Leita í fréttum mbl.is

Fokkmerkjasendingar þyrlufólksins

fuck_you 

Stundum þakka ég mínum sæla fyrir gúrkutíð.  Þá eru sagðar fréttir sem undir venjulegum kringumstæðum myndu ekki rata á miðlana.

Auðvitað eru margar þeirra gjörsamlega fáránlegar en þær segja samt sína sögu.

Pylsukaupin á þyrlunni t.d. hefði hún verið sögð ef nóg af öðru stöffi væri í fréttum?  Ég er að vona það án þess að ég ég hafi um það minnstu hugmynd.

Nútíminn er dásamlegur með öllu sínu upplýsingaflæði.

Ég vil fá fréttir af uppskafningunum sem lifa á sérkjörum þegar almenningur er hvattur til að spara.

Ég vil fá að vita af nýríku aulunum sem nota þyrlur við byggingu á sumarhúsum.

Og mér finnst flott að almenningur geti lesi um aulana í laxveiðinni sem bregða sér í sjoppuna á þyrlunni til að kaupa sér pylsu. 

Ég hef ekki átt þátt í að búa til þessa kreppu með óábyrgri eyðslu, kaupum á hlutabréfum, lántöku og kaupum á lúxusvörum.

Ég er ekki ábyrg fyrir ömurlegu ástandi íslensks efnahagslífs og þess vegna er ég eiginlega ekki í stuði til að taka það á mínar herðar, meira en nauðsynlegt er.

Ég fór aldrei í græðisvæðinguna, fór ekki á þyrlupallahátíðir, í pakkhúsafmæli né hef ég keypt mér einn einasta skýjakljúf.

Þannig að nú mælist ég til að þessir peningafurstar taki á sig fórnarkostnaðinn sem nú er verið að leggja á okkur venjulegt fólk á meðan Þyrluþjóðin í landinu heldur uppteknum hætti og sendir okkur fokkmerki með aumkunarverðri hegðun sinni.

Og ég vil fleiri svona fréttir.  Þær halda mér við efnið þangað til að  ég fæ næsta tækifæri til að hafa áhrif, með atkvæðinu mínu auðvitað, sem ég vona að verði sem allra fyrst.  Mér er nóg boðið oft á dag og ríkisstjórnin er ekki málssvari venjulegs fólks þessa dagana.

Að undanskilinni henni Jóhönnu ofkors.

Arg.


mbl.is Þyrlan nýtt í pylsukaup
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góðan og blessaðan daginn,

enn og aftur, einsog talað  úr mínu eigin hjarta, ég þarf ekkert að blogga sjálf, þú gerir þetta svo vel,

Rut

rut sumarliðadóttir (IP-tala skráð) 10.7.2008 kl. 12:50

2 Smámynd: M

Veruleikafyrrt þetta fólk.

Langar þig annars ennþá í sumarbústaðalóð með elitunni ? Vakna við þyrluna á hverjum morgni þegar bossarnir skreppa aðeins til vinnu eða í sjoppuna. 

M, 10.7.2008 kl. 12:59

3 identicon

Rosalegt röfl er þetta, bara gaman af þessum fréttum, gæti verið að það sé aðeins öfund í gangi???
Ef að menn eiga efni á að kaupa sér pulsu meðp því að fara með þyrlu er það þá bara ekki í lagi?

Arnbjörn (IP-tala skráð) 10.7.2008 kl. 13:10

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Arnbjörn: Engin öfund, finnst þetta ekki eftirsóknarvert, bara halló, en takk fyrir að spyrja.

M: Nebb langaði aldrei í bústað í þjóðgarði.  Finnst að hann eigi að vera laus við svoleiðis ófögnuð.  Ríkisstjórnin má eiga athvarf þarna, kaffihús og veitingastaður og búið bless.

Og auðvitað tjaldstæðin.

Rut: Takk.

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.7.2008 kl. 13:21

5 identicon

Sammála þér, Jenný.  Mér finnst þetta hallærisleg yfirborðsmennska hjá þessu liði.  Þetta á að kalla fram lotningu og virðingu til handa sér hjá þessu liði - (hinn almenni borgari á að segja; vá hvað þetta er flott hjá þeim, ég vil vera svona!) - en þess í stað kalla þeir bara yfir sig fyrirlitningu og andúð hins almenna borgara með þessari sýndarmennsku sinni.

