Leita í fréttum mbl.is

Bannað að tjalda í Hálfvitalundi

idiot

Ég er nokkrum sinnum búin að fara hamförum á þessari síðu vegna mannréttindabrota á tjaldstæðum víða um land.

Ef þú ert ekki orðin 30 ára eða búin að eignast börn geturðu til fjandans farið.

Sumstaðar er aldurstakmarkið eitthvað lægra, mér er nokk sama.  Fullorðið fólk á að eiga sama rétt og aðgang að tjaldstæðum, án tillits til aldurs eða barneigna.  Fólk verður lögráða 18 ára.  Verða sér út um lágmarks upplýsingar um réttindi fólks.

Og nú var 28 ára gamalli konu bannað að tjalda um síðustu helgi.

Kona mátti tjalda ef hún væri með börn í farangri en ekki ef hún ætlaði sér að búa til börn á viðkomandi tjaldstæði, sagði húmoristinn tjaldvörður.

En...

það sem er að pirra mig núna er fyrirsögnin á þessu martraðarkennda ævintýri konunnar.

Lyfjafræðingi bannað að tjalda!

Hvaða andskotans máli skiptir hvort hún er lyfjafræðingur, ræstitæknir eða afgreiðslumaður á plani?

Verður það næsta regluverk á tjaldstæðunum?  Þ.e. Enginn sem ekki er búinn að ljúka stúdentsprófi, er ljóshærður og yfir kjörþyngd getur fengið að tjalda í Hálfvitalundi.

Vinsamlegast hafið samband við vitavörð.

Er alþjóðlegur hálfvitadagur í dag án þess að ég hafi tekið eftir því?

Súmítoðefokkingbón

Úje

Sjá frétt á visi.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Veistu ekki að lyfjafræðingar eru stórhættulegt fólk? Kunna að búa til kókaín og allt.

Helga Magnúsdóttir, 3.7.2008 kl. 17:50

2 Smámynd: M

HAHAH hugsaði það sama og Helga

Farin að blogga um pirring

M, 3.7.2008 kl. 17:52

3 Smámynd: María Guðmundsdóttir

nei hættidi nú alveg   er thetta ekki komid útí "smávegis"....flaut...øfgar

María Guðmundsdóttir, 3.7.2008 kl. 18:07

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Rugludallar eru þessir menn. Eins og ég hef bent á í öðrum kommentum, er ekki málið að reka burt þá sem haga sér eins og fífl, alveg burtséð frá aldri, mér finnst fíflagangur og ólæti ekki tengjast eingöngu ungu fólki. Svo er náttl. 30 ára aldurstakmark út í hróa, börnin mín hefðu þá misst af öllum tjaldferðum því eftir þrítugt var ég orðin löt við að tjalda.  Asnar

Ásdís Sigurðardóttir, 3.7.2008 kl. 18:33

5 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Það er ekki öll vitleysan eins.  Er barasta hægt að komast upp með þetta???  Þetta eru fordómar á háu stigi.

Elísabet Sigurðardóttir, 3.7.2008 kl. 18:41

6 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Það á að banna lyfjafræðingum líka að versla í lágvöruverslunum, flugumferðarstjórum líka.

En svona í alvöru, eru þetta ekki bara svona ekki fréttir?? Er alveg rasandi.

Einar Örn Einarsson, 3.7.2008 kl. 19:02

7 Smámynd: Andrea

Ekki fréttir? Það að 28 ára fullorðnum einstaklingi er bannað að tjalda á þeim forsendum að hún eigi ekki börn er frétt

Hvurslags djöfulsins rugl er þetta!!!
Lágmark að setja þetta í lög svona eins og áfengiskaupa-, giftinga- og bílprófsaldurinn áður en það er hægt að mismuna fólki eftir því hvort það á börn eða ekki

Andrea, 3.7.2008 kl. 19:25

8 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

ekkert mál bara að tala utlensku mar Can i  put my tent down here og þá er ekkert vandamál eg er nokkuð viss um að erlendum ferðamönnum undir 30 er ekki bannað að tjalda

Jón Aðalsteinn Jónsson, 3.7.2008 kl. 20:57

9 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Haukur Hauksson fréttahaukurinn knái á Rás 2 sagði "ekki fréttir" sem voru bara della og vitleysa ergo - GRÍN!. Var að höfða til þess Andrea  Finnst þetta svo arfavitlaust að ég hélt að þeir væru farnir að læða svona fréttum inn á milli upp á húmorinn, en því miður reynist þetta rétt.

Einar Örn Einarsson, 3.7.2008 kl. 22:43

10 Smámynd: Linda litla

Hvurs lags fáráðnlega fyrirsögn er þetta.... ??? Nákvæmlega.... ef að hún hefði verið skurðlæknir, hefði hún þá mátt tjalda ???

Linda litla, 3.7.2008 kl. 23:36

11 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Skoðið grein eftir þessa konu á Vefritinu sem skráð hér á mbl.is!

Edda Agnarsdóttir, 4.7.2008 kl. 00:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.