki út ??

Linda litla, 21.7.2008 kl. 18:12

25 identicon

Minn hippi var með hár niður í mitti(skítugt),berfættur(með skítugar tær),en hann átti hann og róró svo hann dugði,já og friðarsinni sem gekk í fötum af hermönnum af vellinum.MR ingurinn var í brúnum flauelsbuxum,gulri peysu með v-hálsmáli og gul-brúnni skyrtu og brúnum lokuðum skóm(með svona peningi á ofan á ristinni), hann átti aur og fór til útlanda í langtíma nám.Er bæði ríkur og frægur á Íslandi í dag.Á perlu í dag ,og hef átt í 18 ár.Já og x er enn með möllet

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 18:39

26 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Hef ekki fallið fyrir neinum af þessum flokkum. Hitt mína týpu fyrir 27 árum og fæ ennþá hjartslátt og skjálfta í hnén. Held að hann sé einn af þessari týpu, hef engan séð sem jafnast á við hann.

Helga Magnúsdóttir, 21.7.2008 kl. 19:32

27 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Snilld!

Bjarndís Helena Mitchell, 21.7.2008 kl. 19:39

28 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ligga ligga lá, ég fann eina svona perlu, eða hún fann mig, og ég ætla aldrei að sleppa henni.  Takk fyrir þessar frábæru lýsingar

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.7.2008 kl. 20:22

29 Smámynd: Gunnar Gunnarsson

þú ert snilli .

Gunnar Gunnarsson, 21.7.2008 kl. 20:39

30 Smámynd: Einar Indriðason

Miðað við að ég finn mig ekki í fyrstu flokkunum, þá hlýt ég (miðað við þessa skiptingu) að vera "perla á fjóshaugnum".

Einar Indriðason, 21.7.2008 kl. 21:37

31 Smámynd: Huld S. Ringsted

Stórkostlegar lýsingar og þér einni lagið!!

Huld S. Ringsted, 21.7.2008 kl. 23:24

32 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég er ostra sem að hef af únggæðíngzhátt mínum ekki enn tekið út nægilegann þrozka til að 'perlazt'.

Steingrímur Helgason, 22.7.2008 kl. 00:03

33 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þið eruð pjúra skemmtiatrið gott fólk.

Og hér eru margar perlur á hauginn.  Hann fer að skína fyrr en ég hélt.

Steingrímur: Þetta kemur.  Þú ferð á hauginn eins og allir hinir.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.7.2008 kl. 00:32

34 identicon

Hehe,

þekkti þá alla, frábær útlistun:D

rut sumarliðadóttir (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 11:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.