Egill M. Þórlindsson (IP-tala skráð) 10.7.2008 kl. 13:25

6 identicon

Skrapp á þyrlunni til að kaupa pullu.Ég er enn að hlæja að þessu.Ég hjóla reyklaus og kaupi hollt og gott.Pullur eru ekki hollar .Fáránleiki lífsins

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 10.7.2008 kl. 13:31

7 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 knus i daginn thinn Jenný

María Guðmundsdóttir, 10.7.2008 kl. 14:05

8 Smámynd: Marilyn

Ef það er langt í næstu sjoppu og þeir komu á þyrlunni og hafa engann annan ferðamáta þá verða þeir auðvitað að fara á þyrlunni ef þeir ætla að kaupa sér pylsu. Annars hélt ég að svona kónar væru alltaf með kokk með sér en kannski ætluðu þeir að reyna að hafa þetta svolítið sveitó og slepptu kokknum, kannski þeirra tilraun til að spara ;)

Marilyn, 10.7.2008 kl. 14:18

9 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

Mér finnst þetta frekar sniðug frétt og nauðsynlegt að deila svona töffurum td á svona þyrlu og kaupa sér pylsu..

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 10.7.2008 kl. 14:37

10 identicon

Ertu þú eitthvað bættari með þínum skrifum, þar sem þú talar um uppskafninga, aula osfrv. um fólk sem þú hvorki þekkir eða þekkir til? Líður þér betur?

Það vill þannig til að enn er til fólk sem fyrir dugnað, elju og myndarskap getur leyft sér ýmislegt án þess að eiga inni álíka skrif og þín að ofan.   Skrifin segja e.t.v meira um þig sjálfa í þessu tilfelli en svanga þyrluflugmenn!

K.Jónsdóttir (IP-tala skráð) 10.7.2008 kl. 14:54

11 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Segi eins og fleiri hér á undan mér.- "Eins og talað út úr mínu hjarta". - 

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 10.7.2008 kl. 14:54

12 Smámynd: Birna M

Eins og talað útúr mínu hjarta.

Birna M, 10.7.2008 kl. 15:13

13 identicon

Þu ert náttlega bara yndisleg, pirruð eður ei.

Guðrún B. (IP-tala skráð) 10.7.2008 kl. 15:53

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

K. Jónsdóttir: Þessi færsla segir ýmislegt um sjálfa mig, það er rétt. Hún segir beint út hvernig ég er innréttuð gagnvart bruðli, snobbi, yforboðrsmennsku og öðru slíku.  Svo finnst mér veiðimenninnir segja marg um sjálfa sig með þessu athæfi, en þeir segja mér ekkert um elju og dugnað.  Setur þú samasem merki á mill elju og dugnaðar og að fljúga í sjoppuna úr veiðikofanum?

Takk fyrir öll sem hafið kommentað.

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.7.2008 kl. 15:59

15 identicon

Hvaða hvaða

Ég á þyrlu og tel mig ekki verri mann fyrir það. En ég er ekkert að nota hana í augnablikinu, vegna smá bilunar í fjarstýringunni.  Tómstundahúsið er ekki búið að fá varahlutinn, annars gæti ég sent hana eftir pulsu, það er að segja ef ég sé til hennar á meðan.

Hún er það stór að hún ber alveg þrjár pulsur

Leifur Ugluspegill

Þórleifur Ásgeirsson (IP-tala skráð) 10.7.2008 kl. 16:02

16 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Er ekki allt í lagi með þig, kona? Hvernig dettur þér í hug að aðallinn taki eitthvað á sig þegar upplagt er að varpa því á okkur sauðsvartan almúgann sem getum sko vel hert sultarólina.

Helga Magnúsdóttir, 10.7.2008 kl. 16:24

17 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Alltaf kalla einhverjir "öfund, öfund" þegar verið er að gagnrýna eitthvað. Góður pistill hjá þér.

Tek sérstaklega algjörlega heilshugar undir: "Ég hef ekki átt þátt í að búa til þessa kreppu með óábyrgri eyðslu, kaupum á hlutabréfum, lántöku og kaupum á lúxusvörum."

Guðríður Haraldsdóttir, 10.7.2008 kl. 17:06

18 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Helga: Segðu.

Leifur: Hahahaha, þú drepur mig einhvern daginn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.7.2008 kl. 17:06

19 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gurrí: Það er eins víst og að það kemur nýr dagur á morgun að einhver snillinn kemur og hrópar nákvæmlega þetta, öfund, öfund.

Money in the bank.

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.7.2008 kl. 17:07

20 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Öfund! Öfund!

Krakkar mínir, auðvitað er þetta öfund í ykkur. Þetta fólk á meiri pening en við. So? Það er margfalt fleira fólk sem á miklu minni pening en við. Hjálpum þeim!

Við þurfum ekkert langt til að sjá virkilega hjálparþörf fyrir verðug hjálparstörf. Ekki einusinni upp í flugvél, elskurnar!

Með von um glaðlegt og gefandi bankaskopp í fyrramálið, þetta var nú nokkuð fyrirsjáanlega safe bet. -Challence me pleace!  

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 10.7.2008 kl. 19:47

21 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Helga Guðrún: Merkilegt nokk þá elska ég þig líka villingurinn þinn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.7.2008 kl. 21:23

22 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 10.7.2008 kl. 21:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 2985874

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband